Villan í Scarface til sölu fyrir litla 2,3 milljarða

Villa eit­ur­lyfja­bar­óns­ins Tony Montana, úr kvik­mynd­inni Scarface frá árinu 1983, í leik­stjórn Brian De Palma, er til sölu fyrir 17,8 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða röska 2,3 millj­arða íslenskra króna. Frétta­mið­ill­inn Business Insider greinir frá mál­inu.

Húsið, sem er tæp­lega þús­und fer­metrar að flat­ar­máli, er búið fjórum svefn­her­bergjum og níu bað­her­bergjum, og er umvafið persnerskum garði með ótal gos­brunnum. Eignin hefur verið aug­lýst til sölu í á annað ár, en upp­haf­legi verð­mið­inn hljóð­aði upp á 35 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða tæpa 4,6 millj­arða króna. Loka­at­riði Scarface þar sem Montana strá­fellir byssu­menn í tuga­tali áður en hann fellur í mik­illi kúlna­hríð átti til að mynda að eiga sér stað í hús­inu.

[caption id="attachment_28815" align="alignnone" width="794"] Glæpa­mað­ur­inn Tony Montana bjó vel, það verður ekki af honum tekið. MYND: Village Properties[/caption]

Aðdá­endur Scarface vita auð­vitað mæta vel að Kúbverj­inn Tony Montana, sem Al Pacino lék svo óað­finn­an­lega, byggði upp eit­ur­lyfja­veldi sitt í Miami í Florida ríki á aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna. Villan sem var notuð við gerð kvik­mynd­ar­innar sem heim­ili Montana, og er nú föl fyrir 2,3 millj­arða króna, er hins vegar stað­sett á vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna, nánar til­tekið í Montecito í Kali­fórníu, um 145 kíló­metra vestur af Los Angeles.

Eignin hefur gengið í gegnum end­ur­bætur frá því að sagan um Scarface var kvik­mynduð og ku jafn­vel enn glæsi­legri í dag en árið 1983. Hægt er að skoða myndir af vill­unni í umfjöllun Business Insider hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár