Það sem þú hefur lesið um morðið á bin Laden er mjög líklega lygi

Skömmu eftir að Osama bin Laden féll fyrir byssu­kúlum banda­rískra sér­sveit­ar­manna í Pakistan í maí­mán­uði árið 2011, birt­ust fréttir af hetju­dáð her­mann­anna og nákvæm lýs­ing á morð­inu á eft­ir­lýstasta manni jarðar fylgdi skjótt í kjöl­farið. Samkvæmt nýrri og athygl­is­verðri grein rann­sókn­ar­blaða­manns­ins Seymour M. Hersh, sem birt­ist í The London Review of Books, eru allar líkur á að morðið hafi átt sér stað öðru­vísi en banda­rísk stjórn­völd hafa látið í veðri vaka.

Í stofufangelsi í Pakistan


Samkvæmt grein Hersh var Osama bin Laden í haldi pakist­anska hers­ins, en fór ekki huldu höfði í Pakistan, eins og haldið hefur verið fram. Þá var Bin Laden vistaður í stofu­fang­elsi, og pakist­anski her­inn vissi ekki bara hvar hann var heldur þáði greiðslur frá Sádi-Arabíu vegna uppi­halds leiðoga al-Kaída hryðju­verka­sam­tak­anna.

Hersh full­yrðir í grein sinni að það sé upp­spuni banda­rískra stjórn­valda að upp­lýs­ing­arnar sem leiddu til aftöku bin Laden hafi náðst fram með hörðum yfir­heyrslum og pynt­ingum með vatns­bretti, eins og greint er frá í kvik­mynd­inni Zero Dark Thirty. Hið rétta sé að maður hafi gengið inn af göt­unni og sagt banda­rískum emb­ætt­is­mönnum í Pakistan hvar bin Laden væri að finna, og fékk í sinn hlut 25 millj­óna dala fund­ar­laun.

Tilbúinn hasar


Í kjöl­far morðs­ins á bin Laden komust sögur af því hvernig banda­rískir sér­sveit­ar­menn skutu sér leið inn í „fylgsni“ hans í hámæli. Bin Laden átti meira segja að hafa skotið að banda­rísku her­mönn­unum, slíkur var hasar­inn. Samkvæmt grein Hersh er þetta ekki sann­leik­anum sam­kvæmt, sér­sveit­ar­mönn­unum beið engin mót­staða, heldur lædd­ust þeir hljóð­lega upp í svefn­her­bergi bin Laden og tóku af lífi þar sem hann dvaldi óvopn­aður.

Þá telur Hersh afar ólík­legt að útför bin Laden hafi farið fram út á sjó, líkt og haldið hefur verið fram. Líklegra sé að líki hans hafi verið kastað út úr þyrl­unni sem flutti banda­rísku sér­sveit­ar­menn­ina aftur til Afganistan, yfir fjall­lendi.

Fyrri greinar byggðar á upplýsingum frá hernum og Hvíta húsinu


Seymour M. Hersh, sem hlaut Pulitzer verð­launin fyrir umfjöllun sína um My Lai fjöldamorðin í Víetnam, hefur skrifað um banda­ríska her­inn í áraraðir og birt greinar sínar reglu­lega í The New Yorker frá árinu 1993.

Í tíma­rit­inu birt­ist grein árið 2011 undir fyr­ir­sögn­inni Getting Bin Laden, eftir blaða­mann­inn Nicholas Schmidle, sem er sonur yfir­manns hjá banda­ríska hernum. Í umræddri grein var farið nákvæm­lega yfir morðið á Bin Laden, og meira segja haft eftir sér­sveit­ar­mann­inum sem skaut Bin Laden hvað hann sagði þegar hryðju­verka­mað­ur­inn féll í val­inn. Síðar kom í ljós að Schmidle hafði aldrei talað við neinn sér­sveit­ar­mann sem tók þátt í aðgerð­inni, heldur byggt grein­ina sína ein­vörð­ungu á upp­lýs­ingum frá hernum og innan úr Hvíta hús­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár