Grikkland getur að óbreyttu ekki borgað Alþjóðagjaldeyrissjóðnum

Rík­is­sjóður Grikk­lands hefur ekki efni á að end­ur­greiða Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum (AGS) 1,6 millj­arða evra, sem eru á eindaga 5. júní næst­kom­andi. Þetta hefur frétta­stofan Reuters eftir Nikos Voutsis, inn­an­rík­is­ráð­herra Grikk­lands.

Inn­an­rík­is­ráð­herr­ann segir að til þess að af greiðsl­unni geti orðið þurfi Grikk­land fyrst að ná samn­ingum við lán­ar­drottna sína, þá helst AGS og Evr­ópu­sam­bandið. Ummæli ráð­herr­ans þykja gefa sterk­lega til kynna að við Grikkjum blasi þjóð­ar­gjald­þrot beri samn­inga­við­ræð­urnar ekki árangur.

Frekari fjár­hags­að­stoð frá Evr­ópu­sam­band­inu er háð þeim skil­yrðum að Grikkir standi í skilum við Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn. Um 7,8 millj­arða evra neyð­ar­lán frá Evr­ópu­sam­band­inu er að ræða, sem stjórn­völd þurfa nauð­syn­lega til að afstýra þjóð­ar­gjald­þroti.

Um end­ur­greiðsl­una til AGS segir inn­an­rík­is­ráð­herra Grikk­lands, í sam­tali við Reuters: „Við munum ekki borga hana, því pen­ing­ur­inn er ekki til.“ Aðspurður um afleið­ing­arnar ef Grikkir ná ekki að standa við skuld­bind­ingar sínar gagn­vart sjóðnum svar­aði ráð­herr­ann: „Við erum ekki að sækj­ast eftir þess­ari stöðu, við viljum þetta ekki, þetta er ekki með ráðum gert. Við þurfum bara að vera raunsæ.“

Inn­an­rík­is­ráð­herra kveðst þó vera hóf­lega bjart­sýnn á að lausn sé í sjón­máli. „Við erum í sam­ræðum við lán­ar­drottna okkar og erum enn bjart­sýn á að þær beri árangur, svo þjóðin nái and­anum. Við veðjum á að það verði nið­ur­staðan,“ segir Nokos Voutsis, inn­an­rík­is­ráð­herra Grikk­lands, í sam­tali við frétta­stofu Reuters.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár