Notendur Spotify 75 milljónir: Hörð samkeppni framundan

Sænska tón­list­ar­veitan Spotify opin­ber­aði í dag upp­lýs­ingar um fjölda not­enda þjón­ust­unnar. Þeir eru orðnir 75 millj­ónir tals­ins og hefur fjölgað um 15 millj­ónir frá því fyr­ir­tækið til­kynnti síð­ast um not­enda­fjölda. Það var í jan­úar á þessu ári. Af 75 millj­ónum not­enda greiða um 20 millj­ónir mán­að­ar­legt gjald. Notendur geta valið um greiða mán­að­ar­lega tíu doll­ara gjald gegn því að losna við aug­lýs­ingar á milli laga.

Vöxtur Spotify hefur verið hraður. Í lok maí 2014 voru virkir not­endur 40 millj­ónir tals­ins og þar af greiddu tíu millj­ónir not­enda fyrir þjón­ust­una. Fjöldi þeirra sem greiða mán­að­ar­lega hefur í dag meira en tvö­fald­ast, að því er fyr­ir­tækið greinir frá á vef­svæði sínu í dag. Fjöldinn jafn­gildir því að einn nýr not­andi skráir sig á Spotify á þriggja sek­úndna fresti að með­al­tali.


Spotify greinir einnig frá því að um 3 millj­arðar doll­ara hafi á síð­ustu fimm árum verið greiddir í höf­und­ar­laun. Það eru nærri 400 millj­arðar króna miðað við gengi krón­unnar í dag.

Þúsund milljarða virði

Erlendir fjöl­miðlar, frétta­stofa Bloomberg þeirra á meðal, hafa í dag greint frá nýju verð­mati á Spotify. Sænska sím­fyr­ir­tækið Teli­a­Sonera eign­að­ist í dag 1,4 pró­senta hlut í Spotify og greiddi fyrir hlut­inn um 115 millj­ónir doll­ara. Samkvæmt þessum við­skiptum er virði Spotify nú um 8 millj­arðar Banda­ríkja­doll­arar, eða jafn­virði ríf­lega þús­und millj­arða króna.


Spotify vinnur nú að kappi við að fjölga not­endum og safna nýju hlutafé, áður en ný tón­list­ar­veita Apple, sem kall­ast ein­fald­lega Apple Music, verður opnuð fyrir not­endum. Báðar tón­list­ar­veit­urnar veita aðgang að meira en 30 millj­ónum laga fyrir tæpa tíu doll­ara á mán­uði. Þjónusta Apple fer í loftið 30. júní næst­kom­andi og er mesta sam­keppni sem Spotify hefur staðið frammi fyrir á þessum mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár