Landsframleiðsla á Íslandi sú 10. mesta í Evrópu

Samkvæmt fyrstu bráða­birgða­tölum fyrir árið 2014 var magn vergrar lands­fram­leiðslu á íbúa á Íslandi 21 pró­sent yfir með­al­tali Evr­ópu­sam­bands­ríkja árið 2014. Í sam­an­burði við 37 Evr­ópu­ríki, það eru 28 ríki Evr­ópu­sam­bands­ins auk Íslands, Noregs, Sviss, Tyrk­lands, Svart­fjalla­lands, Serbíu, Bosníu-Her­segóvínu, Albaníu og Makedóníu, var Ísland 10. í röð­inni yfir verga lands­fram­leiðslu á íbúa sama ár.

Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar sem birt var í dag. Sam­an­burð­ur­inn er unn­inn í sam­starfi við hagstófu Evr­ópu­sam­bands­ins, Eurostat, og OECD. Myndin hér að neðan er úr frétt Hag­stof­unnar.

[caption id="attachment_31844" align="aligncenter" width="499"] Magn lands­fram­leiðslu á mann fyrir árið 2014. Myndin er fengin af vef­síðu Hag­stof­unnar.[/caption]

Magn vergrar lands­fram­leiðslu á íbúa var mest í Lúx­em­borg, alls 163 pró­sentum yfir með­al­tali Evr­ópu­sam­bands­ríkja. Þar á eftir kom Noregur þar sem verg lands­fram­leiðsla á íbúa var 79 pró­sentum yfir með­al­tali Evr­ópu­sam­bands­ríkja. Lúx­em­borg sker sig úr hópnum en líta verður til þess að fjöldi fólks vinnur og verslar í land­inu og leggur til lands­fram­leiðsl­unnar, en býr utan lands­ins og telst því ekki til íbúa­fjöld­ans.


Lands­fram­leiðla er fram­leiðsla á allri vöru og þjón­ustu innan ákveð­ins land­svæðis yfir ákveðið tíma­bil. Til þess að bera saman löndin er not­ast við svo­kallað jafn­virð­is­gildi. Þá er lands­fram­leiðsla land­anna umreiknað með til­liti til mis­mun­andi verð­lags í lönd­unum. Jafn­virð­is­gildi sýnir hversu mikið þarf af gjald­miðlum ein­stakra landa til að kaupa sama magn af vöru og þjón­ustu í öðrum löndum.


Tengt efni:
Munurinn á þjóð­ar­fram­leiðslu og lands­fram­leiðslu.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár