Gamalt handrit að Star Wars staðfestir að Han Solo skaut fyrst

Gamalt hand­rit að Stjörnu­stríðs­myndum George Lucas, sem kom nýlega í leit­irnar, svarar einni stærstu ósvör­uðu spurn­ingu þrí­leiks­ins; um hvor hafi átt að skjóta fyrst, Han Solo eða Greedo. Frétta­mið­ill­inn TIME greinir frá þessu áhuga­verða máli.

Í fyrstu Stjörnu­stríðs­mynd­inni, Star Wars Episode IV: A New Hope, sem frum­sýnd var árið 1977, var smygl­ar­inn Han Solo, í túlkun Harrison Ford, nýbú­inn að gera samn­ing við Loga Geim­gengil og Obi-Wan Kenobi í bænum alræmda Mos Eisley á Tatooine, heima­plánetu Loga, um að flytja þá, ásamt C3PO og R2D2, á Fálkanum til plánet­unnar Alderaan, þegar hausa­veið­ar­inn Greedo verður á vegi hans. Greedo var þar í erinda­gjörðum á vegum Jabba the Hutt, glæpa­manns sem átti ýmis­legt sök­ótt við Solo eftir mis­heppn­aða smygl­ferð.

Í upp­runa­legu Star Wars mynd­inni, sem frum­sýnd var árið 1977, ræð­ast tví­menn­ing­arnir stutt­lega við í bás á bar í Mos Eisley eða þar til Han Solo skýtur hausa­veiðar­ann fyr­ir­vara­laust undir borð sem þeir sátu við.

Þannig var sagan í tutt­ugu ár, eða allt þar til árið 1997 þegar George Lucas ákvað að gefa Star Wars mynd­irnar aftur út með staf­rænum breyt­ingum, sem voru flestar ef ekki allar ekki til bóta. Á meðal þess sem Lucas breytti var áður­nefnt stefnu­mót Solo og Greedo, og í „upp­færðu“ útgáf­unni skýtur Greedo fyrst að Solo, áður en smygl­ar­inn fellir hausa­veiðar­ann. Með breyt­ing­unni var kaldrifj­uðum morð­ingja breytt í mann sem getur þakkað ótrú­legri óhittni alræmds hausa­veið­ara, af eins met­ers færi, líf sitt.

Umrædd breyt­ing var for­dæmd harð­lega á meðal aðdáa­enda Stjörnu­stríðs­mynd­anna, og þá ekki síst á meðal dyggra stuðn­ings­manna Han Solo. Samkvæmt fyrr­greindu hand­riti að upp­runa­lega þrí­leiknum, sem fannst fyrir til­viljun í vís­inda­skáld­sagna­safni bóka­safns í Kanada nýverið, er öllum vafa um atvikið eytt. Han Solo var fyrri til að taka í gikk­inn. Lucasfilm, sem á rétt­inn að Star Wars vöru­merk­inu, hefur sagt að um end­ur­gerð af gömlu hand­riti að fyrstu Stjörnu­stríðs­mynd­inni að ræða, sem aðdá­andi mynd­anna hafi trú­lega skrifað.

Hand­ritið, sem kom nýlega fyrir sjónir almenn­ings, er merkt sem fjórða upp­kast og dag­sett 15. mars árið 1976. Þar heitir fyrsta Stjörnu­stríðs­myndin: Star Wars: Saga I, og Luke Skywalker (Logi Geim­geng­ill) heitir því skugga­lega nafni Luke Star­k­iller.

Margir aðdá­endur Stjörnu­stríðs­mynd­anna fagna því að nú hafi loks verið stað­fest að Han Solo skaut Greedo með köldu blóði, en frétt­irnar eru sömu­leiðis síst til þess fallnar að bæta laskað sam­band milli skap­ara mynd­anna og aðdá­enda þeirra.

Atriðið fræga og umdeilda, um aðdrag­anda og sam­skipti Han Solo og Greedo, má sjá hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár