Stjórnir MP banka og Straums samþykkja samrunaáætlun

Stjórnir MP banka hf. og Straums fjár­fest­inga­banka hf. hafa sam­þykkt áætlun um sam­runa félag­anna og mið­ast sam­run­inn við 31. des­em­ber 2014. Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri frétta­til­kynn­ingu frá MP banka og Straumi.

Sam­run­inn er háður sam­þykki hlut­hafa­fundar beggja banka, Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Vonir standa til þess að nýr, sam­ein­aður banki hefji starf­semi með haustinu. Bankinn mun starfa undir nýju heiti sem verður kynnt síðar.

Skipting hluta­fjár í hinu sam­ein­aða félagi verður þannig að núver­andi hlut­hafar MP banka hf. munu eiga 58,66% af virku hlutafé en núver­andi hlut­hafar Straums fjár­fest­inga­banka hf. munu eign­ast 41,34% af virku hlutafé.

„Sam­ein­ing MP banka og Straums fjár­fest­inga­banka hefur aug­ljósan ávinn­ing í för með sér fyrir hlut­hafa beggja félaga. Sam­ein­aður banki verður með sterka stöðu á sviði fjár­fest­inga­banka­starf­semi og eigna­stýr­ingar og mun horfa til frek­ari sókn­ar­færa á þeim sviðum,“ segir í til­kynn­ing­unni frá bönk­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár