Nýtt sjúkrahús í Stokkhólmi fram úr nánast öllum áætlunum

Nýja Karol­inska sjúkra­húsið (NKS) er eitt stærsta og metn­að­ar­fyllsta bygg­ing­ar­verk­efni Sví­þjóðar og lík­lega Norð­ur­land­anna allra. Fyr­ir­mynd­irnar eru bestu sjúkra­hús í heimi sem sam­eina allt í senn öfl­ugt vís­inda­starf, færasta starfs­fólkið og erf­ið­ustu til­fellin. Á heima­síðu verk­efn­is­ins er löng lýs­ing á því hvernig hags­munir sjúk­ling­anna eru hafðir að leið­ar­ljósi við alla hönnun og skipu­lag. Til dæmis verða allar sjúkra­stofur ein­stak­lings­her­bergi þar sem hver sjúk­lingur hefur aðgang að kló­setti og sturtu auk þess sem auka­rúm verður í her­bergj­unum fyrir ætt­ingja.

Vinnu­ferlar eru hann­aðir með það að leið­ar­ljósi að minnka flutn­ing á sjúk­lingum milli deilda og ávallt er hugað að umhverfis- og orku­sjón­ar­miðum. Í stuttu máli verður NKS eitt af flott­ustu sjúkra­húsum í heimi – á blaði að minnsta kosti. Ýmislegt bendir hins vegar til þess að lagt hafi verið af stað með áætlun sem var gjör­sam­lega óraun­hæf, hvort sem litið er til vænt­an­legrar starf­semi eða kostn­aðar.

Stokkhólmur stækkar og álagið á heilbrigðiskerfið eykst


Samkvæmt áætl­unum er gert ráð fyrir því að íbúum í Stokk­hólmi fjölgi um 350 þús­und til árs­ins 2020. Það segir sig sjálft að skipu­leggja þarf alla opin­bera þjón­ustu í kringum slíka fjölgun afar vel, sér­stak­lega í ljósi þess að fjölg­unin er mest í hópi barna og eldri borg­ara. Í Stokk­hólmi var því ákveðið fyrir nokkrum árum að verja auka­lega 42 millj­örðum sænskra króna (665 millj­arðar ISK) til þess að mæta auknu álagi á heil­bigð­is­kerfið. NKS er aðeins hluti af þessu verk­efni sem felur í sér end­ur­bætur á flestum sjúkra­húsum borg­ar­innar auk nýrra heilsu­gæslu­stöðva og stór­auk­innar áherslu á heim­il­is­lækna. Gert er ráð fyrir 870 nýjum sjúkra­rýmum sem duga til að sinna 52 þús­und nýjum til­fellum.

Ákvörð­unin um NKS var tekin af stjórn­mála­mönnum sem um leið end­ur­hönn­uðu skipu­lag heil­brigð­is­þjón­ust­unar í Stokk­hólmi. Nýi spít­al­inn á að vera hátækni­sjúkra­hús sem sinnir allra flókn­ustu til­fell­unum með færasta fólk­inu og bestu tækj­unum. Þegar önnur sjúkra­hús eða heilsu­gæslur fá til sín sjúk­linga með flókin vanda­mál ætti því að senda þá áfram til NKS.

Upp­runa­lega planið var þannig að eng­inn gæti gengið beint inn af göt­unni á NKS, þangað kæmu aðeins sjúk­lingar sem vísað hefði verið áfram eða væru þegar í með­ferð á spít­al­anum. Vanda­málið er hins vegar það að önnur sjúkra­hús í Stokk­hólmi hafa afskap­lega lít­inn áhuga á að senda frá sér sjúk­linga. Til að ein­falda mynd­ina má segja að í borg­inni ríki sam­keppni milli sjúkra­húsa og fátt bendir til þess að þau vilji leyfa stjórn­mála­mönnum að neyða sig til að tapa fyrir NKS.

Áætlun um fækkun starfsmanna á NKS er óraunhæf


Fjöl­miðlar í Svíþjóð fylgj­ast eðli­lega vel með fram­kvæmdum við nýja spít­al­ann og nú síð­ast hefur Sænska dag­blaðið lagst í mikla rann­sókn­ar­vinnu þar sem eitt og annað kom í ljós. Til að mynda virð­ast áætl­anir um starfs­manna- og sjúk­linga­fjölda vera gjör­sam­lega óraun­hæfar og lík­legt að sá sparn­aður sem átti að nást í gegn með færri starfs­mönnum gufi upp.

Í dag starfa um 16 þús­und manns hjá Karol­inska sjúkra­hús­inu, helm­ing­ur­inn í Solna þar sem nýtt sjúkra­hús rís en hinn helm­ing­ur­inn í Huddinge. Gert var ráð fyrir því að um 80 pró­sent af starfs­mönn­unum í Solna flytt­ust yfir á nýja spít­al­ann en hinir færu á aðrar sjúkra­stofn­anir. Samkvæmt því sem komið hefur fram í fjöl­miðlum er gert ráð fyrir að allt að 30 pró­sent fleira starfs­fólk þurfi á sjúkra­hús sem er ein­göngu með ein­stak­lings­stofur. Þessi tala er þó mjög á reiki og for­svars­menn nýja spít­al­ans eru vissir um að bættir verk­ferlar muni draga úr þörf­inni á fjölda starfs­manna. Það gæti reyndar verið óhjá­kvæmi­legt að fækka starfs­mönnum þar sem að nýju bygg­ing­arnar eru minni en þær gömlu og því ein­fald­lega ekki pláss fyrir sama fjölda sjúk­linga og starfs­manna og spít­al­inn sinnir í dag.

Hins vegar hefur ekki feng­ist svar við því hvar ná á í allt það sér­hæfða starfs­fólk sem þarf til að sinna stör­f­unum á nýja hátækni­sjúkra­hús­inu. Í dag er staðan þannig að ekki er hægt að hafa öll sjúkra­rými í Stokk­hólmi opin allt árið vegna skorts á starfs­fólki. Í bréfi til stjórn­valda segja starfs­menn að útlitið sé enn verra en í fyrra og að yfir sum­ar­mán­uð­ina í ár séu 500 stöður ómann­aðar. Bæta þarf þjálfun og menntun starfs­manna til að fjölga hæfu fólki en þar fyrir utan eru líkur á því að NKS þurfi að yfir­bjóða önnur sjúkra­hús til að laða til sín besta fólkið. Fyrir utan kostn­að­inn hefur það líka þær afleið­ingar að önnur sjúkra­hús missa sína fær­ustu starfs­menn.

[caption id="attachment_30820" align="align­right" width="795"] Talið er að fram­kvæmdir við nýja Karol­inska sjúkra­húsið í Stokk­hólmi fari allt að 150 millj­örðum króna fram úr kostn­að­ar­á­ætl­unum. Mynd: EPA[/caption]

Tugi milljarða fram úr áætlun


Fram­kvæmdir við NKS hófust árið 2010 þótt und­ir­bún­ings­vinna og nið­ur­rif hafi í raun byrjað fyrr. Samkvæmt fyrstu plönum stóð til að starf­semi hæf­ist á nýjum spít­ala á næsta ári en nú er ljóst að verk­inu seinkar um að minnsta kosti tvö ár. Gert er ráð fyrir fyrstu sjúk­ling­unum inn í húsið haustið 2016 en spít­al­inn á að vera til­bú­inn í mars 2018.

Ástæðan fyrir sein­kun­inni er að aðeins eitt til­boð barst í fram­kvæmd­ina á sínum tíma sem þýddi að þeir sum buðu í verkið gátu í raun hagað áætl­ana­gerð eins og þeir vildu. Það er bygg­ing­aris­inn Skanska sem sinnir fram­kvæmdum í sam­starfi við breska fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tækið Innisfree sem hefur reyndar verið kallað vog­un­ar­sjóður. Innisfree tekur reyndar ekki beinan þátt í verk­inu heldur stofn­aði það tvö skúffu­fyr­ir­tæki í Lúx­emburg af skatta­á­stæðum. Samkvæmt samn­ingum sjá þessi fyr­ir­tæki ekki bara um að byggja spít­al­ann heldur við­hald og rekstur næstu árin.

Þegar samn­ingar voru und­ir­rit­aðir var áætl­aður kostn­aður við bygg­ingu NKS 14,5 millj­arðar sænskra (230 millj­arðar ISK) en sam­kvæmt frétt Sænska dag­blaðs­ins frá í byrjun maí verður reikn­ing­ur­inn að minnsta kosti tíu millj­örðum SEK hærri. Þetta er hins vegar aðeins brot af kostn­að­inum fram til árs­ins 2040 sam­kvæmt fréttum blaðs­ins. Reyndar hefur ekki gengið vel að fá nákvæmar upp­lýs­ingar um kostn­að­inn og þegar fyrst var leitað eftir upp­lýs­ingum sögðu stjórn­völd að kostn­að­ur­inn yrði um 52 millj­arðar SEK (824 millj­arðar ISK). Leynileg skjöl sem blaðið komst yfir sýndu hins vegar að kostn­að­ur­inn verður nær 61,4 millj­örðum SEK (973 millj­arðar ISK) eða um 150 millj­örðum íslenskra króna hærri en til stóð.

Eftir upp­ljóstrun blaðs­ins hefur banda­lag hægri flokk­anna sam­þykkt að láta fara fram óháða úttekt á fram­kvæmd­inni. Banda­lagið hefur ekki meiri­hluta á bak við sig í Stokk­hólmi og eftir kröfu frá rauð­grænu flokk­unum í stjórn­ar­and­stöðu sam­þykktu þeir að fá utan­að­kom­andi sér­fræð­inga til verks­ins.

Hægt að draga lærdóm frá Stokkhólmi


Enginn efast um þörf­ina á því að bæta heil­brigð­is­þjón­ustu í Stokk­hólmi í ljósi fjölg­unar íbúa. Spurn­ingin er hins vegar hvort að ákvörð­unin um NKS hafi verið tekin með hags­muni fjöld­ans að leið­ar­ljósi, eða hvort til­hugs­unin um sjúkra­hús á heims­mæli­kvarða hafi villt mönnum sýn.

Það sem mik­il­væg­ast er að hafa í huga er að fram­kvæmdir við hátækni­sjúkra­hús geta mjög auð­veld­lega farið fleiri millj­arða fram úr áætlun og að plön sem gerð eru við upp­haf fram­kvæmda eru jafn­vel orðin úrelt nokkrum árum síðar vegna fólks­fjölg­unar.

Á Íslandi hafa margir sagt að þegar hafi verið ráð­ist í kostn­að­ar­sama hönnun vegna hátækni­sjúkra­húss­ins sem til stendur að reisa við Hring­braut og að of seint sé að breyta plön­unum. Reynslan frá NKS ætti hins vegar að gera mönnum ljóst að það er enn dýr­ara að fara af stað með vonda hug­mynd, en að end­ur­skoða áætl­anir sem þegar hafa verið gerðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár