Dularfullir miðar dreifa gleði í neðanjarðarlestum í Osló

Þetta var einn af þessum dögum þegar lífið virt­ist fullt af hindr­unum. Henrik Steen er blaða­maður og lausa­penni en þrátt fyrir góð­ærið hefur hann ekki beint hrasað um atvinnu­tæki­færin. Hann hafði því ákveðið að leita sér að auka­starfi og var á leið­inni til norsku Vinnu­mála­stofn­un­ar­innar til að sjá hvað væri í boði. Þreyttur og von­svik­inn sett­ist hann í neð­an­jarð­ar­lest­ina þegar hann sá hand­skrif­aðan miða á sæt­inu. Skyndi­lega varð dag­ur­inn betri og fram­tíðin virt­ist ekki jafn dökk og áður.

Í sam­tali við Aften­posten segir Henrik að ákvörð­unin um að leita til Vinnu­mála­stofn­unar hafi verið mjög erfið. Hann hafi alist upp við það að fólk ætti að bjarga sér sjálft og að félags­legur stuðn­ingur væri í raun ávísun á að eitt­hvað hefði farið úrskeiðis. „En þegar efna­hag­ur­inn var orð­inn þannig að ég þurfti að ákveða hvort ég keypti tann­krem eða rakk­rem ákvað ég að lokum að leita eftir aðstoð,“ segir Steen. Þennan dag var neð­an­jarð­ar­lestin nán­ast full en á sæt­inu sem Henrik sett­ist í var miði sem á stóð:


„Kæri þú sem finnur mið­ann. Aldrei gleyma að þú ert ein­stök mann­eskja sem ert mik­ils virði og frá­bær eins og þú ert. Þú mátt aldrei glata trúnni á sjálfa þig, þú býrð yfir innri styrk til að gera allt sem þú vilt. Þú átt það skilið að þér líði vel. Megirðu eiga góðan dag.“


Einföld skila­boð sem náðu beint til Henriks þar sem hann sat í lest­inni og þegar hann kom heim setti hann mynd af mið­anum á Facebook og þakk­aði nafn­lausa höf­und­inum fyrir. Fljót­lega fór sagan á flug og í ljós kom að fleiri höfðu fundið sam­bæri­lega miða. Ekki voru þó allir sann­færðir um að hér væri um góð­verk ein­stak­lings að ræða. Sumir töldu aug­ljóst að þetta væri aug­lýs­ing og að öll athygli á sam­fé­lags­miðlum væri því ein­göngu til þess fall­inn að breiða út augýs­ing­una. Sumir töl­uðu um að þetta liti út fyrir að vera orð­send­ing frá Englaskólanum sem Märtha Louise prinsessa rekur ásamt fleirum.

Vill ekki koma fram undir nafni

Fljót­lega eftir að frétta­miðlar fóru að fjalla um málið hafði hins vegar ung kona sam­band við Oslóarblaðið og sagð­ist vera sú sem skrif­aði mið­ana og kom þeim fyrir í lest­unum. Hún vill þó ekki koma fram undir nafni því hún sagð­ist ekki gera þetta til að verða fræg eða til að fá athygli. Miðarnir væru til að gleðja aðra og þannig ætti það að vera. Hún veit ekki hvort mið­arnir hefðu sömu áhrif ef fólk tengdi þá við nafn eða and­lit og þess vegna væri mik­il­vægt að hún kæmi ekki fram. „Það skiptir mig öllu máli að vita að ég getu haft svo mikil áhrif. Ég hefði aldrei trúað að mið­arnir fengju svo mikla og jákvæða athygli og að þeir hefðu svo mikla þýð­ingu fyrir aðra. Það kostar mig ekk­ert að skrifa mið­ana og ég mun halda áfram að gera það svo lengi sem þeir gleðja ein­hverja.“

[caption id="attachment_30139" align="alignnone" width="960"] Einn af mið­unum.[/caption]

150 leiðir að betra samfélagi


Reyndar minna mið­arnir á átak norska Rauða kross­ins sem bendir fólki á 150 ein­faldar leiðir til að gera sam­fé­lagið örlítið betra. Það þarf nefni­lega ekki mikið til að gleðja aðra, til dæmis bara að hleypa ein­hverjum fram fyrir sig í röð­inni úti í búð, bjóða góðan dag­inn eða bara smæla framan í heim­inn eins og Megas sagði. Norsku mið­arnir smellpassa inn í þessa hugsun og minna okkur á hvað litlu hlut­irnir geta oft skipt miklu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár