Búið að stefna Vodafone vegna innbrots tölvuhakkara

Ein­stak­lingur, sem telur sig hafa orðið fyrir tjóni vegna inn­brots­þjófn­aðar erlends tölvu­hakk­ara á heima­síðu Vodafone í nóv­em­ber 2013, og í kjöl­farið dreif­ingu þjófs­ins og ann­arra á hinum stolnu gögnum, hefur stefnt Fjar­skiptum hf., eig­anda Vodafone, vegna þessa. Ein­stak­ling­ur­inn vill fá 8,4 millj­ónir króna í skaða- og miska­bætur auk vaxta og máls­kostn­aðar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Vodafone til Kaup­hallar Íslands.

Í til­kynn­ing­unni segir að "Fjar­skipti hf. mun á næst­unni kynna sér rök­stuðn­ing fyrir stefn­unni og taka afstöðu til hennar fyrir dómi. Í ljósi mála­vaxta telja Fjar­skipti hf. þó veru­legan vafa leika á hvort skil­yrði bóta­skyldu séu fyrir hendi. Fjar­skipti hf. álítur jafn­framt, telji dóm­stólar félagið yfir­leitt bóta­skylt, lík­legt að dæmdar fjár­hæðir í þessu eða öðrum hlið­stæðum málum, sem boðuð hafa verið, hafi í öllu falli óveru­leg áhrif á rekstur og efna­hag félags­ins. Við þetta mat er hlið­sjón höfð af óvissu um bóta­skyldu sem og dómafor­dæmum um ákvörðun fjár­hæðar miska­bóta, umfangi rekstr­ar­ins auk þess sem krafan kann að falla undir trygg­inga­skil­mála félags­ins. Gerð verður grein fyrir þess­ari og mögu­legum frek­ari máls­höfð­unum í skýr­ingum árs­fjórð­ungs­upp­gjöra eða eftir því sem við getur átt".

Stórtækasta árás í einkalíf Íslendinga frá upphafi


Inn­brotið inn á heima­síðu Vodafone, sem er eina fjar­skipta­fyr­ir­tækið sem er skráð á markað á Íslandi, átti sér stað að morgni 30. nóv­em­ber 2013.

Þjófnum tókst að kom­ast yfir um 79 þús­und smá­skila­boð sem send höfðu verið af heima­síðu Vodafone á síð­ustu þremur árum, mik­inn fjölda lyk­il­orða við­skipta­vina Vodafone að not­enda­síðum þeirra hjá fyr­ir­tæk­inu, fjögur kredit­korta­númer og gríð­ar­legt magn upp­lýs­inga um möfn og kenni­tölur við­skipta­vina. Gögnin birti hann síðan opin­ber­lega. Stuld­ur­inn, og birt­ing gagn­anna, er stór­tæk­asta inn­rás í einka­líf Íslend­inga sem nokkru sinni hefur átt sér stað.

Tapaði viðskiptavinum á fyrri hluta síðasta árs


Vodafone tap­aði við­skipta­vinum í far­síma­þjón­ustu og í netteng­ingum á fyrri hluta árs­ins 2013. Þetta kom fram í töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unnar (PFS) um íslenska fjar­skipta­mark­að­inn sem birt var í októ­ber síð­ast­liðnum.

Við­skipta­vinum Vodafone í far­síma­þjón­ustu fækk­aði um tæp­lega þús­und á milli ára auk þess sem félagið náði ekki í neinn þeirra níu þús­und við­skipta­vina sem bætt­ust við mark­aðin á milli ára.Vodafnoe missti einnig um 1.800 við­skipta­vini sem voru áður með net­þjón­ustu hjá félag­inu og náði ekki í neinn þeirra tvö þús­und nýrra við­skipta­vina sem fengu sér net­þjón­ustu á tíma­bil­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár