Sigurður Erlingsson segir upp starfi sínu sem forstjóri Íbúðalánasjóðs

Sigurður Erlings­son, sem verið hefur for­stjóri Íbúða­lána­sjóðs frá árinu 2010, hefur óskað eftir því að láta af störfum. Hann mun láta sam­stundis af störfum en verða tíma­bundnum for­stjóra, Gunn­hildi Gunn­ars­dóttur, til ráð­gjafar. Gunn­hildur, sem verið hefur stað­geng­ill for­stjóra, mun gegna starf­inu þar til að nýr for­stjóri verður ráð­inn. Starfið verður aug­lýst laust til umsóknar á næst­unni.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar vegna þessa kemur fram að nýr for­stjóri muni fá það hlut­verk að leiða breyt­ingar sem kunna að verða á starf­semi sjóðs­ins við breytta skipan hús­næð­is­mála.

Þar er haft eftir Sigurði að sjóð­ur­inn hafi staðið frammi fyrir miklum áskor­unum þegar hann tók við starf­inu. "Með sterk­ari innviðum sjóðs­ins og öfl­ugu stjórn­enda­teymi hefur sjóð­ur­inn náð góðum tökum á þessum við­fangs­efnum. Ég er stoltur af því að meg­in­mark­mið í stefnu- og starfs­á­ætlun Íbúða­lána­sjóðs hafi náðst.“

Ingi­björg Ólöf Vil­hjálms­dóttur, stjórn­ar­for­maður Íbúða­lána­sjóðs, segir að stjórnin þakki Sigurði fyrir mik­il­vægt fram­lag á umliðnum árum.

Tapaði 58 milljörðum króna eftir hrunið


Íbúða­lána­sjóður skil­aði hagn­aði upp á 3,2 millj­arða króna á síð­asta ári og er það í fyrsta sinn sem hann skilar slíkum frá árinu 2008. Í milli­tíð­inni hefur sjóð­ur­inn tapað tæpum 58 millj­örðum króna og rík­is­sjóður hefur þurft að leggja honum til 53,5 millj­arða króna frá árinu 2009 til að halda sjóðnum gang­andi.

Þorri þess hagn­aðar sem Íbúða­lána­sjóður sýnir fyrir árið 2014 er komin til vegna breyt­inga á virð­is­rýrnun útlána sjóðs­ins. Þ.e. inn­heimt­an­leiki lána hefur auk­ist um 2,5 millj­arða króna. Þá skiptir hlut­deild sjóðs­ins í hagn­aði dótt­ur­fé­lags­ins Kletts, sem er leigu­fé­lag utan um hluta þeirra íbúða sem Íbúða­lána­sjóður hefur leyst til sín, líka tölu­verðu máli.

Árs­reikn­ingur sjóðs­ins sýndi að útlán hans hafi lækkað um 40,4 millj­arða króna á síð­asta ári. Hann er samt sem áður enn langstærsti íbúða­lán­veit­andi á Íslandi með 43 pró­sent mark­aðs­hlut­deild. Hún hefur hins vegar minnkað hratt á und­an­förnum árum. Hún var talin vera á bil­inu 55 til 60 pró­sent árið 2011.

Ný útlán sjóðs­ins voru líka mjög lág. Alls námu þau 6,6 millj­örðum króna á síð­asta ári og sam­kvæmt mán­að­ar­skýrslum sjóðs­ins var umfang lána til ein­stak­linga, venju­bundin hús­næð­is­lán, um 4,7 millj­arðar króna. Til sam­an­burðar juk­ust íbúða­lán Lands­bank­ans um 39 millj­arða króna á síð­asta ári, um nán­ast sömu krónu­tölu og heild­ar­út­lán íbúða­lána­sjóðs dróg­ust saman.

Skuldaniðurfellingar kosta sjóðinn og ríkissjóð milljarða


Í árskýrsl­unni var einnig fjallað mjög ítar­lega um áhrif skulda­nið­ur­fell­inga­úr­ræða stjórn­valda, sem nefn­ast einu nafni Leið­rétt­ingin, á stöðu sjóðs­ins. Þar kemur fram að nið­ur­greiðslur rík­is­sjóðs á völdum verð­tryggðum hús­næð­is­lánum (600 til 900 millj­óna króna tap á ári) og notkun fólks á sér­eign­ar­sparn­aði til að greiða niður höf­uð­stól íbúð­ar­lána (300 til 450 millj­óna króna tap á ári) valdi því að sjóð­ur­inn tapi um 900 til 1.350 millj­ónum króna á ári vegna vaxta­taps. Um sé að ræða helm­ing vaxta­tekna sjóðs­ins, sem er að fullu í eigu íslenska rík­is­ins. Þar segir að „tjón vegna úrræða stjórn­valda mun að óbreyttu hafa mikil áhrif á grunnafkomu sjóðs­ins og valda því að sjóð­ur­inn verður hér eftir rek­inn með tapi sem á end­anum fellur á rík­is­sjóð. Ljóst er að slík umgjörð rekstrar kann að valda því að ýmsir aðrir áhættu­þættir sjóðs­ins, svo sem upp­greiðslu­vandi, geta magn­ast upp og vafi kann að leika á rekstr­ar­hæfi sjóðs­ins. Við þessar aðstæður er það mark­mið stjórn­enda að lág­marka tjón sjóðs­ins.“.

Þar segir einnig að „í bréfi vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins dag­settu 19. des­em­ber 2014 kemur fram að það sé skiln­ingur bæði félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra að Íbúða­lána­sjóði verði bætt þau nei­kvæðu áhrif sem kunna að verða á afkomu sjóðs­ins vegna höf­uð­stólslækk­unar hús­næð­is­skulda[…] og segir jafn­framt að sú afstaða hafi einnig komið fram á fundi full­trúa Íbúða­lána­sjóðs þann 18. des­em­ber 2014 með emb­ætt­is­mönnum ráðu­neyt­anna og for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Ekki liggur fyrir með hvaða hætti tjón sjóðs­ins verður bætt og eiga stjórn­völd í sam­ráði við sjóð­inn eftir að útfæra það nánar. Ekki er færð krafa á rík­is­sjóð vegna þessa tjóns.“

Óvissa um framtíðarhlutverk


Það ríkir hins vegar gríð­ar­leg óvissa um hvert fram­tíð­ar­hlut­verk Íbúða­lána­sjóðs sé. Í skýrslu stjórnar sem fylgdi árs­skýrsl­unni segir að þetta óvissu­á­stand hafi staðið yfir „frá þeim tíma er félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra skip­aði verk­efna­stjórn um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála 9. sept­em­ber 2013 í sam­ræmi við þings­á­lyktun um aðgerðir vegna skulda­vanda íslenskra heim­ila sem sam­þykkt var á Alþingi vorið 2013. Verk­efna­stjórn um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála hefur skilað ráð­herra til­lögum sínum og unnið er að því í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu að skapa ramma fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lags með laga- og reglu­gerða­smíð sem von­andi verður til­búið sem fyrst. Fyrir vikið hefur stefnu­mót­andi ákvörð­un­ar­taka í nán­asta umhverfis sjóðs­ins verið sett í bið­stöðu en slíkt hefur áhrif á rekstur sjóðs­ins með ýmsum hætti“.

Verk­efna­stjórnin skil­aði til­lögum til rík­is­stjórn­ar­innar í maí í fyrra. Í til­lög­unum, sem eru umdeildar, er lagt til að tekið verði upp nýtt hús­næð­is­kerfi þar sem sér­hæfð hús­næð­is­lána­fé­lög ann­ast lán­veit­ingar til fast­eigna­kaupa. Öll umgjörð íbúða­lána á að mið­ast við að jafn­vægi sé milli útlána og fjár­mögn­un­ar­lána, líkt og tíðkast í Danmörku. Þetta kerfi er enda í dag­legu tali kallað danska kerfið.

Samkvæmt til­lög­unum verður núver­andi lána­safn Íbúða­lána­sjóðs látið renna út, honum skipt upp í nýtt opin­bert hús­næð­is­lána­fé­lag og ein­hvers konar umgjörð um mörg af verk­efnum sjóðs­ins í dag. Í skýrsl­unni segir: „Nokkur vinna var við útfærslu til­lagn­anna á árinu 2014. Kannaður var rekstr­ar­grund­völlur nýs hús­næð­is­lána­fé­lags í eigu rík­is­ins, en ákveðið að hefja ekki und­ir­bún­ing að stofnun slíks félags fyrr en fyrir liggur hverjar breyt­ingar verða á lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki. Rætt var um að leggja alfarið af lán­veit­ingar sjóðs­ins til þess að auka ekki á ábyrgðir rík­is­sjóðs vegna hans, en sjóð­ur­inn hefur ekki sótt fé á markað með útboðum síðan 2012. Sem stendur virð­ist vinna við útfærslu til­lagn­anna vera í bið­stöðu. Ekki hafa enn verið lögð fram á Alþingi frum­vörp um breyt­ingu á verk­efnum Íbúða­lána­sjóðs en fyrir liggja drög að frum­varpi um stofn­styrki til leigu­fé­laga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár