Isavia: Besta boðið valið og gögnum ekki eytt

Markmið for­vals Isavia á versl­unum og veit­inga­stöðum í Flugs­stöð Leifs Eiríks­sonar var að hámarka tekjur af versl­un­ar­svæð­inu. Að mati val­nefndar voru önnur til­boð mun betri en til­boð Kaffi­társ og var fyr­ir­tækið þess vegna ekki valið. Þetta segir í áliti Isavia vegna greinar Aðal­heiðar Héð­ins­dóttur, for­stjóra Kaffi­társ, í Frétta­blað­inu í dag. Kjarninn fjall­aði um grein­ina fyrr í dag.

Þá segir í athuga­semdum Isavia að til­boðs­gögnum hafi ekki verið eytt, eins og sagði í grein Aðal­heiðar. Úrskurð­ar­nefnd upp­lýs­inga­mála hafi enn­fremur fengið öll for­vals­gögn sem til voru í fórum Isavia. „Samkvæmt skil­málum for­vals­ins voru fjár­hags­leg gögn þeirra sem náðu ekki til­skil­inni ein­kunn í tækni­legum hluta síð­ari stigs­ins ekki opnuð og þau sem og önnur gögn þess­ara aðila end­ur­send. Þessi gögn eru því ekki lengur í vörslu félags­ins. Þá voru dæmi um að umsækj­endur ósk­uðu eftir að gögn væru end­ur­send. Isavia eyddi því ekki gögnum sem við komu til­boðum þátt­tak­enda.“


Athuga­semdir frá Isavia má lesa í heild hér að neðan.

Vegna greinar Aðalheiðar Héðinsdóttur um forval í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Aðal­heiður Héð­ins­dóttir for­stjóri Kaffi­társ skrifar grein í Frétta­blaðið 4. júní um for­val vegna útleigu á versl­unar- og veit­inga­rými í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar. Efni greinar Aðal­heiðar gefur til­efni til leið­rétt­inga á helstu rang­færslum um fram­kvæmd for­vals­ins.


Röng túlkun á nið­ur­stöðu úrskurð­ar­nefndar upp­lýs­inga­mála


Í grein­inni vísar Aðal­heiður til þess að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að for­valið hafi verið ógagn­sætt, þetta er rangt. Úrskurð­ar­nefndin fjallar ein­ungis um hvort fyrir hendi séu gögn sem beri að veita aðgang að. Nefndin lagði ekki mat á for­vals­ferlið sjálft enda er það ekki hlut­verk hennar að meta ferlið eða for­sendur vals­ins.


Viðkvæm við­skipta­gögn


Úrskurð­ar­nefnd upp­lýs­inga­mála komst að því í úrskurðum sínum að Isavia bæri að afhenda ákveðin gögn sem félagið hafði hafnað að afhenda enda féllu þær undir und­an­þágu­heim­ildir upp­lýs­inga­laga auk þess sem félagið taldi að 10. gr. sam­keppn­islaga bein­línis bann­aði afhend­ingu þeirra. Félagið taldi að um mjög við­kvæm gögn væri að ræða sem vörð­uðu við­skipta­hags­muni þeirra lög­að­ila sem gögnin stöf­uðu frá og gæta bæri trún­aðar um. Á meðal gagna eru ítar­legar upp­lýs­ingar þeirra sem tóku þátt m.a. við­skipta­á­ætl­anir, mark­aðs­á­ætl­anir, skulda- og eigna­staða, álagn­ing­ar­stefna, samn­ingar við birgja o.fl. sem lögð voru til grund­vallar við mat val­nefnd­ar­innar á þátt­tak­endum sem mega ekki kom­ast til sam­keppn­is­að­ila. Þá gerir Isavia veru­legar athuga­semdir við stjórn­sýslu­með­ferð máls­ins hjá úrskurð­ar­nefnd upp­lýs­inga­mála og telur að nefndin hafi brotið veiga­mikil ákvæði stjórn­sýslu­lögum við með­ferð máls­ins. Auk þess er veru­legt ósam­ræmi milli ákvörð­unar nefnd­ar­innar um gögn sem beri að afhenda og önnur sem leynt skuli fara. Þannig séu dæmi um að gögn sem séu með sam­bæri­legar upp­lýs­ingar skuli afhent og ekki afhent. Í ljósi þessa óskaði Isavia eftir að nefndin end­ur­skoð­aði ákvörðun sína eða féllist á frestun rétt­ar­á­hrifa svo bera mætti úrskurð­inn undir dóm­stóla.


Til­boðs­gögnum ekki eytt


Eins og fram hefur komið var for­valið í tveimur stigum. Samkvæmt skil­málum for­vals­ins voru fjár­hags­leg gögn þeirra sem náðu ekki til­skil­inni ein­kunn í tækni­legum hluta síð­ari stigs­ins ekki opnuð og þau sem og önnur gögn þess­ara aðila end­ur­send. Þessi gögn eru því ekki lengur í vörslu félags­ins. Þá voru dæmi um að umsækj­endur ósk­uðu eftir að gögn væru end­ur­send. Isavia eyddi því ekki gögnum sem við komu til­boðum þátt­tak­enda.


Úrskurð­ar­nefnd upp­lýs­inga­mála fékk öll for­vals­gögn í hendur sem til voru í fórum Isavia þ.m.t. þær umsóknir sem komust jafn langt og Kaffitár og voru að keppa við það fyr­ir­tæki í sama flokki. Að öðru leyti sner­ust sam­skiptin við nefnd­ina um á hvaða formi og með hvaða hætti gögnin bæri að afhenda enda lá fyrir að nefndin ætl­aði að senda þau úr landi.


Fund­ar­gerðir hafa verið afhentar


Grein­ar­höf­undur heldur því fram að fund­ar­gerðir hafi ekki verið til. Það er rangt, fund­ar­gerðir eru til og voru afhentar full­trúum Kaffi­társ þegar þess var óskað. Þrátt fyrir að vinnu­skjöl séu almennt und­an­þegin upp­lýs­inga­rétti voru mats­blöð val­nefnd­ar­manna einnig afhent. Frekari gögn sem varða mat val­nefnda­manna sjálfra sem lagt var til grund­vallar við ein­kunna­gjöf fyr­ir­tækja liggja ekki fyrir hjá Isavia en um for­sendur mats­ins voru þeir bundnir af fyr­ir­mælum í for­vals­gögn­unum.


Valferli að erlendri fyr­ir­mynd


Forval vegna leigu á hús­næði fyrir versl­unar- og veit­inga­rekstur í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar á Kefla­vík­ur­flug­velli fór fram sam­kvæmt aðferða­fræði sem útli­stuð var í for­vals­skil­málum og þátt­tak­endur sam­þykktu þegar þeir skil­uðu inn til­boði. Skilað var inn tveimur til­boðum, tækni­legu og fjár­hags­legu. Ferlið er að erlendri fyr­ir­mynd og fékk Isavia í lið með sér erlenda ráð­gjafa sem hafa sér­hæft sig í val­ferli fyrir versl­unar- og veit­inga­rekstur í flug­stöðvum.


Í for­vali því sem hér um ræðir sendu fyr­ir­tæki inn ýmis­konar gögn, eins og nánar var kveðið á um í for­vals­gögnum. Annars vegar var um að ræða upp­lýs­ingar um fyr­ir­tækin sjálf, starf­semi þeirra og fjár­hags­lega hags­muni, hins vegar var um að ræða til­boð fyr­ir­tækj­anna sem fólu í sér ýmsar upp­lýs­ingar, s.s. við­skipta­á­ætlun og fjár­hags­legt til­boð, sem verða að telj­ast til við­kvæmra fjár­hags­legra hags­muna. Um er að ræða mun víð­tæk­ari gögn en þeirra sem t.d. er kraf­ist í venju­legum útboðs­málum.


Skilaði fyrir loka­frest


Loka­frestur til að skila inn til­boðum var 25. júní 2014 klukkan 16:00 og var ekki tekið við til­boðum eftir þann tíma. Þar sem grein­ar­höf­undur tekur sér­stak­lega fram nafn eins til­boðs­gef­anda og gerir með­höndlun til­boðs við­kom­andi tor­tryggi­legt er rétt að geta þess að við­kom­andi aðili skil­aði sínu til­boði inn fyrst allra fyr­ir­tækja og viku fyrir loka­frest. Við­kom­andi bjóð­andi setti fram tölur fyrir boð í versl­anir- og veit­ingar saman í eitt boð. Isavia bað fyr­ir­tækið um að skilja þarna á milli og senda til­boðið aftur sund­ur­liðað. Af þeirri ástæðu er til skjal dag­sett 11. júlí frá þeim.


Besta boðið valið


Markmið for­vals­ins á versl­unum og veit­inga­stöðum var að hámarka tekjur af versl­un­ar­svæð­inu. Tekjur þessar eru mjög mik­il­vægar svo hægt sé að halda áfram áformum um upp­bygg­ingu Kefla­vík­ur­flug­vallar. Upp­bygg­ingu sem er nauð­syn­leg svo hægt sé að taka við þeirri aukn­ingu ferða­manna sem fyr­ir­séð er næstu árin. Við val á rekstr­ar­að­ilum var horft til þess að hámarka tekj­urnar um leið og valdir væru aðilar sem veita sem besta þjón­ustu. Að mati val­nefndar sem starf­aði í sam­ræmi við skil­mála for­vals­ins voru önnur til­boð sem bár­ust mun betri en til­boð Kaffi­társ og því var það ekki valið í sam­ræmi við ákvæði skil­mála for­vals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár