Sjötíu ár frá sigrinum mikla

Sig­ur­dag­ur­inn 9. maí hefur ómælda þýð­ingu fyrir Rússa ár hvert. Minn­ingum um sigra og fórnir Rauða hers­ins í hinu svo­kall­aða „Föð­ur­lands­stríði mikla” á árunum 1941-1945 er þá sér­stak­lega haldið á lofti. Í dag fagna Rússar því að sjö­tíu ár séu liðin frá því að form­lega var til­kynnt um fulln­að­ar­sigur Sov­ét­þjóð­anna og banda­manna þeirra á Þýska­landi Hitlers.

Þurftu ekki einu sinni áfengi


Í bók­inni Six Months in 1945 eftir Michael Dobbs er að finna lif­andi og skemmti­lega lýs­ingu á atburða­rásinni 9. maí 1945 í Moskvu. Þar kemur fram að frétta­þul­ur­inn Yuri Levitan hafi fengið það hlut­verk að til­kynna um sigur Sov­ét­manna en sá hinn sami greindi einmitt frá inn­rás Þjóð­verja fjórum árum áður. „Þetta er Moskva sem talar. Þýska­landi fas­ism­ans hefur verið tor­tímt,” á Levitan að hafa sagt. Til­kynn­ing­unni var vita­skuld tekið með ein­lægum fögn­uði þar sem eft­ir­lif­endur Föð­ur­lands­stríðs­ins mikla döns­uðu á strætum og torgum borg­ar­innar. “Menn voru svo ham­ingju­samir, að þeir þurftu ekki einu sinni áfengi,” er haft eftir heim­ild­ar­manni Dobbs.

Út með gæruna


Ólíklegt verður að telj­ast að Pétur Bene­dikts­son, þá til­tölu­lega nýskip­aður sendi­herra Íslands í Moskvu, hafi orðið vitni af fagn­að­ar­lát­unum á Rauða torg­inu þann 9. maí árið 1945. Af bréfa­sam­skiptum Péturs og öðrum skjölum, sem tekin eru saman í bók­inni Opinber tengsl Íslands við Sov­ét­ríkin/Rússland: 1943-2008. Skjöl, er ekki að finna lýs­ingar frá Sig­ur­deg­inum. Hins vegar er þar að finna margar aðrar áhuga­verðar lýs­ingar á Rússum og rúss­nesku sam­fé­lagi. Sendi­ráðið í Moskvu var stofnað árið 1944 og því féll það í verka­hring Péturs að tala um fyrir sjálf­stæð­is­bar­áttu Íslands auk þess að hyggja að mögu­legum við­skipta­legum ávinn­ingum í Sov­ét­ríkj­unum. Í bréfi til Péturs snemma árs 1944 telur ráðu­neytið æski­legt að hann athugi mögu­leika á að kaupa trjá­við auk þess sem hann er góð­fús­lega minntur á að gærur árs­ins 1943 séu enn óseldar.

Dagur sameiningar í Rússlandi


Á alvar­legri nótum, er mik­il­vægt að hafa það hug­fast þegar rætt er um Sig­ur­dag­inn í rúss­nesku sam­hengi hversu gríð­ar­legu mann­tjóni Sov­ét­menn urðu fyrir í heims­styrj­öld­inni síð­ari, sér­stak­lega á árunum 1941-1945. Á Sig­ur­dag­inn 9. maí koma Rússar saman, ungir sem aldnir, til að heiðra minn­ingu þeirra sem börð­ust og féllu, ásamt því að heiðra þá eft­ir­lif­endur sem uppi stóðu eftir Föð­ur­lands­stríðið mikla. Þrátt fyrir að nafn­giftin “Sig­ur­dag­ur­inn” tali sínu máli um mik­il­vægi þess að Rauði her­inn hafi fagnað sigri á sínum tíma, þá er óhætt að segja að 9. maí sé ekki síður dagur sam­ein­ingar í Rúss­landi.

[caption id="attachment_28267" align="alignnone" width="543"] Skrið­dreki fyrir framan eina af bygg­ingum sem nefndar eru „sjö systur” og byggðar voru á árunum 1947-1953 að fyr­ir­skipun Stalíns. Mynd: Ómar.[/caption]

Óeining um arfleifð Stalíns


Á þessum mikla degi sam­ein­ingar í Rúss­landi skipt­ast Rússar þó enn í fylk­ingar þegar nafn fyrrum leið­tog­ans Jósefs Stalín ber á góma. Rússar eru ekki bara annað hvort með eða á móti þegar kemur að því að ræða Stalín heldur virð­ast margir vera ein­hvers­staðar mitt á milli. Nýleg skoð­ana­könnun Levada Center, sem fram­kvæmir reglu­legar skoð­ana­kann­anir og rann­sóknir á rúss­nesku sam­fé­lagi, end­ur­speglar þessar fylk­ingar. Þar kemur fram að 39% aðspurðra líti á Stalín og arf­leið hans með jákvæðum augum og 45% telja að verkn­aðir í stjórn­ar­tíð hans hafi verið rétt­læt­an­legir þegar allt kom til alls og Sov­ét­ríkj­unum til bóta. Á meðan 25% líti á Stalín með nei­kvæðum augum og 30% séu ein­hvers­staðar mitt á milli. Stórir hern­að­ar­legir sigrar Stalíns, heragi og regla á öðrum ásnum og grimmi­leg voða­verk og yfir­gengi­legar öfgar á hinum ásnum. Rússar hafa gengið í gegnum tíma­bil þar sem reynt var að grafa arf­leifð Stalíns en hún virð­ist alltaf dúkka aftur reglu­lega upp á yfir­borðið. Sig­ur­dag­ur­inn og hátíð­ar­höld tengd honum spila þar eflaust stórt hlut­verk enda minna þau Rússa óhjá­kvæmi­lega á stóra hern­að­ar­lega sigra Stalíns og hvaða þýð­ingu þeir höfðu fyrir Sov­ét­ríkin.

Hersýningin með stærra móti í ár


Mikið hefur verið rætt og skrifað um hvaða þjóð­höfð­ingjar ætli ekki að mæta til að sam­fagna Rússum á Sig­ur­deg­inum til að mót­mæla fram­göngu rúss­neskra stjórn­valda í Úkraínu. Rúss­neska frétta­stofan TASS greinir þó frá því að her­sýn­ing Sig­ur­dags­ins 2015 verði með stærra móti í Moskvu, í til­efni af 70 ára hátíð­ar­höld­unum, en verið hefur hin síð­ari ár. Und­ir­bún­ingur her­sýn­ing­ar­innar hefur ekki farið fram­hjá Moskvu­búum síð­ustu vik­urnar þar sem langar lestir skrið­dreka hafa sést keyra um borg­ina auk þess sem loft­helgi Mosvku­borgar hefur nokkrum sinnum verið tíma­bundið lokað síð­ustu daga til þess að rúss­neski flug­her­inn geti æft sig. Áætlað er að um 15 þús­und her­menn taki þátt í her­sýn­ing­unni í dag, auk 200 skrið­dreka og ann­ara hern­aðar far­ar­tækja. En flestra augu munu þar bein­ast að hinum nýju og hátækni­væddu Armata T-14 skrið­drekum. Þá munu 143 orr­ustu­þotur –og þyrlur fljúga yfir hátíð­ar­gestum með til­heyr­andi látum og sjón­ar­spili. Mikilli vinnu og miklum fjár­munum hefur aug­ljós­lega verið telft fram af rúss­neskum stjórn­völdum til þess að gera sig­ur­dag­inn 2015 sem glæsi­leg­astan – burt séð frá efna­hags­legum þreng­ingum eða stöðu Rúss­lands innan alþjóða­sam­fé­lags­ins.

Höfundur er sagn­fræð­ingur og við­skipta­fræð­ingur, búsettur í Moskvu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár