Forsætisráðherra Danmerkur boðar þingkosningar 18. júní

Helle Thorning-Schmidt, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, boð­aði á blaða­manna­fundi, í danska for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í morgun, að þing­kosn­ingar verði haldnar í land­inu þann 18. júní næst­kom­andi.

Und­an­farna mán­uði hafa verið uppi vanga­veltur um hvenær blásið yrði til kosn­inga í Danmörku, en eftir til­kynn­ingu for­sæt­is­ráð­herr­ans í morgun getur kosn­inga­bar­átta dönsku stjórn­mála­flokk­anna form­lega haf­ist. Flestir sáu reyndar í hvað stefndi, og því gefur nú þegar að líta kosn­ingaplag­göt víða í Kaup­manna­höfn, en óheim­ilt er sam­kvæmt dönskum lögum að hefja eig­in­lega kosn­inga­bar­áttu fyrr en form­lega hefur verið til­kynnt um þing­kosn­ingar.

Þing­kosn­ing­arnar í Danmörku koma í kjöl­far til­lagna rík­is­stjórn­ar­innar varð­andi mál­efni flótta­manna, áfram­hald­andi vöxt danska þjóð­ar­bús­ins og þá var alls­herjar vel­ferð­ar­pakki kynntur á dög­unum. Þrátt fyrir sterk­ari stöðu nú en oft áður bíður Helle Thorning-Schmidt verð­ugt verk­efni að tryggja sér fjögur ár í við­bót í danska for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Bláa blokkin mælist með meirihluta atkvæða


Þrátt fyrir gott gengi Sós­í­alde­mókrata Thorning-Schmidt í skoð­ana­könn­unum að und­an­förnu mælist nú bláa blokkin svo­kall­aða með meiri­hluta atkvæða. Þar fer Lars Løkke Rasmus­sen, for­maður Venstre, fremstur í flokki, en til bláu blokk­ar­innar telj­ast sömu­leiðis danski þjóð­ar­flokk­ur­inn, sem hefur aukið fylgi sitt mikið að und­an­förnu, og danski íhalds­flokk­ur­inn.

Til rauðu blokk­ar­innar í dönskum stjórna­málum telj­ast Sós­í­alde­mókratar, Ein­ing­ar­list­inn, Radikale ven­stre og stuðn­ings­flokkur rík­is­stjórnar Thorning-Schmidt, Sós­íal­íski þjóð­ar­flokk­ur­inn, sem sagði sig úr rík­is­stjórn­inni eftir umdeilda sölu rík­is­ins á eign­ar­hluti sínum í orku­fyr­ir­tæk­inu DONG til Goldman Sachs. Þá hefur Sós­íal­íski þjóð­ar­flokk­ur­inn sömu­leiðis logað í inn­an­flokksá­tökum að und­an­förnu, og tapað miklu fylgi í kjöl­farið.

Þrátt fyrir að skoð­ana­kann­anir bendi til að bláa blokkin nái meiri­hluta í kom­andi þing­kosn­ingum í Danmörku nýtur Helle Thorning-Schmidt mun meira per­sónu­fylgis en hinn umdeildi Lars Løkke Rasmus­sen for­maður Venstre. Danskir stjórn­mála­skýrendur telja því að allt geti gerst, og spenn­andi og snörp kosn­inga­bar­átta sé framundan í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár