Segir Isavia tvísaga – Forvalsgögnum var eytt

Stjórn Isavia er stað­ráðin í að koma í veg fyrir að þátt­tak­endur í sam­keppn­inni um versl­un­ar­pláss í Flugs­stöð Leifs Eiríks­sonar geti kannað hvort ann­ar­legar og ómál­efna­legar ástæður hafi ráðið vali á fyr­ir­tækjum sem fá versl­un­ar­pláss. Þetta segir Aðal­heiður Héð­ins­dóttir, for­stjóri Kaffi­társ, í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag.

Í mars 2014 efndi Isavia til svo­kall­aðs for­vals til samn­inga­við­ræðna vegna aðstöðu til versl­unar- og veit­inga­rekst­urs á Kefla­vík­ur­flug­velli, en samn­ings­tími núver­andi rekstr­ar­að­ila í Leifs­stöð rann út um ára­mótin. For­vr­a­lið var aug­lýst á evr­ópska efna­hags­svæð­inu. Í kjöl­far nið­ur­stöðu for­vals­ins, þar sem Kaffitár hélt ekki plássi sínu í Leifs­stöð, kærði Kaffitár nið­ur­stöður til Úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál og óskaði eftir upp­lýs­ingum um ein­kunna­blöð sem notuð voru við ákvörðun Isavia um hver fengi versl­un­ar­pláss.


„Ætla mætti að það stæði ekki í stjórn Isavia að upp­lýsa hvaða fyr­ir­tæki tóku þátt í sam­keppn­inni, en það er röng ályktun. Í fyrstu bar fyr­ir­tækið fyrir sig trún­aði við þátt­töku­fyr­ir­tækin og mein­tan álits­hnekki þeirra sem urðu undir í sam­keppn­inni. Þá bar Isavia fyrir sig að lík­lega tækju fleiri fyr­ir­tæki þátt í slíkri sam­keppni ef leyndi hvíldi yfir sam­keppn­is­ferl­inu. Úrskurð­ar­nefndin gaf lítið fyrir þessi rök og krafð­ist þess að fá nafna­list­ann afhentan í trún­aði. Þá „upp­lýsti“ Isavia að gögn­unum hefur verið eytt, nafna­list­anum og öllum for­vals­gögnum sem inn­héldu m.a. upp­lýs­ingar um fyr­ir­tækin, vöru­fram­boð, verð- og mark­aðs­stefnu!“ skrifar Aðal­heiður.


Hún bendir á að úrskurð­ar­nefnd hafi séð ástæðu til að minna Isavia á lög um opin­bera skjala­söfnun. „Sú spurn­ing verður áleitin hvort Isavia eyddi gögn­unum áður en nið­ur­staða sam­keppn­innar lá fyrir eða hvort það var gert eftir að Kaffitár bað um gögnin 21. ágúst og opin­ber umræða um leyni­makk hófst,“ segir í grein­inni. „Isavia neit­aði ekki ein­göngu Kaffi­tári um aðgang að stiga­gjöf ann­arra þátt­tak­enda heldur neit­aði hún einnig úrskurð­ar­nefnd­inni um þessi gögn, þrátt fyrir til­mæli um að það yrðu aðeins afhent nefnd­inni í trún­aði,“ segir á öðrum stað.


„Ég gæti hags­muna míns fyr­ir­tækis og þess vegna óska ég eftir aðgangi að gögnum. Lesendum ætti þó að vera ljóst að hér er á ferð­inni miklu stærra mál og varðar hags­muni almenn­ings,“ segir í lok grein­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár