Hryðjuverkaárásir, samsæriskenningar og óviðjafnanlegur arkitektúr

Neð­an­jarð­ar­lesta­kerfi Moskvu­borgar fagn­aði nýverið átta­tíu ára „starfs­af­mæli” sínu en kerfið var form­lega opnað fyrir almenn­ingi 15. maí árið 1935. Þá var um að ræða eina 11 kíló­metra langa lest­ar­línu sem fór á milli þrettán lest­ar­stöðva - í dag spanna tólf lest­ar­línur um það bil 330 kíló­metra og lest­ar­stöðv­arnar eru orðnar tæp­lega tvö hund­ruð.

Stolt Sovétríkjanna

Bygg­ing­ar­fram­kvæmdir neð­an­jarð­ar­lesta­kerf­is­ins á upp­hafs­ár­unum voru hluti af gríð­ar­legri end­ur­bygg­ingu og umsvifa­miklu end­ur­skipu­lagi Moskvu­borgar. Fram­kvæmd­irnar voru þó ekki ein­göngu með þeim til­gangi fyr­ir­skip­aðar að bjóða Moskvu­búum uppá örugg­ari og skil­virk­ari leið til ferða­laga heldur hafði Jósef Stalín, þáver­andi leið­togi Sov­ét­ríkj­anna, aðrar og stærri hug­myndir í huga. Stalín lagði því meg­in­á­herslu á að engu yrði til sparað við að gera lest­ar­stöðvar kerf­is­ins sem glæsi­leg­astar í hönnun og arki­tektúr. Neð­an­jarð­ar­lesta­kerfið átti í senn að verða stolt Sov­ét­ríkj­anna, ásamt því að end­ur­spegla fram­tíð­ar­sýn komm­ún­ism­ans og und­ir­strika leið­toga­hæfni Stalíns sjálfs.


Margir af helstu arki­tekt­úrum Sov­ét­ríkj­anna voru því kall­aðir til verks­ins og sáu þeir til þess að gólf og veggir lest­ar­stöðv­anna voru þaktir úrvals flísum og marm­ara, sal­irnir lýstir með gull­húð­uðum og ríku­legum ljósakrónum - auk lista­verk­anna sem nafn­tog­aðir lista­menn mál­uðu á veggi og loft stöðv­anna. Fjöl­margar af lest­ar­stöðvum Moskvu eru því ann­ál­aðar, enn þann dag í dag, fyrir óvið­jafn­an­legan arki­tektúr og stór­brotin lista­verk. Má þar sem dæmi nefna Maya­kovskaya -og Ploshchad Revolutsii lest­ar­stöðv­arnar en þær opn­uðu báðar árið 1938.

[caption id="attachment_30101" align="alignnone" width="667"] Ploshchad Revolytsii-lest­ar­stöðin.[/caption]

Blóð, sviti og tár


Þrátt fyrir að nið­ur­staða fram­kvæmd­anna hafi verið með jafn glæsi­legum hætti og raun ber vitni þá er óhætt að full­yrða að bygg­ing­ar­vinnan sjálf hafi einnig tekið sinn toll. Aðbún­aður hins almenna verka­manns við fram­kvæmd­irnar var væg­ast sagt hræði­legur. Verka­menn­irnir, sem sumir hverjir voru reyndar fangar í afplánun, þurftu að sætta sig við lífs­hættu­legt vinnu­um­hverfi og minni -og meiri­háttar vinnu­slys voru því dag­legt brauð.


Ströng tíma­á­ætlun bygg­ing­ar­fram­kvæmd­anna og almenn fákunn­átta á sviði neð­an­jarð­ar­lesta­sam­gangna var heldur ekki til þess að hjálpa til. Líkt og Níkíta Krúsjov, sem fór um tíma með yfir­um­sjón fram­kvæmd­anna og varð síðar leið­togi Sov­ét­ríkj­anna, við­ur­kenndi í fyrsta bindi af end­ur­minn­ingum sínum. „Við vorum mjög fáfróðir um verk­efnið í fyrstu. Við hefðum eflaust átt auð­veld­ara með að senda mann út í geim­inn á þeim tíma heldur en að byggja þetta lesta­kerfi,” er haft eftir Krúsjov.

[caption id="attachment_30102" align="alignnone" width="892"] Maya­kovskaya-lest­ar­stöðin en stöðin var ma. notuð sem sprengju­skýli í seinni heims­styrj­öld­inni. Stalín hélt fræga ræðu í lest­ar­stöð­inni í nóv­em­ber árið 1941 á meðan nas­ist­arnir létu sprengjur falla á borg­ina.[/caption]

Kaffibolli Stalíns og hin dularfulla “Metro-2” áætlun


Í gegnum tíð­ina hafa fjöl­margar sögu­sagnir og sam­sær­is­kenn­ingar spunn­ist í tengslum við neð­an­jarð­ar­lesta­kerfið í Moskvu. Ein þeirra teng­ist hönnun Koltsevaya lest­ar­lín­unnar eða „hring­lín­unnar” svoköll­uðu sem gengur hring­inn í kringum mið­borg Moskvu. Ekki var nefni­lega gert ráð fyrir hring­lín­unni í upp­haf­legum teikn­ingum verk­fræð­ing­anna sem fóru nötr­andi hræddir á fund Stalíns til að kynna til­lögur sínar í aðdranda fram­kvæmd­anna. En eftir kynn­ing­una á lítt hrif­inn Stalín að hafa lagt kaffi­bolla sinn á mitt kortið með teikn­ing­unum og yfir­gefið fund­inn, þegj­andi og hljóð­ar­laust. Þegar verk­fræð­ing­arnir fjar­lægðu hins vegar kaffi­boll­ann varð eftir brúnn hringur um mið­borg­ina og þar með kveikjan að hug­mynd­inni um hring­lín­una. Það er því vel við hæfi að hring­línan sé einmitt brún að lit á öllum lest­ar­kortum nú til dags.


Önnur óstað­fest sögu­sögn er að Stalín hafi, sam­hliða bygg­ing­ar­fram­kvæmdum neð­an­jarð­ar­lesta­kerf­is­ins, fyr­ir­skipað að grafin yrðu dýpri “leyni­göng” sem nýt­ast myndu helstu ráða­mönnum í Moskvu á flótta, ef til kjarn­orku­styrj­aldar kæmi. Lest­ar­göngin áttu að liggja frá Kreml til höf­uð­stöðva KGB leyni­þjón­ust­unnar og þaðan út fyrir borg­ina. Þessi leyni­lega áætlun gengur jafnan undir heit­inu „Metro-2” í heim­ildum.

Vettvangur hryðjuverkaárása

Þrátt fyrir að kjarn­orku­árásir hafi nú ekki orðið raunin í Mosvku þá hefur neð­an­jarð­ar­lesta­kerfi borg­ar­innar verið vett­vangur nokkuð tíðra hryðju­verka­árása í seinni tíð. Í byrjun jan­úar árið 1977 dóu sjö manns í þremur sprengju­árásum í Moskvu en ein spreng­ingin átti sér stað í neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerf­inu, á milli Izmailovskaya -og Per­vom­aiskaya lest­ar­stöðv­anna. Meðlimir sam­taka þjóð­ern­is­sinn­aðra Armena voru teknir af lífi fyrir verkn­að­inn en sjálf KGB leyni­þjón­ustan var seinna bendluð við spreng­ing­arnar.


Í febr­úar og ágúst árið 2004 áttu sér stað tvær mann­skæðar sjálfs­morðsárásir í neð­an­jarð­ar­lesta­kerf­inu þar sem yfir fimm­tíu manns létu lífið og á annað hund­rað manns slös­uð­ust. Gazoton Murdash hryðju­verka­sam­tökin frá Téténíu lýstu yfir ábyrgð á árás­unum.


Síðustu skipu­lögðu hryðju­verka­árás­irnar í neð­an­jarð­ar­lesta­kerfi Moskvu­borgar voru svo að morgni hins 29. mars árið 2010 þegar „svörtu ekkj­urnar” svoköll­uðu, úr röðum aðskiln­að­ar­sinna í Téténíu, sprengdu tvær sprengjur. Sjálfs­morðsárás­irnar voru fram­kvæmdar á háanna­tíma og kost­uðu fjör­tíu manns lífið, á Lubyanka -og Park Kultury lest­ar­stöðv­unum.

[caption id="attachment_30103" align="alignnone" width="1100"] Lest­ar­lín­urnar í Moskvu, þar á meðal hring­línan svo­kall­aða. Myndin er af vef Moskvu-metros­ins.[/caption]

Stækkunarframkvæmdir í fullum gangi


Samkvæmt opin­berri heima­síðu neð­an­jarð­ar­lesta­kerf­is­ins í Moskvu ferð­ast um það bil 9 millj­ónir far­þega með því að með­al­tali á dag. Borg­ar­stjór­inn Sergei Sobyanín til­kynnti hins vegar nýverið, í til­efni af átta­tíu ára afmæl­inu, að vonir stæðu til að gera neð­an­jarð­ar­lesta­kerfið mun stærra og betra. „Við höfum sett okkur það mark­mið að stækka neð­an­jarð­ar­lesta­kerfið um helm­ing á næstu árum. Auk þess sem við höfum und­ir­ritað samn­ing við for­ráða­menn neð­an­jarð­ar­lesta­kerf­is­ins í Peking um sam­starf á sviði rann­sókna og þró­unar á tækninýj­ungum sem nýt­ast munu til þess að gera neð­an­jarð­ar­lesta­kerfi borg­anna not­enda­vænna og skil­virkara,” sagði í frétta­til­kynn­ing­unni.


Það er því óhætt að segja að neð­an­jarð­ar­lesta­kerfið í Moskvu haldi áfram að stækka og dafna þó svo að það þjóni ekki lengur upp­runa­legum til­gangi sínum - að upp­hefja Stalín og greiða veg komm­ún­ism­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár