Rússar blása til frekari sóknar á norðurslóðum

Aðgerðir Rússa í Úkraínu hafa verið í brennid­epli síð­ustu miss­eri og valdið mik­illi ólgu í alþjóða­sam­fé­lag­inu. Nú hyggja Rússar hins vegar á frek­ari land­vinn­inga, á norð­ur­slóðum.

Sergey Donskoy, ráð­herra umhverfis- og auð­linda­mála Rúss­lands, greindi frá fyr­ir­hug­uðum áætl­unum Rússa á norð­ur­slóðum á blaða­manna­fundi á síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. „Við munum leggja fram nýja kröfu okkar um land­svæði til land­grunns­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna á þessu ári,” er haft eftir Donskoy í við­tali við TASS frétta­stof­una.

Um er að ræða 1,2 milljón ferkílómetra svæði


Fyrir liggur að gríð­ar­legar nátt­úru­legar auð­lindir eru í húfi á umræddu svæði en Donskoy stað­festi að hinn svo­kall­aði Gakkel-hryggur, neð­an­sjáv­ar­hryggur í Norður-Íshafinu á milli Græn­lands og Síberíu, væri að hluta til innan þess svæðis sem Rússar munu fal­ast eftir. „Við teljum að krafa okkar sé rétt­mæt og nið­ur­stöður nýrra rann­sókna okkar munu und­ir­strika hana. Krafan inni­heldur Gakkel-hrygg­inn að hluta til en við munum halda rann­sóknum áfram og okkur er frjálst að bæta skjölum við kröf­una á meðan land­grunns­nefndin fer yfir hana,” sagði Donskoy en núver­andi krafa Rússa hljóðar upp á um það bil 1,2 mill­ljón fer­kíló­metra svæði.

Ekki nóg að stinga niður fána


Krafa Rússa er vit­an­lega ekki ný af nál­inni en Rússar hafa lengi reynt að færa rök fyrir því að fyrr­nefnd svæði í Norður-Íshafinu séu í raun fram­leng­ing á land­grunni Rúss­lands og ættu því með réttu að falla undir rúss­neska lög­sögu. Rússar gengu raunar svo langt í við­leitni sinni að þeir skipu­lögðu leið­angur sem stakk niður fána Rúss­lands á hafs­botn­inn á norð­ur­pólnum í ágúst árið 2007. Verkn­að­ur­inn vakti vissu­lega heims­at­hygli en enn þann dag í dag standa Rússar frammi fyrir þeirri áskorun að sýna fram á óyggj­andi jarð­fræði­legar sann­anir til grund­vallar mál­stað sínum.

[caption id="attachment_29495" align="alignnone" width="1200"] Artur Chilingarov sést hér, en hann fór fyrir leið­angrinum fræga sem stakk rúss­neska fán­anum á hafs­botn­inn á norð­ur­pólnum í ágúst árið 2007 og heldur einmitt á mynd af fyrr­nefndum fána. Mynd: Ómar.[/caption]

Hvernig sem Rússum mun svo takast að sann­færa land­grunns­nefnd­ina og hin fjögur ríkin sem eiga land­svæði að Norður-Íshafinu; Kanada, Danmörk fyrir hönd Græn­lands, Noreg og Banda­ríkin - út frá jarð­fræði­legum grund­velli, þá verður laga­legt umhverfi norð­ur­slóða­svæð­is­ins jafn­vel enn stærri hindrun. Enda hags­muna­að­ilar, án nokk­urs vafa, hver og einn með sína túlkun á laga -og reglu­verk­inu sem nú er gild­andi á svæð­inu. Í því sam­hengi er einnig vert að minn­ast á RAIPON-sam­tökin en þau berj­ast fyrir rétt­indum rúss­neskra norð­ur­slóða­frum­byggja og hafa fram til þessa staðið í ströngu gagn­vart rúss­neskum stjórn­völdum.

Ljóst þykir í það minnsta að hags­muna­bar­áttan á Norð­ur­slóðum á eftir að fær­ast í auk­ana á kom­andi árum. Innlimun Rússa á Krím­skaga hefur ekki aðeins hrist veru­lega við stoðum fyrir fram­tíð­ar­sam­starfi norð­ur­slóða­ríkja - heldur einnig gefið mögu­lega vís­bend­ingu um hvað koma skal í „kapp­hlaup­inu” um norð­ur­slóðir.

Rússar sem fyrr stórhuga á norðurslóðum


Rússar hafa þegar gefið út að þeir ætli að auka umsvif sín á norð­ur­slóða­svæð­inu til muna. Í októ­ber á síð­asta ári til­kynnti Varn­ar­mála­ráðu­neyti Rúss­lands um áætl­anir Rússa um að byggja á næst­unni 13 nýja her­flug­velli og 10 nýjar rad­ar­stöðvar á svæð­inu. Auk þess sem til stendur að árið 2016 verði til­búið til notk­unar fljót­andi kjarn­orku­ver, sér­stak­lega hannað fyrir veru á norð­ur­slóðum. Dmitry Rogozin, aðstoð­ar­for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, til­kynnti á nýlegu þingi um þróun á norð­ur­slóðum að Rússar áætli að fjár­hags­á­ætlun norð­ur­slóða­mála fyrir næstu fimm ár geri ráð fyrir kostn­aði upp á um það bil 4,27 millj­arða doll­ara. „Rússar ætla að styrkja stöðu sína á norð­ur­slóðum, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr. Mestu máli skiptir að við gerum það sem er hag­kvæm­ast fyrir okkar þjóð,” er haft eftir Rogozin á vef TASS.

Hagsmunir Íslands


Samfara þróun um vax­andi mik­il­vægi norð­ur­slóða í augum Rússa er óhætt að full­yrða að önnur ríki hugsi sér þar einnig gott til glóð­ar­innar - sér­stak­lega aðilda­ríkin átta að Norð­ur­skauts­ráð­inu, sem stofnað var árið 1996. Ísland er þar á meðal en sér­stök ráð­herra­nefnd um mál­efni norð­ur­slóða var skipuð í Íslandi í októ­ber árið 2013 til þess að draga saman heild­stætt mat á hags­munum Íslands á norð­ur­slóðum. Í drögum að skýrslu nefnd­ar­innar, sem birt voru um miðjan mars á þessu ári, kemur fram að hags­munir Íslands séu ómet­an­legir þegar kemur að bar­átt­unni gegn nei­kvæðum áhrifum lofts­lags­breyt­inga enda tæki­færin gríð­ar­lega mörg fyrir Ísland á norð­ur­slóðum. Augjós­lega tengj­ast tæki­færin nýt­ingu nátt­úru­auð­linda á borð við líf­ríkis sjávar og vinnslu olíu og gass, en einnig gagn­vart þjón­ustu hvers konar. Þá fel­ast tæki­færin einnig í auknu vægi mál­efna norð­ur­slóða á alþjóða­vett­vangi þar sem Ísland sé fyrir í innsta hring, ef svo megi að orði kom­ast.

Höfundur er sagn- og við­skipta­fræð­ingur, búsettur í Moskvu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár