Framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum: „Skil ekki þessi læti“

„Ég skil ekki þessi læti. Ég skil ekki ótt­ann og við hvað fólk er hrætt,“ segir fjöl­miðla­mað­ur­inn og Baggalút­ur­inn Guð­mundur Pálsson, sem skoð­aði fram­lag Íslands á Fen­eyj­artví­ær­ingnum á dög­unum ásamt fjöl­skyldu sinni.

Framlag Íslands, Fyrsta moskan í Feneyjum eftir sviss­neska og seyð­firska mynd­list­ar­mann­inn Christoph Jules Büchel, hefur vakið heims­at­hygli og ekki eru allir á eitt sáttir um ágæti verks­ins. Büchel, sem ser­hæfir sig í ofurraun­sæ­is­legum inn­setn­ingum með póli­tískum skírskot­unum, breytti kaþ­ólskri kirkju í Feneyjum í mosku og hefur verið notuð sem slík af múslimum sem eru fjöl­mennir í borg­inni.

Stríður straumur fólks


Eins og áður sagði hefur fram­lag Íslands vakið mikla athygli og stríður straumur fólks lagt leið sína í mosk­una, sem ku illa merkt og lítið áber­andi. „Þarna var fullt af fólki að leita að þessu, til að kom­ast inn og skoða. Kirkjan eða moskan er algjör­lega ómerkt þannig að það getur verið snúið að finna hana,“ segir Guð­mundur í sam­tali við Kjarnann.

[caption id="attachment_28624" align="alignnone" width="812"] Snorri leikur sér með leik­fanga­bíl í mosk­unni í Fey­n­eyjum. Mynd: Guð­mundur Pálsson[/caption]

„Okkur fannst ótrú­lega gaman að koma þarna, enda mjög flott og áhrifa­mikið verk. Þarna fékk maður líka tæki­færi til að upp­lifa eitt­hvað sem maður upp­lifir ekki á hverjum degi, það er að heim­sækja mosku, og finna frið­sæld­ina og feg­urð­ina. Krökk­unum fannst mjög gaman að koma þarna, og Snorri sonur minn, sem er þriggja ára, hljóp þarna um allt og lék sér með leik­fanga­bíl á tepp­inu sem hann hafði með sér.“

Erfitt að finna hús sem er ekki við síki í Feneyjum


Guð­mundur segir við­stadda hafa farið að reglum, farið úr skónum og sýnt lista­verk­inu virð­ingu. „Svo er líka spurn­ingin hvenær þetta hættir að vera lista­verk og verður bara moska, því þangað hefur fólk mætt til að biðja, þó við höfum ekki fenigð að upp­lifa það.“

Fram hefur komið að borg­ar­yf­ir­völd í Feneyjum og lög­regla telji fram­lag Íslands vera öryggisógn. Guð­mundur seg­ist hafa heyrt að borg­ar­yf­ir­völd reyni hvað þau geta til að loka sýn­ing­unni, og því sé þess gætt til að mynda að kirkj­unni sé lokað á réttum tíma til að gefa ekki högg­stað á sýn­ing­unni. „Þetta tal um að það sé ekki hægt að tryggja öryggi á staðnum, af því að kirkjan standi við síki og brú, er svo­lítið spaugi­leg, því það er eig­in­lega leit­andi að húsi í Feneyjum sem ekki stendur við síki, brú eða bæði,“ segir Guð­mundur kím­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár