Samkeppniseftirlitið blessar samruna MP banka og Straums

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur heim­ilað sam­runa MP banka og Straums fjár­fest­ing­ar­banka. Eft­ir­lits­stofn­unin til­kynnti um ákvörðun sína í dag. Að mati eft­ir­lits­ins leiðir sam­run­inn ekki til mynd­unar eða styrk­ingar mark­aðs­ráð­andi stöðu bank­anna á mark­aði.

„Á þeim mörk­uðum sem sam­runa­að­ilar starfa eiga þeir m.a. í sam­keppni við þrjá alhliða banka sem eru hver um sig miklum mun stærri en sam­ein­aður banki sam­runa­að­ila. Veru­legur munur er því á fjár­hags­legum styrk­leika sam­ein­aðs banka og hvers þess­ara stóru banka. Að und­an­geng­inni rann­sókn er nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sú að ekki séu fyrir hendi vís­bend­ingar um að sam­run­inn leiði til mynd­unar eða styrk­ingar mark­aðs­ráð­andi stöðu sam­runa­að­ila á neinum mark­aði,“ segir Sam­keppn­is­eft­ir­litið.


Í gær var greint frá því að hlut­hafar bank­anna tveggja munu kjósa um sam­run­ann þann 22. júní næst­kom­andi. Stefnt er að því að nýr banki hefji starf­semi í haust undir nýju nafni. Samkvæmt sam­runa­á­ætl­un­inni verður skipti hluta­fjár í sam­ein­aða félag­inu þannig að núver­andi hlut­hafar MP banka munu eiga 58,66 pró­sent af virku hlutafé en núver­andi hlut­hafar Straums fjár­fest­inga­banka munu eign­ast 41,34 pró­sent af virku hlutafé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár