Hundrað manns í hópmálsókn gegn Vodafone

Um hund­rað manns eiga aðild að hóp­mál­sókn gegn Vodafone vegna gagna­lek­ans í nóv­em­ber 2013. Þá láku á netið um 80 þús­und texta­skila­boð sem send höfðu verið af heima­síðu Vodafone á síð­ustu þremur árum, mik­ill fjöldi lyk­il­orða við­skipta­vina að not­enda­síðum, fjögur kredit­korta­númer og gríð­ar­legt magn upp­lýs­inga um nöfn og kenni­tölur við­skipta­vina. Fram kemur á vefnum Spyr.is að um hund­rað ein­stak­lingar eiga aðild að hóp­mál­sókn­ar­máli gegn Vodafone.

„Málið er þannig statt að stefnu­ritun hefur verið í gangi en við höfum verið að bíða eftir end­an­legri nið­ur­stöðu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar varð­andi málið. Stofn­unin hefur boðað að nið­ur­stöðu sé að vænta fyrir sum­arið og í kjöl­far þess munum við fara af stað með málið,“ er haft eftir Skúla Sveins­syni hdl. hjá Lögvernd.


Skúli segir í svari við spurn­ingu les­anda Spyr.is að krafa mál­sókn­ar­fé­lags­ins sem sækir málið verði miska­bætur. „Ég tel að brot Vodafone liggi nokkuð ljóst fyrir, bæði hefur félagið brotið lög varð­andi per­sónu­vernd og svo fjár­skipta­lög. Þessi lög­brot eiga að leiða til bóta­skyldu félags­ins á því tjóni sem varð sem fellst að stærstum hluta í óþæg­indum fyrir þá sem áttu þessu gögn sem láku út. Krafa mál­sókn­ar­fé­lag­ins verður um miska­bætur til handa þessum hópi.“

Einstaklingur vill 90 milljónir

Í mars síð­ast­liðnum greindi Vodafone frá öðru dóms­máli vegna lek­ans en félagið er skráð í Kaup­höll­inni og til­kynnti um stefn­una til Kaup­hall­ar­innar. Í því máli krefst ein­stak­lingur 90 millj­óna króna í skaða- og miska­bætur auk vaxta og máls­kostn­aðar. Áður hafði annar ein­stak­lingur stefnt félag­inu vegna lek­ans og kraf­ist 8,4 millj­óna króna. Vodafone sagði þá að félagið telji veru­legan vafa leika á bóta­skyldu og að dæmdar fjár­hæðir hafi í öllu falli óveru­leg áhrif á rekstur og efna­hag félags­ins, telji dóm­stólar bóta­skyldu yfir höfuð til staðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár