Einstaklingur vill 90 milljónir frá Vodafone vegna innbrots tölvuhakkara

Annar ein­stak­lingur hefur stefnt Vodafone vegna inn­brots­þjófn­aðar erlends tölvu­hakk­ara á heima­síðu Vodafone í nóv­em­ber 2013, og dreif­ingu á stolnu gögn­unum. Ein­stak­ling­ur­inn krefst 90 millj­óna króna í skaða- og miska­bætur auk vaxta og máls­kostn­aðar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Vodafone til Kaup­hallar Íslands.

Þetta er önnur stefnan sem berst Vodafone vegna máls­ins, en eins og greint var frá í byrjun febr­úar stefndi annar ein­stak­lingur Vodafone vegna máls­ins. Sá ein­stak­lingur krefst 8,4 millj­óna króna frá Vodafone.

„Sem fyrr telur félagið veru­legan vafa leika á bóta­skyldu og að dæmdar fjár­hæðir, telji dóm­stólar bóta­skyldu yfir höfuð til staðar, hafi í öllu falli óveru­leg áhrif á rekstur og efna­hag félags­ins. Fyrir liggur að stefnu­fjár­hæð er í engu sam­ræmi við dómafor­dæmi í skaða- og miska­bóta­málum hér á landi. Gerð verður grein fyrir þess­ari og mögu­legum frek­ari máls­höfð­unum í skýr­ingum árs­fjórð­ungs­upp­gjöra eða eftir því sem við getur átt,“ segir í til­kynn­ingu Vodafone.

Stórtækasta árás í einkalíf Íslendinga frá upphafi


Inn­brotið inn á heima­síðu Vodafone, sem er eina fjar­skipta­fyr­ir­tækið sem er skráð á markað á Íslandi, átti sér stað að morgni 30. nóv­em­ber 2013.

Þjófnum tókst að kom­ast yfir um 79 þús­und smá­skila­boð sem send höfðu verið af heima­síðu Vodafone á síð­ustu þremur árum, mik­inn fjölda lyk­il­orða við­skipta­vina Vodafone að not­enda­síðum þeirra hjá fyr­ir­tæk­inu, fjögur kredit­korta­númer og gríð­ar­legt magn upp­lýs­inga um möfn og kenni­tölur við­skipta­vina. Gögnin birti hann síðan opin­ber­lega. Stuld­ur­inn, og birt­ing gagn­anna, er stór­tæk­asta inn­rás í einka­líf Íslend­inga sem nokkru sinni hefur átt sér stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár