Hverfandi útlán Íbúðalánasjóðs - Auglýst eftir nýjum forstjóra

Útlán Íbúða­lána­sjóðs til íbúða­kaupa hafa verið nær hverf­andi þar sem af er þessu ári, eða aðeins um 2,5 millj­arðar króna. Skulda­bréfa­út­gáfa Íbúða­lána­sjóðs er að öllum lík­indum liðin undir lok en sjóð­ur­inn gaf ekki út ný skulda­bréf í fyrra og ekk­ert það sem af er ári 2015. Þetta er mat fjár­mála- og hag­fræði­ráð­gjafar Capacent sem skrifar um skulda­bréfa­út­gáfu sjóðs­ins undir yfir­skrift­inni „Síðasti geir­fugl­inn“.

Ekki liggur nákvæm­lega fyrir hver fram­tíð Íbúða­lána­sjóðs verður en sjóð­ur­inn hefur barist í bökkum allt frá efna­hags­hruni. Íbúða­lána­sjóður skil­aði hagn­aði upp á 3,2 millj­arða króna á síð­asta ári og er það í fyrsta sinn sem hann skilar slíkum frá árinu 2008. Í milli­tíð­inni hefur sjóð­ur­inn tapað tæpum 58 millj­örðum króna og rík­is­sjóður hefur þurft að leggja honum til 53,5 millj­arða króna frá árinu 2009 til að halda sjóðnum gang­andi. Útlán á árinu 2014 lækk­uðu um 40,4 millj­arða króna og námu ný útlán ein­ungis um 6,6 millj­örðum króna árið 2014.


jóð­ur­inn er samt sem áður enn langstærsti íbúða­lán­veit­andi á Íslandi með 43 pró­sent mark­aðs­hlut­deild. Hún hefur hins vegar minnkað hratt á und­an­förnum árum. Hún var talin vera á bil­inu 55 til 60 pró­sent árið 2011. Við­skipta­bank­arnir hafa haft Íbúða­lána­sjóð undir í sam­keppni um útlán til íbúða­kaupa, en til sam­an­burðar við 6,6 millj­arða útlán sjóðs­ins í fyrra þá juk­ust íbúða­lán Lands­bank­ans um 39 millj­arða króna.


Sigurður Erlings­son, sem var for­stjóri sjóðs­ins frá árinu 2010, lét af störfum í apríl síð­ast­liðnum. Auglýst hefur verið eftir nýjum for­stjóra, meðal ann­ars í dag­blöðum í dag, og er umsókn­ar­frestur til 5. júlí. „Stjórn Íbúða­lána­sjóðs leitar að kröft­ugum ein­stak­lingi til að leiða sjóð­inn í gegnum tíma­bil breyt­inga og skapa starfs­fólki og við­skipta­vinum jákvætt umhverfi á þeirri veg­ferð,“ segir í aug­lýs­ing­unni. „For­stjóri þarf að hafa góðan skiln­ing á fjöl­breyttum verk­efnum sjóðs­ins og þekk­ingu á því lagaum­hverfi sem hann starfar innan.“


Fyrir um mán­uði síðan brást stjórn Íbúða­lána­sjóðs við frétt Stöðvar 2 þar sem haft var eftir Peter Dahlman, sér­fræð­ingi Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, að við­skipta­módel Íbúða­lána­sjóðs sé ónýtt og að nauð­syn­legt sé að ná sam­komu­lagi um nýja stefnu stjórn­valda í hús­næð­is­málum. „Stjórn Íbúða­lána­sjóðs tekur undir það með AGS að nauð­syn­legt er að ljúka vinnu við fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála og ná sátt um nýja hús­næð­is­stefnu. Hins­vegar bendir stjórnin á að brýnt sé að gætt sé að því að breyt­ingar á starf­semi sjóðs­ins séu vel ígrund­aðar og und­ir­búnar þannig að sem minnst tjón hljót­ist af,“ sagði í til­kynn­ingu frá stjórn Íbúða­lána­sjóðs vegna þessa.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár