Hagnaður Nova 800 milljónir - Yfirburðir í sóttu gagnamagni

Hagnaður Nova fjar­skipta­fyr­ir­tækis nam 814 millj­ónum króna á síð­asta ári og jókst um nærri 300 millj­ónir frá fyrra ári. Rekstr­ar­tekjur námu um 6,2 millj­örðum króna og juk­ust sömu­leiðis mikið frá árinu 2013, þegar rekstr­ar­tekjur voru 5,3 millj­arðar króna. Þetta má sjá í nýlega birtum árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins. Honum var skilað til Fyr­ir­tækja­skrár Rík­is­skatt­stjóra undir lok síð­asta mán­aðar.

Nova er annað stærsta far­síma­fyr­ir­tæki lands­ins en við­skipta­vinir um síð­ustu ára­mót voru 136.876 tals­ins. Þeim fjölg­aði um 8,4 pró­sent á síð­asta ári. Félagið er að 94 pró­sent hluta í eigu Novators ehf. og Novator Telecom Finland, eign­ar­halds­fé­laga í eigu Björg­ólfs Thors. Fram­kvæmda­stjórar Nova eru Liv Berg­þóru­dóttir og Jóakim Hlynur Reyn­is­son.

Farsímanotkun gjörbreyst – Niðurhalið hjá Nova


Snjall­sím­arnir hafa á síð­ustu árum gjör­breytt far­síma­notkun og hefur nið­ur­hal gagna­magns fimm­fald­ast á Íslandi frá árinu 2012, sam­kvæmt skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar frá því í apríl síð­ast­liðnum. Milli áranna 2014 og 2013 tvö­fald­að­ist notk­unin.

Nova er í algjörum sér­flokki meðal far­síma­fyr­ir­tækja þegar kemur að notkun gagna­magns í gegnum 4G kerfið. Við­skipta­vinir Nova sóttu 4.539 milljón mega­bæt á síð­asta ári, eða um 75 pró­sent alls sótts gagna­magns í far­símum. Segja má að Nova hafi veðjað á réttan hest þegar fyr­ir­tækið ákvað að höfða til yngstu not­end­anna á árdögum starf­sem­innar með því að gefa frí sím­töl og SMS skila­boð innan kerfis. Sú kyn­slóð sem þá gekk til liðs við fyr­ir­tækið er síðan orðin fyrsta kyn­slóð stórnot­enda snjall­síma.

Á far­síma­mark­aði er Síminn enn með mesta hlut­deild. Nova hefur þó sótt hratt að keppi­nauti sínum og var hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins um 32,9 pró­sent í fyrra, sam­an­borið við 35,7 pró­sent hlut­deild Símans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár