Illugi hættur við að lækka útvarpsgjald til Ríkisútvarpsins

Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefur fallið frá áformum um frek­ari lækkun útvarps­gjalds­ins á árinu 2016. Útvarps­gjaldið er helsta tekju­lind Rík­is­út­varps­ins (RÚV). Hann hefur þegar til­kynnt þetta í þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins og und­ir­tökur þing­manna við þessum áformum voru mis­jafnar. Enn fremur hefur Illugi skipað þriggja manna nefnd, sem Eyþór Arnalds leiðir, sem ætlað er að fara yfir rekstur RÚV und­an­farin ár. Nefndin á að skila nið­ur­stöðum sínum í sumar. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

[caption id="attachment_11958" align="alignnone" width="624"] Illugi Gunn­ars­son, mennta og menn­ing­ar­mála­ráð­herra Íslands.[/caption]

Mikið fjaðrafok var í kringum RÚV í lok síð­asta árs eftir að til­kynnt var að fyr­ir­tækið, sem er með tæpa sex millj­arða króna í rekstr­ar­tekjur á þessu rekstr­ar­ári að með­töldum aug­lýs­inga­tekjum, myndi fá útvar­spgjaldið óskert (áður hafði hluti þess verið not­aður til ann­arra verk­efna rík­is­sjóðs) en að það yrði lækkað. Árið 2014 var það 19.400 krónur á hvern greið­enda, en er 17.800 krónur í ár. Árið 2016 átti það að lækka enn frekar og verða 16.400 krónur. Stjórn­endur RÚV sögð­ust ein­ungis geta rekið RÚV og sinnt lög­bundnu hlut­verki þess ef fyr­ir­tækið fengi útvar­spgjaldið óskert og með því að selja eignir upp í skuldir. Hávær mót­mæli urðu gegn því sem kallað var aðför að RÚV. Stjórn­ar­meiri­hlut­inn stóð hins vegar fast á sínu og fjár­lög voru sam­þykkt með lækk­un­ina inn­an­borðs. Nú hefur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hætt við að lækka útvarps­gjaldið frekar.

Skera þarf verulega niður


Í Morg­un­blað­inu segir að þriggja manna emb­ætt­is­manna­nefnd frá for­sætis-, fjár­mála- og mennta­mála­ráðu­neyti hafi skoðað stöðu Rík­is­út­varps­ins og rekstur að und­an­förnu, til þess að stjórn­völd hefðu sjálf­stæða mynd af því hver raun­veru­leg staða stofn­un­ar­innar væri. Nið­ur­staðan sé sú að staðan sé jafnslæm og stjórn­endur RÚV hafa sagt hana vera. Þrátt fyrir að útvarps­gjaldið yrði óbreytt, 17.800 krónur, þyrfti samt að skera veru­lega niður.

Ónefndur þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir við Morg­un­blaðið að ljóst verði að ekki verði allir þing­menn sáttir með þá ákvörðun Illuga að hætta við að skera niður útvarps­gjaldið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár