QuizUp er leikur frekar en samfélagsmiðill: Nýjar tekjuleiðir með breytingum

Það hafa ekki allir not­endur QuizUp spurn­inga­leiks­ins verið ánægðir með þær veiga­miklu breyt­ingar sem nýlega voru gerðar á leiknum og hafa sumir þeirra skrifað harða gagn­rýni um breyt­ing­arnar í App verslun Apple, þaðan sem leik­ur­inn er sóttur. Þor­steinn Frið­riks­son, stofn­andi og for­stjóri Plain Vanilla, útgef­anda leiks­ins, segir fyrstu dag­ana eftir útgáf­una hafa verið nokkuð erf­iða en þó skemmti­lega. Við­brögðin sýni hversu ástríðu­fullir margir not­endur leiks­ins eru, en um 35 millj­ónir manna hafa sótt leik­inn frá því hann kom út í nóv­em­ber 2013.

Aðeins eru um tvær vikur síðan miklar breyt­ingar voru gerðar á QuizUp. Leik­ur­inn er nú einnig sam­fé­lags­mið­ill og minnir við­mótið að mörgu leyti á Facebook, þar sem not­endur geta deilt status-upp­færslum, myndum og spjallað sín á milli. Erlendir fjöl­miðlar hafa fjallað nokkuð um breyt­ing­arnar, meðal ann­ars The Verge, Business Insider og TechChrunch.com.

„Það var hávær minni­hluti not­enda, vanir not­endur, sem voru óánægðir með þessar breyt­ingar á leiknum. Breyt­ingar eru oft erf­iðar fyrir vana­fasta not­endur. Það er eitt­hvað sem Facebook þekkir til dæmis mjög vel, það heyr­ast alltaf óánægju­raddir þegar þar eru gerðar breyt­ingar.Við höfum fengið að kynn­ast því,“ segir Þor­steinn.

[caption id="attachment_30441" align="aligncenter" width="233"] Viðbrögð not­enda QuizUp í App Store voru mis­jöfn eftir upp­færslu leiks­ins og mörg hver mjög nei­kvæð. [/caption]

QuizUp brást við og svar­aði að nokkru óánægju­röddum. „En það sem gerð­ist var það að not­endur sjálfir fóru að ríf­ast sín á milli og verja breyt­ing­arnar,“ segir Þor­steinn. „En það sem við gerðum núna var að í stað þess að breyta leiknum smám saman þá hentum við í mjög stóra breyt­ingu á einni nóttu. Sumir urðu reiðir en öðrum fannst þetta bara geggjað. Þetta eru fáir not­endur sem eru brjál­aðir, af millj­ónum sem spila leik­inn.“

Fólk hætti í QuizUp – Notkunin eykst á ný

Vin­sældir QuizUp juk­ust hratt eftir útgáfu leiks­ins í nóv­em­ber 2013. Leik­ur­inn sat í efstu sætum vin­sæld­ar­lista App Store, mikið var fjallað um hann í erlendum fjöl­miðlum og fjár­fest­inga­sjóðir vildu ólmir koma að borð­inu. Fyrir og í kringum útgáfu leiks­ins safn­aði Plain Vanilla yfir 27 millj­ónum doll­ara, jafn­virði um 3,5 millj­arða króna á gengi dags­ins í dag. Fjár­festar eru meðal ann­ars sjóður í eigu Tencent, kín­versks tæknirisa sem er eitt stærsta fyr­ir­tæki íheims, og Sequoia, virtur fjár­fest­inga­sjóður úr Kísíldal.

Vin­sæld­irnar dvín­uðu nokkrum mán­uðum eftir útgáfu leiks­ins en sam­tals hafa um 35 millj­ónir manns sótt leik­inn. Með breyt­ing­unum í dag reynir Plain Vanilla að fá not­endur til að nota leik­inn meira og lengur. Að QuizUp sé ekki aðeins snjall­síma­leikur heldur sam­fé­lag.

Spurður hvort það séu nýir eða gamlir not­endur sem eru að spila nýj­ustu útgáfu QuizUp segir Þor­steinn að það sé nokkuð jöfn skipt­ing þótt enn séu það frekar eldri not­endur. „Á góðum degi eru yfir 100 þús­und not­endur að koma nýir inn í leik­inn. Við erum að byrja á því ferli að virkja eldri not­endur og þar eigum við mikið inni. Við vildum koma leiknum út en það er ýmis­legt sem þarf að að laga. Það er allt annað að keyra leik­inn í þús­und manna prufu-umhverfi (beta-umhverfi) heldur en eftir útgáfu, þegar allt í einu milljón manns eru að nota kerfið. En töl­urnar sem við sjáum um virkni eru virki­lega spenn­andi.“

Hvernig hafa not­endur tekið í nýja sam­fé­lags­miðla-hluta QuizUp?

„Það sem okkur hefur einmitt fund­ist skemmti­leg­ast er að notkun á þeim hluta er gríð­ar­leg,“ segir Þor­steinn en tekur fram að vissu­lega séu breyt­ing­arnar aðeins um tveggja vikna gamlar.

„Í eðli sínu eru leikir þannig að fólk spilar þá rosa­lega mikið en hættir síðan að spila. Þetta er helsta áskor­unin þegar leiknir eru gefnir út og var það fyrir okkur. Í byrjun voru allir að spila QuizUp en síðan missum við fólk út, það fer í næsta leik.“ Þetta er ekki eins­dæmi, og Þor­steinn bendir á að eng­inn spili Angry Birds lengur.

„Mörg leikja­fyr­ir­tæki reyna að gera nýja leiki og nota safn þeirra not­enda sem þau hafa af fyrri leiknum, þau reyna að færa not­endur frá gamla leiknum yfir í þann nýja. Við fórum aðra leið og byggðum upp sam­fé­lag eða network. Okkar til­gáta er sú að þegar fólk byrjar að eiga í sam­skiptum og skráir sig inn til þess, þá eykst notk­unin, það sem kallað er retention not­enda.

Við sjáum í dag að fólkið sem notar sam­fé­lags­miðla-hlut­ann, hvort sem það er spjallið eða póstar, það er með miklu meira retention heldur en aðrir not­endur. Fyrir okkur er þetta stað­fest­ing á að ákvörð­unin var rétt.“

Leikur frekar en samfélagsmiðill

Starfs­fólk Plain Vanilla hefur tek­ist á við ýmis vanda­mál sem fylgja rekstri sam­fé­lags­miðla á fyrstu vikum eftir upp­færsl­una. „Við erum með allt annað dýr í hönd­unum. Þetta er iðandi sam­fé­lags­mið­ill þar sem alls­konar mál koma upp, póli­tísk mál, hakk­arar og fólk reynir að setja inn klám­myndir. Þetta er algjör geð­veiki og við höfum haldið öllu gang­andi. Þetta er mikil vinna en rosa­lega spenn­andi.“

Eins og Þor­steinn lýsir því sjálfur, þá er QuizUp í dag ann­að­hvort leikur með mikla mögu­leika til sam­fé­lags­miðla­notk­unar sem minnir á Facebook, eða sam­fé­lags­mið­ill með eina mestu mögu­leika á leikja­notkun sem þekk­ist.

En hvort vilj­iði vera, sam­fé­lags­mið­ill eða leikur?

„QuizUp er leikur. Við munum halda áfram að fá not­endur vegna þess að þeir vilja spila leik. Í dag er eng­inn að leita að nýjum sam­fé­lags­miðli. Okkar stefna er að fólk kemur fyrir leik­inn en helst inni útaf sam­fé­lag­inu,“ segir Þor­steinn.

Nýir tekjumöguleikar – Auglýsingar í QuizUp

Ein helsta spurn­ingin sem varðar fram­tíð Plain Vanilla snýr að tekju­öflun. Ólíkt mörgum öðrum leikjum fyrir snjall­síma, til að mynda spurn­inga­leiknum Trivia Crack, þá eru engar aug­lýs­ingar í QuizUp og ekki er sér­stak­lega lagt upp með að not­endur kaupi aukapakka eða slíkt í leiknum.

Hverju breytir nýja útgáfan fyrir tekju­öflun og hverjar eru áhersl­urnar í þeim efnum?

„Hún verður meira í formi aug­lýs­inga og tekjur munu koma frá aug­lýsendum frekar en not­endum sjálfum. Það er nokkur skýr munur milli leikja og sam­fé­lags­miðla. Leikir ganga út á að selja auk­pakka og slíkt en við höfum ekki gert slíkt. Við munum kynna þetta betur á næstu mán­uðum og einnig aukin sam­starfs­verk­efni og styrkt verk­efni. Það höfum við gert svo­lítið í gegnum tíð­ina, til dæmis með Google og Coca Cola. Við erum komin með enn betri vöru fyrir slíkt,“ segir Þor­steinn.

Spurður hvort aug­lýs­ingar muni þá birt­ast í QuizUp líkt og þekk­ist til dæmis á Facebook segir Þor­steinn að það sé til skoð­unar. „Þetta er gríð­ar­lega þröngur stígur að feta og maður þarf að passa sig. Notendur bregð­ast við minnstu breyt­ingum. Núna höfum við þetta kerfi eða plat­form sem við byggjum ofan á. Það er auð­velt að bæta og breyta.

Mæla réttu hlutina – Notkunin eykst um tíu mínútur

Þegar leik­ur­inn var upp­færður í síð­asta mán­uði kleif hann vin­sæld­ar­lista App Store og sat þar í kringum 30. sætið. Hann er nú horf­inn af topp 100 list­anum.

Er þetta öðru­vísi veg­ferð en síð­ast, þegar leik­ur­inn varð eitt vin­sælasta app í heimi á örfáum dögum?

„Ég segi oft við starfs­fólkið að þótt það sé gaman að horfa á vin­sæld­ar­listana og töl­urnar um nið­ur­hal, þá gefa þær ekki rétta mynd af verð­mæt­unum sem við viljum búa til. Ef að stærstur hluti þeirra millj­óna sem sækja leik­inn hætta að nota hann eftir mánuð þá skapar það lítil verð­mæti. Í dag horfum við á hversu margir eru raun­veru­lega að nota vör­una og hversu mikið. Það er áhuga­vert að eftir nýju útgáf­una þá jókst með­al­notkun not­enda úr 18 mín­útum á dag í 28 mín­útur. Við erum að horfa á réttu hlut­ina,“ segir Þor­steinn. Hann bendir einnig á tækni­legu hlið­ina, það er að upp­færsla leiks­ins hefur ekki áhrif á vin­sæld­ar­lista App Store, aðeins þegar öpp eru sótt í fyrsta sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár