Eru Finnar að undirbúa sig fyrir hernaðarátök við Rússa?

Finnsk her­mála­yf­ir­völd hafa sent um 900 þús­und fyrr­ver­andi her­mönnum sem eiga sæti í vara­her­liði lands­ins bréf, þar sem þeir eru upp­lýstir um hlut­verk sitt komi til hern­að­ar­á­taka. Aðgerð finnskra stjórn­valda er talin skýr­ast af auk­inni spennu milli Rússa og nágranna­ríkja þeirra. Frétta­mið­ill­inn CNBC greinir frá mál­inu.

Þá greinir frétta­mið­ill­inn National Post frá því að fyrstu bréfin hafi verið send her­mönn­unum fyrr í þessum mán­uði, og þau síðstu hafi borist við­tak­endum á síð­ustu dögum.

Finnland á ekki aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO) og þjóðin á ríf­lega 1,300 kíló­metra löng landa­mæri að Rúss­landi, þau lengstu í Evrópu fyrir utan Úkraínu.

Mjög sjaldgæf bréf


Í bréf­unum eru vara­lið­arnir upp­lýstir um til hvaða her­fylk­inga þeir eigi að til­kynna sig til komi til átaka. „Með­fylgj­andi eru þínar per­sónu­upp­lýs­ingar og upp­lýs­ingar um hlut­verk þitt komi til hern­að­ar­á­taka,“ segir í bréf­unum, að því er heim­ildir National Post herma.

Þá segir einn finnskur vara­liði, í sam­tali við frétta­mið­il­inn: „Tíma­setn­ingin er ekki úr lausu lofti gripin. Bréfin eru greini­lega send vegna auk­inna hern­að­ar­um­svifa Rússa. Ég hef verið í vara­her­lið­inu í fimmtán ár og þetta er í fyrsta sinn að ég fæ svona bréf. Það er mjög sjald­gæft að svona bréf séu send.“

Aukin spenna á svæðinu


Tíma­setn­ing bréfa­send­ing­anna hefur vakið athygli, en Rússar hafa ein­angr­ast mikið á alþjóða­vett­vangi á und­an­förnum miss­erum eftir inn­limun Krím-skag­ans og aðild þeirra að hern­að­ar­á­tökum í Úkraínu. Þá hafa Rússar staðið fyrir umfangs­miklum hern­að­ar­æf­ingum á Eystr­ar­salti, nærri ströndum Finn­lands og ann­arra þjóða Norður-Evrópu.

Herlið Finn­lands telur 16 þús­und her­menn í dag, en þjóðin getur stækkað það umtals­vert eða upp í 285 þús­und her­menn kalli hún vara­liðs­sveitir til þjón­ustu.

Finnst stjórn­völd hafa neitað því að bréfa­send­ing­arnar teng­ist ört vax­andi spennu á milli þeirra og Rússa, eða ástand­inu í Úkraínu, og segja að ákveðið hafi verið að senda vara­lið­unum bréf fyrir tveimur árum, til að efla sam­skipti við fyrr­ver­andi her­menn sína og upp­færa skrár.

Vilja tryggja sér liðsstyrk ef til átaka kemur


National Post hefur eftir starfs­manni inn­an­rík­is­mála­stofn­unar Finn­lands að með bréfa­send­ing­unum vilji finnst stjórn­völd tryggja að þau geti kallað til 230.ooo her­menn með litlum fyr­ir­vara. „Þetta teng­ist auknum óró­leika á svæð­inu. Rússar hafa sýnt að þeir geta flutt fjölda her­manna um langar vega­lengdir á skömmum tíma. Það hafa aldrei fleiri gefið sig á tal við mig og spurt hvort ástæða sé til að hafa áhyggjur.“

Sov­ét­ríkin réð­ust inn í Finnland árið 1939 og her­námu um tíu pró­sent lands­ins. Á tímum Kalda stríðs­ins héldu Finnar fast í hlut­leysi sitt, en voru engu að síður undir áhrifum stóra nágranna síns í austri.

Á síð­ustu mán­uðum hafa rúss­neskar her­flug­vélar flogið ítrekað inn fyrir finnska loft­helgi. Í apríl sleppti finnski sjó­her­inn djúp­sjáv­ar­sprengju eftir að kaf­bátur, sem ótt­ast var að væri rúss­neskur, sást á sigl­inu úti fyrir hafn­ar­garði Helsinki. Þá hafa Finnar styrkt tengsl sín við NATO að und­an­förnu og heitið nágranna­ríkjum sínum hern­að­ar­legu sam­starfi komi til átaka á svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár