Netflix seilist til Kína - 6 milljarða Bandaríkjadala markaður undir

Banda­ríski afþrey­ing­arris­inn Netflix á nú í samn­inga­við­ræðum við kín­verskt fjar­skipta­fyr­ir­tæki í von um að kom­ast til lands­ins með þjón­ustu sína. Gríð­ar­legir hags­munir eru í húfi því staf­ræni efn­isveitu­mark­að­ur­inn á net­inu í Kína veltir tæp­lega sex millj­örðum Banda­ríkja­dala árlega. Frétta­mið­ill­inn Bloomberg greinir frá mál­inu.

Netflix nýtur stuðn­ings Jack Ma, stofn­anda og stjórn­ar­for­manns Alibaba, sem er stærsta net­fyr­ir­tæki lands­ins, í samn­inga­við­ræð­unum ásamt öðrum vænt­an­legum fjár­festum. Aðspurð um teng­ing­una og þreif­ing­arnar við Kína sagði tals­kona Netflix að fyr­ir­tækið stefni á að ná hnatt­rænni útbreiðslu í lok árs 2016.

Þurfa að lúta ritstjórnarstefnu kínverskra stjórnvalda


Spár gera ráð fyrir að eft­ir­spurn í Kína eftir afþrey­inga­efni á net­inu muni allt að því þre­fald­ast til árs­loka 2018. Samstarf við þar­lent fjar­skipta­fyr­ir­tæki er mik­il­vægt fyrir Netflix vegna strangra skil­yrða kín­verskra stjórn­valda við útgáfu leyfa til efn­isveitna á net­inu. Afþrey­ing­arris­inn leitar því eftir sam­starfs­að­ila sem hafi nú þegar tryggt sér leyfi til að bjóða upp á efni fyrir öll tæki.

Ljóst er að Netflix mun þurfa að fara eftir strangri rit­skoð­un­ar­stefnu kín­verskra stjórn­valda, nái fyr­ir­tækið fót­festu þar í landi. Þannig þurfa kín­versk stjórn­völd að fara yfir efni afþrey­ing­arris­ans, bæði gam­alt og nýtt, áður en það er birt og klippa út það sem þeim þykir óæski­legt að borg­arar sínir berji augum. Þetta þýðir auð­vitað að tölu­verður dráttur mun verða á því að nýir þættir, í fram­leiðslu Netflix, komi fyrir sjónir áskrif­enda efn­isveit­unnar þar sem þeir þurfa áður að vera sam­þykktir til sýn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár