Blóðugur slagur kvikmyndarisanna um James Bond framundan

Nýjasta kvik­myndin um ævin­týri James Bond, Spectre, verður frum­sýnd á heims­vísu í nóv­em­ber­mán­uði næst­kom­andi. Bíó­myndin verður sú 24. í röð­inni, sem er í sjálfu sér ekki í frá­sögu fær­andi, nema fyrir þær sakir að á sama tíma og hún verður frum­sýnd fellur úr gildi samn­ingur Sony Pictures við Metro Goldwyn Mayer frá árinu 2006 um dreif­ingu kvik­mynd­anna um helsta njó­sn­ara hennar hátignar.

Sony Pictures leggur allt kapp á að ná nýjum samn­ingi við MGM um dreif­ingu James Bond mynd­anna, og þá sér­stak­lega eftir erfitt tíma­bil frá því í nóv­em­ber­mán­uði síð­ast­liðnum eða síðan tölvu­þrjótar brut­ust inn í tölvu­kerfi kvik­mynda­fyr­ir­tæk­is­ins í tengslum við fyr­ir­hug­aða frum­sýn­ingu á kvik­mynd­inni The Interview. Eins og flestir eflaust vita er gert stólpa­grín að Kin Jung-Un, leið­toga Norður-Kóreu, í kvik­mynd­inni, en talið er að tölvu­árásin á Sony hafi verið fyrir til­stuðlan yfir­valda í Norður-Kóreu.

„Auðvitað munum við bjóða í dreif­inga­rétt­inn, en það munu líka allir aðrir gera,“ segir Tom Rothman, stjórn­ar­for­maður Sony Pictures, í sam­tali við frétta­mið­il­inn Variety. „Stað­reyndin er sú að Sony hefur gengið sér­lega vel að vinna með Bond.“

Gengið vel síðustu ár eftir mögur ár á undan


Stjórn­ar­for­maður Sony hefur nokkuð til síns máls. Eftir heldur mag­urt tíma­bil árin 1995 til 2002, eða á meðan hinn til­þrifa­litli Pierce Brosnan gegndi hlut­verki Bond, hefur vöru­merkið aftur risið til hæstu hæða, eða allt frá því að Sony tók við. Síðasta James Bond myndin, sem skart­aði Pierce Brosnan í aðal­hlut­verk­inu, Die Another Day, þén­aði til að mynda 431 milljón banda­ríkja­dali árið 2002. Casino Royale, sem frum­sýnd var árið 2006, með Daniel Craig í broddi fylk­ingar, skilað um 600 millj­ónum banda­ríkja­dölum í kass­ann. Quantum of Solace, sem var frum­sýnd árið 2008, þén­aði litlu minna eða hátt í 590 millj­ónum dala.

Fyrir utan það að síð­ustu bíó­mynd­irnar um breska njósn­ar­ann hafa verið mun betri en fyr­ir­renn­arar þeirra, að minnsta kosti síð­ast­liðin ár, hefur Sony þótt takast ein­stak­lega vel upp við mark­aðs­setn­ingu á þeim.

[caption id="attachment_30782" align="align­right" width="734"] Aðdá­endur kvik­mynd­anna um James Bond bíða spenntir eftir að berja nýj­ustu mynd­ina um njósn­ar­ann augum.[/caption]

Síðasta bíó­myndin um breska njósn­ar­ann 007 er hins vegar aðsókn­ar­mesta Bond kvik­mynd sög­unnar. Skyfall skil­aði hvorki meira né minna en 1,1 millj­arði banda­ríkja­dala á heims­vísu í kass­ann. Reiknað er með að nýjasta myndin um James Bond, Spectre, sem er sömu­leiðis í leik­stjórn Sam Mendes, muni sömu­leiðis raka inn seðl­unum en spár gera ráð fyrir að myndin muni líka brjóta eins millj­arða múr­inn.

Talið líklegast að Warner Bros. hreppi hnossið


Hvort Sony Pictures ná að tryggja sér áfram­hald­andi sam­starf við Bond skal ósagt látið. Í Hollywood er hins vegar slúðrað um að Warner Bros. kvik­mynda­fyr­ir­tækið sé lík­leg­ast til að hreppa hnossið. Þar er talin spila inn í vin­átta Gary Barber, for­stjóra MGM, og Kevin Tsu­ji­hara, stjórn­ar­for­manns Warner Bros. Þá hafa kvik­mynda­verin unnið sam­eig­in­lega að stórum verk­efnum und­an­farið, og nægir þar að nefna þrí­leik­inn um Hobbit­ann, sem rak­aði inn þremur millj­örðum banda­ríkja­dala á heims­vísu.

Missi Sony Pictures dreif­inga­rétt­inn gæti kvik­mynda­fyr­ir­tækið verið í vand­ræðum. Síðasta kvik­myndin um Spider-Man stóðst engan veg­inn vænt­ingar fyr­ir­tæk­is­ins um miða­sölu og fékk slæma útreið hjá kvik­mynda­gagn­rýnendum. Vöru­merkið um Lóa er því í vand­ræðum, en Sony hefur líka alltaf getað stólað sig á væna fúlgu í tengslum við James Bond. Það gæti hins vegar breyst í nóv­em­ber, það er að segja ef Bond fer annað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár