Skuggaverk Isavia í Leifsstöð harðlega gagnrýnd

Leynd og ógagn­sæi ein­kennir for­val Isavia á fyr­ir­tækjum til að sinna smá­sölu og veit­inga­rekstri í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar. Óánægja ríkir innan stjórna Isavia með fram­kvæmd for­vals­ins, og Samtök versl­unar og þjón­ustu gagn­rýna ferlið harð­lega.

Isavia er opin­bert hlut­fé­lag, líkt og RÚV, og er þar af leið­indi í eigu íslenska rík­is­ins. Fyr­ir­tækið ann­ast rekstur og upp­bygg­ingu allra flug­valla á Íslandi og stýrir jafn­framt flug­um­ferð í íslenska flug­stjórn­un­ar­svæð­inu. Þannig hefur Isavia yfir­um­sjón með Flugstöð Leifs Eiríks­sonar og rekur frí­höfn­ina, þar sem tæp­lega 140 manns starfa.

Í mars efndi Isavia til svo­kall­aðs for­vals til samn­inga­við­ræðna vegna aðstöðu til versl­unar- og veit­inga­rekst­urs á Kefla­vík­ur­flug­velli, en samn­ings­tími núver­andi rekstrar­aðila í Leifs­stöð rennur út um ára­mótin. Þá verður ráð­ist í ­umfangs­miklar breyt­ingar og end­ur­bætur á brott­far­ar­sal flug­stöðv­ar­innar, og í til­efni þess ákvað stjórn Isavia að „bjóða út“ versl­unar- og þjón­ustu­rýmin sam­hliða ­fyrir­hug­uðum breyt­ingum. Stefnt er að því að end­ur­skipu­lagn­ing­unum verði lokið næsta vor.

Forval Isavia var kynnt með pompi og prakt í Hörpu 19. mars síð­ast­lið­inn, þar sem áhuga­sömum fyr­ir­tækjum gafst kostur á að nálg­ast ríf­lega fimm­tíu blað­síðna upp­lýs­inga­rit um for­valið. Við afhend­ingu gagn­anna féllust fyr­ir­tækin skrif­lega á ­skil­mála Isavia, um að þau væru trún­að­ar­mál og óheim­ilt væri að afhenda þau þriðja aðila án skrif­legrar heim­ildar Isavia.

Forvalið var aug­lýst á evr­ópska efna­hags­svæð­inu og því voru for­vals­gögnin á ensku, og þá var umsækj­endum gert að skila inn ítar­legum upp­lýs­ingum á ensku.

Heitur staður til að vera á


Áætlanir Isavia gera ráð fyrir að hátt í 3,3 millj­ónir ­flug­far­þega fari um Flugstöð Leifs Eiríks­sonar á þessu ári, sem er 18,5 pró­senta aukn­ing á milli ára, og að þeim fari ört ­fjölg­andi næstu árin. Samhliða þess­ari þróun hafa tekjur versl­ana og veit­inga­staða í brott­far­ar­sal Leif­stöðvar farið ört hækk­andi, en árið 2013 nam velta þeirra 2,7 millj­örðum króna, sem fjögur veit­inga­fyr­ir­tæki og níu smá­sölu­versl­anir skiptu með sér.

Með hlið­sjón af þessum tölum eru versl­unar- og þjón­ustu­rými á Kefla­vík­ur­flug­velli afar eft­ir­sótt af fyrir­tækjum í smá­sölu- og veit­inga­geir­anum. Í raun er erfitt að hugsa sér betri stað undir slíkan rekstur á Íslandi.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans tók fjöldi fyr­ir­tækja þátt í for­vali Isavia um pláss í brott­far­ar­sal flug­stöðv­ar­innar með því að skila inn svoköll­uðum til­lögum. Isavia hefur til­kynnt þeim fyr­ir­tækjum sem ekki upp­fylltu ströng og ítar­leg skil­yrði for­vals­ins um nið­ur­stöð­una, og hefur hafið ­samn­inga­við­ræður við fyr­ir­tæki sem þóttu þókn­an­leg að mati sér­stakrar fimm manna val­nefndar. Fyr­ir­hug­aðir samn­ingar Isavia munu gilda til fjög­urra ára er varðar smá­söl­una, og sjö ára hvað varðar veit­inga­fyr­ir­tæki. Nið­ur­staða samn­inga­við­ræðn­anna verður kynnt fyrir stjórn Isavia síðar í októ­ber og í kjöl­farið verður gert opin­bert hvaða fyr­ir­tæki hrepptu hnossið.

Isavia neitar að veita upplýsingar um forvalið


Kjarninn hafði sam­band við Hlyn Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóra Flug­stöðvar Leifs Eiríks­sonar, til að fá upp­lýs­ingar um for­valið. Hann neit­aði ósk Kjarnans um afhend­ingu for­vals­gagn­anna, og vildi ekki veita upp­lýs­ingar um hvaða fyr­ir­tæki hefðu fengið synjun eða við hvaða fyr­ir­tæki Isavia ætti í samn­inga­við­ræðum nú. Þá vildi hann hvorki upp­lýsa Kjarnann um hverjir ættu sæti í for­vals­nefnd­inni, né við hvaða aðferðir nefndin stydd­ist við mat á umsækj­endum.

Kjarninn hefur nú for­vals­gögnin undir höndum. Í for­vals­nefnd­inni eiga sæti, auk Hlyns, þrír aðrir starfs­menn Isavia; þau Hrönn Ing­ólfs­dóttir, Stefán Jónsson og ­Svein­björn ­Ind­riða­son, ásamt Frank Gray sem er sér­fræð­ingur frá breska ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­inu Concession Planning, sem ku vera eitt virtasta fyr­ir­tækið á sviði rekst­urs og skipu­lagn­ingar smá­sölu á flug­völlum.

Í for­vals­gögn­unum er áhuga­sömum fyr­ir­tækjum gert að skila inn ítar­legri „til­lögu“ í nokkrum liðum. Fyrsti hluti ­til­lög­unnar átti meðal ann­ars að inni­halda nákvæma tækni­lega útlistun á vör­unni sem fyr­ir­tækin hugð­ust bjóða til sölu, og hvernig hún yrði mark­aðs­sett og verð­lögð. Þá þurftu fyrir­tækin sömu­leiðis að skila inn nákvæmri lýs­ingu á hönnun fyr­ir­hug­aðrar versl­unar og hvernig hún kæmi til með að líta út. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans olli þessi liður mörgum fyr­ir­tækjum tölu­verðum vand­ræðum, enda lágu ekki fyrir upp­lýs­ingar frá Isavia í for­vals­gögn­unum um mögu­lega stærð eða legu hús­næðis.

Val­nefndin gaf tækni­legu þátt­unum, sem voru í nokkrum liðum, ein­kunnir á bil­inu núll til tíu. Til þess að kom­ast í gegnum fyrstu síu for­vals­ins, þurftu fyr­ir­tækin að skora að lág­marki sex í með­al­ein­kunn fyrir tækni­legu útfærsl­urnar. Ef fyr­ir­tækin náðu ekki með­al­ein­kunn­inni, var annar hluti til­lög­unnar ekki opn­aður.

Þar áttu áhuga­söm fyr­ir­tæki að útlista nákvæma við­skipta­áætlun og veita aðrar nákvæmar fjár­hags- og rekstrar­upp­lýs­ingar. Til að ná sæti við samn­inga­borðið þurfti til­laga fyr­ir­tækis að hljóta náð fyrir augum for­vals­nefnd­ar­innar hvað báða þætt­ina varð­aði.

Forval Isavia harðlega gagnrýnt fyrir ógagnsæi


Kaffitár er eitt þeirra fyr­ir­tækja sem ekki hlaut náð fyrir augum for­vals­nefnd­ar­innar, en fyr­ir­tækið hefur stundað veit­inga­rekstur í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar und­an­farin tíu ár. Tillaga fyr­ir­tæk­is­ins komst ekki í gegnum fyrstu síu for­vals­ins, hvað tækni­legar útfærslur varð­aði.

Í sam­tali við Kjarnann gagn­rýnir Aðal­heiður Héð­ins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri og einn stofn­enda Kaffi­társ, fram­kvæmd for­vals­ins. Hún kveðst hafa óskað eftir upp­lýs­ingum um nið­ur­stöðu for­vals­ins, auk upp­lýs­inga um það hverjir sendu inn til­lögur, ein­kunna­gjöf for­vals­nefnd­ar­innar og hvernig hún falli að for­vals­gögn­unum, en segir að nefndin hafi neitað henni um upp­lýs­ing­arnar. Hún ­gagn­rýnir harð­lega að starf fyr­ir­tækis í almanna­eigu, það er Isavia, fari fram með slíkum hætti.

Strangt til tekið er Kaffitár skil­greint sem iðn­aðar­fyr­ir­tæki, og því hefur fyr­ir­tækið óskað eftir því að Samtök iðn­að­ar­ins láti til sín taka í mál­inu. Eins og fjöl­miðlar hafa greint frá hefur Isavia gengið til samn­inga við alþjóð­legu veit­inga­keðj­una Joe and the Juice um rekstur veit­inga­staðar í flug­stöð­inni.

En það eru fleiri sem eru ósáttir við vinnu­brögð for­vals­nefnd­ar­innar. Þannig sagði Ásta Dís Óla­dóttir, ­fram­kvæmda­stjóri Frí­hafn­ar­innar, starfi sínu lausu eftir að for­vals­nefndin til­kynnti henni að til­laga Frí­hafn­ar­innar um áfram­hald­andi rekstur Duty Free Fashion hefði verið hafnað. Fjár­hags­þáttur til­lögu Frí­hafn­ar­innar þótti ekki ­trú­verð­ugur að mati for­vals­nefnd­ar­innar. Frí­höfnin tók við rekstri ­versl­un­ar­innar árið 2010, en fram að því hafði hún verið rekin af Icelandair. Þar hefur verið lögð áhersla á íslenskan tísku­varn­ing, íslenska hönnun og hand­verk.

Í sam­tali við Kjarnann vildi Hlynur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Flug­stöðvar Leifs Eiríks­sonar, ekki upp­lýsa um hvernig staðið yrði að rekstri versl­un­ar­innar fram­vegis. Þá hefur Ásta Frið­riks­dóttir, fjár­mála­stjóri Frí­hafn­ar­innar, einnig sagt starfi sínu lausu en sömu­leiðis má rekja upp­sögn hennar til óánægju með for­val Isavia eftir því sem Kjarninn kemst næst.

Íslensk tísku- og hönnunarfyrirtæki áhyggjufull


Í frétta­til­kynn­ingu Isavia, sem send var á fjöl­miðla vegna for­vals­ins á sínum tíma, kemur fram að sér­staða Íslands verði höfð í fyr­ir­rúmi við end­ur­gerð brott­far­ar­sals Leifs­stöðvar. „End­ur­hönnun brott­far­ar­svæð­is­ins mun taka mið af því að hlut­fall erlendra ferða­manna er að aukast mikið. Íslensk nátt­úra og menn­ing verða í for­grunni til að gera ferð far­þega eft­ir­minni­lega og öðru­vísi en á öðrum flug­völlum.“ Samkvæmt for­vals­gögn­unum verður lögð rík áhersla á að brott­far­ar­sal­ur­inn end­ur­spegli lands­lag og nátt­úru Íslands, og svo er að sjá að þar verði hvergi til sparað.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru margir íslenskir hönn­uðir, sem áttu til að mynda inni hjá Duty Free Fashion, áhyggju­fullir yfir stöð­unni meðan leynd ríkir um for­val Isavia. Áhyggjur þeirra lúta fyrst og síð­ast að því að hvergi verði gert ráð fyrir þeirra vörum kjósi Isavia að semja við stórt alþjóð­legt fyr­ir­tæki um rekstur smá­sölu- og veit­inga­rýma í brott­far­ar­sal Leifs­stöðvar. Fyrir íslensk tísku­vöru­fyr­ir­tæki skiptir aug­ljós­lega sköpum að geta boðið vörur sínar til sölu á jafn fjöl­förnum stað eins og flug­stöðin er.

Samtök verslunar- og þjónustu krefja Isavia svara


Fjölmörg fyr­ir­tæki sem tóku þátt í for­vali Isavia hafa sent Samtökum versl­unar- og þjón­ustu erindi, þar sem fram­kvæmd for­vals­ins er harð­lega gagn­rýnd. Í bréfi sem ­sam­tökin sendu Isavia á dög­unum, og Kjarninn hefur ­undir höndum, kemur fram sú krafa fyr­ir­tækj­anna að fyllsta jafn­ræðis verði gætt milli aðila, og gagn­sæi verði sömu­leiðis tryggt við fram­kvæmd­ina að öllu leyti.

Í bréfi Samtaka versl­unar og þjón­ustu kemur jafn­framt fram að fyr­ir­tæki sem ekki náðu lág­marks­ein­kunn er varðar tækni­legar útfærslur hafi óskað eftir upp­lýs­ingum frá Isavia um það á hverju sú nið­ur­staða byggð­ist. Nánar til­tekið, hvaða atriði í „kríter­í­unni“ það voru sem leiddu til þess að umræddu lág­marks­skori var ekki náð. Slíkum óskum hafi verið hafnað af Isavia, og því óski sam­tökin eftir skýr­ingum á því á hverju sú höfnun bygg­ist. Samtökin vísa máli sínu til stuðn­ings til ákvæða stjórn­sýslu­laga er lúta að upp­lýs­inga­skyldu opin­berra ­stofn­ana og ákvæða laga um opin­ber inn­kaup sem kveða á um að öll gögn eigi að vera opin­ber. Samtökin vilja vita að hve miklu leyti Isavia telji sig bundna af ákvæðum ofan­greindra laga og/eða telji sér skylt að hafa ákvæði þeirra í heiðri við val á þeim fyr­ir­tækjum sem stunda munu rekstur í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar á næstu árum.

Þá krefj­ast sam­tökin upp­lýs­inga um hvað verður lagt til grund­vallar við mat á fjár­hags­legri stöðu þeirra sem valdir verða. „Munu í því sam­bandi sömu sjón­ar­mið verða lögð til grund­vallar og þegar mat á til­boðum fer fram sam­kvæmt lögum um opin­ber inn­kaup? Hér er einkum átt við fjár­hags­stöðu fyr­ir­tækja og mat á rekstr­ar­sögu fyr­ir­tækja og/eða þeirra aðila sem eru í for­svari fyrir við­kom­andi fyr­ir­tæki.“

Full­trúar Isavia áttu fund með Andrési Magn­ús­syni, fram­kvæmda­stjóra Samtaka versl­unar- og þjón­ustu, á föstu­dag­inn vegna bréfs sam­tak­anna. Isavia hyggst svara bréf­inu form­lega á næstu dögum.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans telur Isavia það sér í hag að ekki hafi verið gerðar athuga­semdir við for­valið á fyrri stigum. Heim­ildir Kjarnans herma að fyr­ir­tæki hafi veigrað sér við að gera athuga­semdir við upp­haf for­vals­ins af ótta við úti­lokun. Þá full­yrðir Isavia að for­valsleiðin und­an­skilji það frá því að upp­fylla áður­nefnd laga­á­kvæði sem Samtök ­versl­unar- og þjón­ustu vís­uðu til í bréf­inu. Ekki sé um eig­in­legt opin­bert útboð að ræða.

Ekki einhugur í stjórn Isavia um ágæti forvalsins


Í grein sem Aðal­heiður Héð­ins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Kaffi­társ, skrif­aði í Markað Frétta­blaðs­ins á mið­viku­dag­inn full­yrðir hún að Isavia eigi í samn­inga­við­ræðum við alþjóð­legt stór­fyr­ir­tæki um leigu á nær öllum brott­far­ar­salnum. Sama dag greindi frétta­síða DV frá því að fyr­ir­tækið sem um ræðir sé LS Travel Retail. Heim­ildir Kjarnans herma sömu­leiðis að Isavia líti á fyr­ir­tækið sem álit­legan leigj­anda. LS Travel Retail sér­hæfir sig í versl­unar- og veit­inga­rekstri í flug­stöðvum víða um heim, og rekur tæp­lega 2.700 versl­anir á yfir 130 flug­völlum.

Ný stjórn tók við völdum hjá Isavia í byrjun apríl, eða eftir að hið umdeilda for­val var farið af stað. Hina nýju stjórn skipa Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri Íslands­pósts sem jafn­framt er for­maður stjórnar Isavia, Matthías Imsland, fyrr­ver­andi for­stjóri Iceland Express og aðstoð­ar­maður Eyglóar Harð­ar­dóttur félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, Heiða Kristín Helga­dóttir, stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar, og Sigrún Trausta­dóttir, við­skipta­fræð­ingur og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs Isavia.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans gætir nokk­urrar óánægju innan stjórnar Isavia með fram­kvæmd for­vals­ins. Sumir stjórn­ar­menn telja að ef til vill hefði verið heppi­legra að hafa for­vals­ferlið gagn­sætt og hafið yfir gagn­rýni. Fram­komin gagn­rýni sé til þess fallin að ala á tor­tryggni í garð for­vals­ins og varpa skugga á vinnu­brögð Isavia í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár