Stýrivextir hækkaðir um 0,5 prósentur

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur hækkað vexti bank­ans um 0,5 pró­sentur. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lánum, verða því 5 pró­sent. Ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar var birt í morgun. Hún er í takt við spár grein­ing­ar­að­ila en grein­ing­ar­deildir bæði Arion banka og íslands­banka spáðu 50 punkta hækkun vaxta.

Í til­kynn­ingu nefnd­ar­innar segir að þótt verð­bólga sé enn lítil hafi verð­bólgu­horfur versnað veru­lega og horfur á að verð­bólga verði meiri en bank­inn spáði í maí. Það megi rekja til umsamdra launa­hækk­ana. Þá feli aðgerðir stjórn­valda sem eiga að liðka fyrir kjara­samn­ingum aukin rík­is­út­gjöld og slökun í aðhaldi í rík­is­fjár­málum.

Í nið­ur­lagi til­kynn­ing­ar­innar segir nefndin það virð­ast ein­sýnt að hækka þurfi vexti umtals­vert í ágúst og frekar á kom­andi miss­erum, eigi að tryggja stöðugt verð­lag til lengri tíma litið.

Tilkynning peningastefnunefndar í heild:


Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bank­ans um 0,5 pró­sentur. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lánum, verða því 5%.


Samkvæmt nýbirtum þjóð­hags­reikn­ingum nam hag­vöxtur 2,9% á fyrsta fjórð­ungi árs­ins, neysla og fjár­fest­ing juk­ust um 6,4% og þjóð­ar­út­gjöld alls um tæp­lega 10%. Ásamt kröft­ugum bata á vinnu­mark­aði benda þessar tölur til að vöxtur efna­hags­um­svifa sé áþekkur maí­spá Seðla­bank­ans.


Þótt verð­bólga sé enn lítil hafa verð­bólgu­horfur versnað veru­lega miðað við síð­ustu spá Seðla­bank­ans og verð­bólgu­vænt­ingar hafa áfram hækkað. Nú eru horfur á að verð­bólga verði meiri en bank­inn spáði í maí, sem rekja má til þess að þegar hefur verið samið um mun meiri launa­hækk­anir en gert var ráð fyrir í spá bank­ans.


Til þess að liðka fyrir kjara­samn­ingum hefur rík­is­stjórnin kynnt aðgerðir sem munu auka rík­is­út­gjöld og draga úr skatt­tekjum. Aðgerð­irnar hafa enn sem komið er ekki verið fjár­magn­aðar og fela því að öðru óbreyttu í sér slökun á aðhaldi í rík­is­fjár­málum. Einnig hafa verið kynntar aðgerðir stjórn­valda er miða að því að búa í hag­inn fyrir losun fjár­magns­hafta. Sumar þeirra munu afla rík­is­sjóði tekna sem mik­il­vægt er að verði ráð­stafað þannig að það verði ekki til þess að auka enn frekar á spennu í þjóð­ar­bú­skapnum með því að virkja pen­inga­magn sem til þessa hefur verið óvirkt. Pen­inga­stefnu­nefndin mun fylgj­ast grannt með fram­vind­unni og grípa til við­eig­andi aðgerða til mót­vægis ef þörf krefur.


Í yfir­lýs­ingum nefnd­ar­innar und­an­farið hefur ítrekað verið bent á að miklar launa­hækk­anir og sterkur vöxtur eft­ir­spurnar gætu grafið undan nýfengnum verð­stöð­ug­leika og valdið því að hækka yrði vexti á ný. Horfur um þróun launa­kostn­aðar, hækkun verð­bólgu­vænt­inga og vís­bend­ingar um öfl­ugan vöxt eft­ir­spurnar valda því að óhjá­kvæmi­legt er að bregð­ast nú þegar við versn­andi verð­bólgu­horfum þrátt fyrir að verð­bólga sé enn undir mark­miði. Enn fremur virð­ist ein­sýnt að hækka þurfi vexti umtals­vert í ágúst og frekar á kom­andi miss­erum eigi að tryggja stöðugt verð­lag til lengri tíma litið.


Vextir Seðla­banka Íslands verða sam­kvæmt þessu sem hér segir:
Daglán: 6,75%
7 daga veð­lán: 5,75%
7 daga bundin inn­lán: 5,00%
Við­skipta­reikn­ingar: 4,75%


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár