Seðlabankastjóri: Vextir hækka áfram til að bregðast við launaskriði

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri lagði á það áherslu á kynn­ing­ar­fundi vaxta­á­kvörð­unar í dag að pen­inga­stefnu­nefnd myndi áfram bregð­ast við verð­lags­hækk­unum og launa­skriði með hækkun stýri­vaxta. Vextir Seðla­bank­ans voru hækk­aðir í morgun um 0,5 pró­sentur, í takt við spár grein­ing­ar­deilda bank­anna. Helsti rök­stuðn­ingur pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans fyrir hækkun vaxta eru versn­andi verð­bólgu­horfur vegna launa­hækk­ana í tengslum við gerða kjara­samn­inga og boðuð útgjöld stjórn­valda til þess að liðka fyrir und­ir­ritun kjara­samn­inga.

Már og Arnór Sig­hvats­son, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, sátu fyrir svörum eftir fund­inn og voru meðal ann­ars spurðir að því hvað þyrfti að ger­ast á næstu mán­uðum svo pen­inga­stefnu­nefnd myndi ekki hækka stýri­vexti enn frekar. Í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar er það sagt virð­ast „ein­sýnt að hækka þurfi vexti umtals­vert í ágúst og frekar á kom­andi miss­erum eigi að tryggja stöðugt verð­lag til lengri tíma litið“.


Már sagði stöðu mála í dag slíka að litlar líkur væru á að vextir myndu ekki hækka frekar. Það muni þó alltaf ráð­ast af fram­vind­unni. „Það er mik­il­vægt að allir aðilar máls átti sig á því að eftir því sem þetta fer meira út í verð­lagi, því meira hækkum við vexti. Því meira sem launa­skrið verður, því meira hækkum við vexti,“ sagði Már. Hann bætti því við að ef verð­bólga myndi ekki aukast á næst­unni þá væri sögu­legt sam­band ekki lengur að halda.

Peningaprentvélin í bankanum virkar

Már og Arnór voru einnig spurðir um þá fjár­muni sem renna til rík­is­ins í formi stöð­ug­leika­fram­lags eða stöð­ug­leika­skatts, í tengslum við losun gjald­eyr­is­hafta. Már sagði alla hafa tekið undir það sjón­ar­mið að ekki megi ráð­stafa þeim fjár­munum sem fást þannig að það raski stöð­ug­leika. „Ef krón­urnar eru not­aðar og dælt út í hag­kerfið þá virkjar það pen­inga­magn sem ekki er virkt núna,“ sagði seðla­banka­stjóri. Það myndi að öllu jöfnu rýra þær krónur sem nú eru í umferð. Allt eins gæti Seðla­bank­inn dælt út pen­ingum og aukið pen­inga­magn í umferð. „Við erum með pen­inga­prent­vél hérna í bank­anum og hún prentar ansi hratt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár