Maður og kona giftast í Svíþjóð - gagnrýni vinsamlegast afþökkuð

Þetta hljómar eins og hand­rit að kvik­mynd. Ungur maður situr á kaffi­húsi með vini sínum þegar tvær konur ganga fram­hjá. Sú fyrri þekkir vin­inn en hin horfir feimn­is­lega á unga mann­inn sem starir á móti og heilsar vand­ræða­lega. Þetta var ást við fyrstu sýn og síðan þá hafa þau verið óað­skilj­an­leg – prins­inn og almúga­stúlkan. Auðvitað hlaut þetta að vera prins því ann­ars væri sagan ekki jafn góð og auð­vitað er hún húð­flúrað nekt­ar­módel sem hefur tekið þátt í raun­veru­leika­þætti. Nú vantar bara Juliu Roberts í hné­háum leð­ur­stíg­vélum í aðal­hlut­verkið, já eða ein­hverja yngri því Julia er komin langt fram yfir síð­asta sölu­dag.

Stundum er raun­veru­leik­inn furðu­legri en kvik­mynd eða kannski eru það bara fjöl­miðl­arnir sem gera ósköp eðli­lega sögu að ein­hverri sýn­ingu. Í gær kvænt­ist Karl Filippus, Sví­a­prins, unnusti sinni Sofiu Hellqvist á björtum og fal­legum sól­ar­degi í Stokk­hólmi. Hann er þriðji í röð­inni að krún­unni á eftir systur sinni Viktoríu krón­prinsessu og dóttur hennar Estelle.

Eins og venju­lega þegar um er að ræða stóra atburði í kon­ungs­fjöl­skyld­unni var margra klukku­tíma bein útsend­ing í sænska sjón­varp­inu og dag­blöð og tíma­rit hafa verið full af fréttum af und­ir­bún­ingnum síð­ustu daga og vikur. Talið er að brúð­kaupið kosti um 10 millj­ónir sænskra króna eða rétt tæp­lega 160 millj­ónir íslenskra, en þar af er beinn kostn­aður skatt­greið­anda aðeins litlar fjórar millj­ónir sænskra, sem þykir víst vel sloppið. Ein af þessum millj­ónum fellur reyndar á lög­regl­una vegna kostn­aðar við lög­gæslu, sem er aðeins brot af þeim 17 millj­ónum sem lög­reglan þurfti að punga út vegna brúð­kaups Viktoríu fyrir nokkrum árum.

[caption id="attachment_31566" align="align­right" width="774"] Brúð­hjónin láta vel hvort að öðru í vitna við­ur­vist. Mynd: EPA[/caption]

Goðsögnin um jákvæð áhrif og fleiri ferðamenn


Þegar rætt er um kostn­að­inn við brúð­kaupið og reyndar kon­ungs­fjöl­skyld­una alla eru stuðn­ings­menn hennar fljótir að minn­ast á þau jákvæðu áhrif sem hún hefur á ferða­mennsku og ímynd Sví­þjóðar. Visit Sweden er eins konar Íslands­stofa Svía og þar vilja menn meina að brúð­kaupið hafi góð áhrif á allt mark­aðs­starf. Fram­kvæmda­stjór­inn sagði í við­tali við SVT að ferða­menn kaupi vörur og þjón­ustu fyrir um 100 millj­arða sænskra króna á ári og að fleiri gestir þýði auknar tekjur. Hann pass­aði sig reyndar á því að nefna aldrei beinar tölur í sam­bandi við brúð­kaupið enda skutu þeir langt yfir markið í spá­dómum sínum fyrir brúð­kaup krón­prinsessunnar.

Þá var mikið rætt um það hversu góð áhrif brúð­kaupið myndi hafa á ferða­manna­iðn­að­inn og auknar tekjur fyrir fyr­ir­tæki í Stokk­hólmi. Þegar árið var gert upp kom í ljós að það var engin aukn­ing í kringum brúð­kaupið og að meintur hagn­aður var nán­ast upp á krónu sá sami og á venju­legum laug­ar­degi í borg­inni.

Engu að síður mátti lesa fréttir í gær um mann­fjöld­ann sem safn­að­ist saman og beið þess að sjá brúð­hjónin aka frá kirkj­unni að höll­inni þar sem veislan var haldin. Fólk mætti snemma til að ná bestu stöð­unum og innan um heima­menn mátti sjá hressa Finna sem þurfa víst að láta sér nægja þjóð­kjör­inn for­seta. Þegar frétt­irnar eru lesnar er auð­velt að álykta sem svo að tölu­vert stór hópur hafi safn­ast saman og að þús­undir hafi fyllt göt­urnar til að hylla brúð­hjónin. En það var bara ekki þannig.

Þegar sá sem þetta skrifar gekk fram­hjá kon­ungs­höll­inni um það leyti sem athöfnin hófst var ekki hægt að sjá að fleira fólk væri á ferli en á venju­legum sól­ar­degi í Stokk­hólmi. Og þótt fólk hafi staldrað við og fylgst með hest­vagni brúð­hjón­anna virt­ust flestir á leið inn í H&M eða aðrar búðir.

Klappað í kirkjunni


Brúð­hjónin hafa verið opin og ein­læg í við­tölum og óhrædd að sýna ást sína á opin­berum vett­vangi. Athöfnin sjálf var því nokkuð ólík hefð­bundnum kon­ung­legum brúð­kaupum því parið var ákveðið í að gera athöfn­ina per­sónu­lega. Helst var það tón­list­ar­valið sem kom á óvart, meðal ann­ars sænskar útgáfur af Coldplay lag­inu Fix You og lag­inu Umbrella með Rihönnu en það vakti óskipta athygli þegar gospel­söngv­ar­inn Samuel Ljung­blahd bað fólk um að klappa með í lag­inu Joyful Joyful.

Veislan um kvöldið þótti einnig óvenju afslöppuð. Prinsinn hélt fal­lega ræðu þar sem hann sagði að það krefð­ist hug­rekkis að velja ást­ina þótt veg­ur­inn væri grýttur og Sofia samdi ljóð til brúð­gumans sem flutt var af þekktum tón­list­ar­mönnum í veisl­unni. Kvöld­verð­inum lauk um ell­efu en þá tók við veisla fram á nótt og var sér­stak­lega tekið eftir því að kon­ungs­hjónin fóru ekki úr partý­inu fyrr en um hálfsex um morg­un­inn. Af myndum má ráða að fólk hafi skemmt sér vel og meðal ann­ars mátti sjá Silvíu drottn­ingu á svið­inu þykj­ast syngja í míkra­fón eins og fólk gerir í góðum veislum.

Húðflúr og naflahringur


Eins og minnst var á hér að framan er for­tíð Sofiu ekki beint hefð­bundin fyrir prinsessu. Hún vakti fyrst athygli á sér þegar hún var kjörin ung­frú Slitz árið 2004 af les­endum brjósta­blaðs­ins en þar sat hún ber­brjósta fyrir á myndum með stórri slöngu. Árið síðar tók hún svo þátt í raun­veru­leika­þætt­inum Paradise Hotel sem helst virð­ist ganga út á að láta ungt fal­legt fólk líta út fyrir að vera enn vit­laus­ara en það er.

Þegar Sofia og Karl tóku að stinga saman nefjum urðu margir ákaf­lega hneyksl­aðir, ekki bara út af mynd­unum, heldur líka út af nafla­hring og húð­flúrum verð­andi Sví­a­prinsessu. Það tók líka nokkuð langan tíma að fá sam­þykki kon­ungs­fjöl­skyld­unnar og til þess að prins­inn fengi að kvæn­ast Sofiu þurfti kon­ung­ur­inn faðir hans að veita til þess form­legt leyfi.

Fjöl­miðlar hafa skil­merki­lega fjallað um kröfur kon­ungs­fjöl­skyld­unnar varð­andi nafla­hring­inn sem skyldi fjar­lægður fyrir brúð­kaupið. Enda ganga prinsessur ekki um með hringi í nafl­anum eins og allir vita. Hins vegar var erf­ið­ara að ráða við húð­flúrin sem eru ekki bara eitt og ekki tvö og mátti meðal ann­ars sjá eitt þeirra þegar brúð­ur­inn tók af sér slæð­una. Sofia seg­ist ekki skamma sín fyrir for­tíð­ina. Hún hafi lært af þessu og vilji nú ein­beita sér að góð­gerð­ar­störfum og því að gera prins­inn að ham­ingju­samasta manni í heimi.

[caption id="attachment_31567" align="align­right" width="2560"] Kon­ung­legu brúð­hjónin heilsa upp á mann­fjöld­ann. Mynd: EPA[/caption]

Hefðbundin blaðamennska tekur sér frí vegna brúðkaups


Umræðan um kon­ungs­fjöl­skyld­una er nokkuð klofin í Svíþjóð. Annars vegar eru þeir sem telja hana mik­il­vægt sam­ein­ing­ar­tákn og nauð­syn­legan hluta af sögu lands og þjóðar, en hins vegar þeir sem skilja ekki hvaða hlut­verki hún gegnir í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi nútím­ans. Kon­ung­leg brúð­kaup ættu að vera kjörin tæki­færi til að ræða þetta hlut­verk enda leggst stór hluti útgjald­anna á skatt­greið­endur.

Hins vegar er eins og hefð­bundin blaða­mennska falli niður þessa daga og vikur og gagn­rýn­is­raddir fá lítið pláss. Rit­höf­und­ur­inn Jan Guillou orðar það þannig í viku­legum pistli að vit­ræn umræða fari í leyfi við kon­ung­leg brúð­kaup. Vissu­lega má sam­fagna brúð­hjón­unum enda völdu þau sér ekki for­eldra. Það breytir því þó ekki að það eina sem gerð­ist í Stokk­hólmi í gær var að kona gift­ist manni… unn­ust þau bæði vel og lengi, áttu börn og burur, grófu rætur og murur; köttur úti í mýri, setti upp á sér stýri, úti er ævin­týri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár