Topp 10: Bestu Eurovison lögin

Eurovi­son söngvakeppnin er handan við hornið, en und­an­úr­slitin fara fram 19. og 21. maí og sjálft úrslita­kvöldið er síðan 23. maí í sjálfu höfu­vígi hámenn­ing­ar­tón­list­ar­innar, Vín­ar­borg. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kaf­aði ofan í sögu Eurovi­son og tók saman lista yfir tíu bestu lög keppn­innar frá upp­hafi, að hans mati.



  1. L´amour est bleu – Vicky Leandros




1967, Lúx­em­borg, 4. sæti

Lúx­em­borg var eitt af sig­ur­sæl­ustu þjóðum Eurovision, með alls fimm sigra, þar til þeir hættu snar­lega þát­töku árið 1994. Þessi smá­þjóð reiddi sig þó yfir­leitt á erlenda og þá sér­stak­lega franska laga­höf­unda og flytj­endur.L´amour est bleu er draumkennt popp­lag sem samið var af hinum franska André Popp og flutt af hinni grísku Vicky Leandros, sem var ein­ungis 18 ára þegar hún flutti það í Vín. Það var þó ekki í flutn­ingi Vicky sem lagið öðl­að­ist frægð. Franski hljóm­sveit­ar­stjórn­and­inn Paul Muriat gaf lagið út án söngs þetta sama ár og sú útgáfa varð mjög vin­sæl um allan heim, þá sér­stak­lega í Asíu. Árið 2011 end­ur­flutti Leandros lagið, en þá í teknó-útgáfu ásamt þýsku raf­hljóm­sveit­inni Scooter.

https://www.youtube.com/watch?v=nD4ib9-laGY

 



  1. Den vilda - One More Time




1996, Svíþjóð, 3. Sæti

Fyrir keppn­ina í Osló var Den vilda talið eitt sig­ur­strang­leg­asta lagið en tap­aði að lokum fyrir The Voice, einum af mörgum sig­ur­lögum Íra. Síðan hefur lagið fallið í gleymsku. Það var samið af Peter Grönvall, syni Bennys And­ers­son úr ABBA, og flutt af hljóm­sveit hans One More Time sem hætti skömmu eftir keppn­ina. Lagið er rólegt og draumkennt og sungið af tveimur söng­konum. Færeyska söng­konan Eivör Páls­dóttir söng lagið með breyttum texta árið 2008 með Frostrósum og hét það þá Dansaðu vindur. Útgáfa Eivarar var sló heldur betur í gegn hér á landi en þá sem jóla­lag og var loks gefin út sem smá­skífa árið 2013.

https://www.youtube.com/watch?v=Evn1biXeDJ8

 



  1. Wild Dances – Ruslana




2004, Úkraína, 1. Sæti

Wild Dances er ein­hver ein­kenni­leg­asti bræð­ingur sem unnið hefur keppn­ina. Það er tölvu­popp­lag með þjóð­lagaí­vafi, stórum horn­lúðrum og dynj­andi bumbu­slætti. Flytj­and­inn Ruslana Lyzhychko og dans­arar hennar voru klædd í leður og loð­feld sem minnti bæði á neð­an­dals­menn og Mad Max. Með þessu fylgdi svo mikið ljósashow, eld­tungur og eld­ingar. Þetta var nokk­urs konar heimsenda­at­riði. Þrátt fyrir miklar vin­sældir og frægð lags­ins var það langt því frá öruggt með sig­ur­inn í Istanbúl. Það var í öðru sæti í und­an­úr­slit­unum og háði harða bar­áttu við serbneska lagið Lane Moje og gríska lagið Shake It í úrslit­unum. Ruslana hefur síðan notið mik­illa vin­sælda í Austur Evrópu. Hún vinnur mikið að góð­gerð­ar­málum og hefur setið á úkra­ínska þing­inu.

https://www.youtube.com/watch?v=10XR67NQcAc



  1. Nel blu dipinto di blue (Volare) – Domenico Modugno




1958, Ítalía, 3. sæti

Árangur lags­ins í Eurovision end­ur­speglar á engan hátt vin­sældir þess og áhrif. Af þeim tíu lögum sem tóku þátt, í bænum Hil­versum í Hollandi, end­aði það í þriðja sæti með innan við helm­ing af stigum sig­ur­lags­ins Dors, mon amourfrá Frakk­landi. Flytj­and­inn og laga­höf­und­ur­inn, Domenico Modugno, fór svo með lagið vestur til Ameríku þar sem það sló alger­lega í gegn. Lagið varð marg­verð­launað og topp­aði vin­sælda­listana sem er óal­gengt fyrir lög sem ekki eru á ensku. Fjöl­margir heims­frægir tón­list­ar­menn hafa tekið upp sínar eigin útgáfur af lag­inu og má þar nefna Louis Arm­strong, David Bowie, The Gipsy Kings og Luciano Pavarotti. Frægastu útgáfu lags­ins á þó án nokk­urs vafa Dean Martin. Lagið er ball­aða og þykir einmitt mjög hentug fyrir Las Vegas-söngv­ara eins og Martin.

https://www.youtube.com/watch?v=70PYINHfVjI

 



  1. Hold Me Now – Johnny Logan




1987, Írland, 1. Sæti

Írar hafa unnið Eurovision oftar en nokkrir aðrir, alls sjö sinnum. Í raun voru yfir­burðir Íra og Breta ástæðan fyrir því að tungu­mála­notk­unin í keppn­inni var gefin frjáls árið 1998. Síðan þá hefur hvorug þjóðin unnið. Johnny Logan hefur unnið keppn­ina þrisvar sinnum, þar af tvisvar sem flytj­andi. Hápunkt­ur­inn í Eurovision-sögu Íra er klár­lega Hold Me Now, sem hann flutti í Brussel. Hann vann nokkuð örugg­lega og lagið varð vin­sælt í Evrópu í kjöl­farið. Lagið er kraft­ball­aða sem ein­ungis níundi ára­tug­ur­inn gat fram­kallað. Hvítu fötin sem Logan klædd­ist voru einnig sér­stak­lega eft­ir­minni­leg. Það er ekki að ástæðu­lausu að hann er kall­aður Herra Eurovision.

https://www.youtube.com/watch?v=kSXx7-EceBA



  1. Euphoria – Loreen




2012, Svíþjóð, 1. sæti

Euphoria þótti lang­sig­ur­strang­leg­asta lagið fyrir keppn­ina í Azerbaijan 2012. Lagið vann með rúm­lega 100 stigum meira en rúss­neska lagið Party for Everybody sem lenti í öðru sæti og það var ekki langt frá því að slá stiga­met Alex­and­ers Rybak frá 2009. Það var samið af þraut­reyndu Eurovision laga­höf­und­unum Peter Boström og Thomas G:son (Gustafs­son). G:son hefur samið alls 68 lög í 11 löndum og 10 af þeim hafa kom­ist í loka­keppnir. Euphoria er danslag sem ber keim bæði af níunda og tíunda ára­tug sein­ustu aldar. Flutn­ing­ur­inn á lag­inu var stór­brot­inn. Flytj­and­inn Loreen, sem ættuð er frá Marokkó, var ein á svið­inu í víðum fötum og dans­aði dans sem minnti helst á Kung Fu eða Karate æfingar. Í aðdrag­anda keppn­innar komst hún í frétt­irnar fyrir að gagn­rýna mann­rétt­inda­brot stjórn­valda í Azerbaijan, keppn­is­höld­urum til mik­illar gremju.

https://www.youtube.com/watch?v=Pfo-8z86x80

 



  1. Satellite – Lena




2010, Þýska­land, 1. Sæti

Satellite var samið af Julie Frost, marg­verð­launum laga­höf­undi sem m.a. hefur unnið með Madonnu, Beyonce Knowles og Black Eyed Peas. Það var flutt af Lenu Meyer-Landrut sem var nýorðin 19 ára á úrslita­kvöld­inu í Osló. Bæði lagið og sviðs­fram­koman þóttu fersk og öðru­vísi. Hér var ekki um neitt ljósashow, skær­lit­aða bún­inga og trumbu­slátt að ræða. Bak­radda­söngv­ar­arnir voru faldir og Lena var í lát­lausum svörtum kjól og dans­aði að því virt­ist óæfðan dans. Lagið þurfti ein­fald­lega engar umbúðir. Bjagaður og nokkuð sér­stakur ensku­fram­burður Lenu gaf lag­inu einnig mik­inn sjarma. Fyr­ir­fram var búist við að Þjóð­verjar yrðu meðal efstu þjóða en yfir­burðir þeirra komu þó nokkuð á óvart. Þeir unnu með 76 stiga mun en þetta var aðeins annar sigur Þjóð­verja í keppn­inni.

https://www.youtube.com/watch?v=-qnsZgQe1tU

 



  1. Eres tu – Mocedades




1973, Spánn, 2. Sæti

Keppnin 1973 var mjög jöfn og á end­anum stóðu heima­menn í Lúx­em­borg uppi sem sig­ur­veg­arar með lagi sem í dag þykir ekki merki­legt. Í öðru sæti lenti lagið Eres tu sem flutt var af basknesku þjóð­laga­hljóm­sveit­inni Mocedades. Mögulega höml­uðu deilur um höf­unda­rétt lags­ins sigri en lagið þótti líkj­ast júgóslav­neska Eurovision lag­inu Brez besed frá árinu 1966. Lagið varð þó vin­sælt um allan heim og var flutt á ensku sem Touch the Wind. Má t.a.m. heyra lagið í hinni bráð­fyndnu kvik­mynd Tommy Boy. Fjöl­margir tón­list­ar­menn eins og t.d. Bing Crosby og Perry Como hafa spreytt sig á lag­inu. Þó að lagið hafi ekki unnið þykir það almennt vera besta fram­lag Spán­verja í sög­unni.

https://www.youtube.com/watch?v=JUQnlXsISvg

 



  1. Love Shine a Light – Katrina & The Waves




1997, Bretland, 1. Sæti

Katrina & The Waves var hljóm­sveit sem átti einn mega­hitt­ara á níunda ára­tugnum. Það var lagið Walking on Sunshine sem kom út árið 1985 og hélt þeim á floti í nokkur ár. Á tíunda ára­tugnum var bandið aftur á móti nán­ast horfið í gleymsk­unnar dá þar til það tók þátt í Eurovision. Love Shina a Light, sem er gospels­legið popp-rokk lag, vann með tölu­verðum yfir­burðum. Lagið fékk 227 stig og var 70 stigum á undan gest­gjöf­unum, Írum, sem hefðu ann­ars unnið sína fimmtu keppni á sex árum. Þetta var jafn­framt stiga­met í keppn­inni sem átti eftir að standa allt til árs­ins 2004 en þá var und­an­úr­slitum bætt inn í og stiga­gjöfin bólgn­aði út. Eurovision var þó skamm­góður vermir fyrir hljóm­sveit­ina því að hún leyst­ist upp skömmu síðar.

https://www.youtube.com/watch?v=gJWnM21JUB8

 



  1. Non ho l´etaá – Gigliola Cinquetti




1964, Ítalía, 1. sæti

Sigur lags­ins í Kaup­manna­höfn er sá stærsti í Eurovision sög­unni. Non ho l´etaá fékk næstum þrefalt fleiri stig en breska lagið I Love the Little Things sem end­aði í öðru sæti. Hin 16 ára gamla Cinquetti var klöppuð upp eftir flutn­ing­inn sem var óvana­legt. Í kjöl­farið varð lagið vin­sælt um alla Evrópu. Það varð sér­stak­lega vin­sælt hér á Íslandi, en þá ekki í flutn­ingi Cinquetti heldur Ellýar Vil­hjálms. Heyr mína bæn er einn af allra stærstu slög­urum íslenskrar tón­list­ar­sögu, tekið upp árið 1965 með texta eftir Ólaf Gauk. Lagið hefur sér­staka þýð­ingu fyrir stuðn­ings­menn K.R. þar sem það er inn­göngu­lag knatt­spyrnu­liðs­ins.

https://www.youtube.com/watch?v=Utd9cHBPfRA

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár