Reglur brotnar í Reykjavíkurmaraþoni að mati laganefndar FRÍ

Laga­nefnd Frjáls­í­þrótta­sam­bands Íslands (FRÍ) kemst að þeirri nið­ur­stöðu að reglur Alþjóða frjáls­í­þrótta­sam­bands­ins hafi verið brotnar í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu, sem fram fór 23. ágúst síð­ast­lið­inn, þegar hjól­reiða­menn hjól­uðu á undan hlauparanum Arnari Pét­urs­syni í hlaup­inu. Kjarninn greindi fyrstur fjöl­miðla frá mál­inu í sept­em­ber á síð­asta ári. Brotið er hins vegar látið óátalið vegna ágalla við fram­kvæmd hlaups­ins.

Arnar kom fyrstur Íslend­inga í mark í hlaup­inu og var krýndur Íslands­meist­ari karla í mara­þoni í kjöl­farið. Hlaupar­inn Pétur Sturla Bjarna­son, sem varð annar í enda­markið, kærði úrslit hlaups­ins til yfir­dóm­nefndar Reykja­vík­ur­mara­þons­ins þar sem hjól­reiða­menn bæði fylgdu Arnari eftir og hjól­uðu á undan honum um þrjá fjórðu hluta hlaupa­leið­ar­innar.

Sakaður um svindl í hlaupinu


Í kæru máls­ins var þess kraf­ist að þátt­töku­réttur Arnars yrði ógiltur og hann sviptur titl­inum, með vísan í 10. grein reglna Reykja­vík­ur­mara­þons, þar sem segir: „Hlaupa­brautin er ein­göngu ætluð kepp­endum. Ekki er heim­ilt að fylgja hlaup­urum gang­andi, hlaup­andi, á hjóli eða öðrum far­ar­tækjum (und­an­þága fyrir fylgd­ar­menn fatl­aðra). Það er á ábyrgð þátt­tak­enda að vísa frá þeim sem fylgja.“ Þá segir í 18. grein regln­anna: „Brot á ofan­greindum reglum ógilda þátt­töku­rétt í hlaup­inu.“

Þrátt fyrir að við­ur­kenna í úrskurði sínum að reglur hlaups­ins hafi verið brotnar, vís­aði yfir­dóm­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons­ins kærunni frá. Ekki þótti sannað að Arnar hafi notið lið­sinnis hjól­reiða­mann­anna. Dómstóll Íþrótta- og ólymp­íu­sam­bands Íslands (ÍSÍ) sýkn­aði Arnar Pét­urs­son af kæru máls­ins með vísan í reglur Alþjóða frjáls­í­þrótta­sam­bands­ins um götu­hlaup, sem væru reglum Reykja­vík­ur­mara­þons­ins æðri, og áfrýj­un­ar­dóm­stóll sam­bands­ins tók sýknu­dóm­inn ekki til efn­is­legrar með­ferðar vegna ágalla við kæru­með­ferð. Í fyrr­greindu áliti laga­nefndar FRÍ, er litið svo á að málið hafi ekki hlotið efn­is­lega nður­stöðu innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar sökum þess.

Þó dóm­stólar ÍSÍ fari með deilu­mál sem koma upp innan sam­bands­ins, getur stjórn FRÍ úrskurðað um mál er varða keppn­is­reglur. Pétur Sturla Bjarna­son hefur vísað kæru máls­ins til stjórnar FRÍ, og í áliti laga­nefndar sam­bands­ins er því beint til stjórn­ar­innar að hún úrskurði efn­is­lega um kæruna.

Í reglum Alþjóða frjáls­í­þrótta­sam­bands um götu­hlaup er kveðið á um skýrt bann við hraða­stjórnun frá utan­að­kom­andi, og að kepp­andi sem njóti aðstoðar skuli fá við­vörun frá dóm­ara og loks úti­lokun verði end­ur­tekn­ing á umræddu broti.

Mynd­bandið hér að neðan var á meðal gagna sem fylgdu upp­haf­legri kæru máls­ins.

https://vimeo.com/105774205

Óátalið brot vegna ágalla við framkvæmd hlaupsins


Í áliti laga­nefndar FRÍ segir: „Laga­nefnd telur eftir að hafa farið yfir fyr­ir­liggj­andi gögn að það athæfi sem kært er telj­ist aðstoð í skiln­ingi reglu 144. Laga­nefnd telur hins vegar einnig að ekki sé hægt að beita við­ur­lögum gegn slíku broti eftir að keppni lýkur, sér­stak­lega í ljósi þess að við­kom­andi kepp­andi fékk ekki aðvörun frá dóm­ara á meðan á keppni stóð, sem er skil­yrði brott­vís­unar úr keppni eins og að framan greinir.“

Frá árinu 2003 hefur umsjón Reykja­vík­ur­mara­þons verið í höndum Íþrótta­banda­lags Reykja­víkur. Sjálf­stæðum Reglum hlaups­ins hefur verið breytt síðan síð­asta hlaup fór fram, þar sem bætt hefur verið inn í að hlaupið heyri undir áður­nefndar reglur Alþjóða­frjáls­í­þrótta­sam­bands­ins.

Laga­nefnd FRÍ telur að nauð­syn­legt sé end­ur­skoða reglu­verkið í kringum fram­kvæmd Reykja­vík­ur­mara­þons, í ljósi mara­þon­máls­ins svo­kall­aða. „Þær keppn­is­reglur sem gilda eiga verða að vera settar af FRÍ, þá annað hvort með því að bæta ákvæðum við gild­andi reglu­gerð um Meist­ara­móti Íslands í frjálsum íþróttum, utan­húss, eða með því að setja sér­staka reglu­gerð um fram­kvæmd þessa hluta móts­ins.“

Þá kallar laga­nefndin loks eftir því að eft­ir­lit með fram­kvæmd hlaups­ins verði eflt. „Laga­nefnd telur einnig í ljósi máls­ins að rétt sé að ganga eftir því við hvern þann sem tekur að sér fram­kvæmd mara­þon­hluta Meist­ara­móts Íslands að fram­kvæmd móts­ins verði í sam­ræmi við það sem keppn­is­reglur gera ráð fyrir, meðal ann­ars hvað varðar fjölda dóm­ara og stað­setn­ingu þeirra.“

Eins og Kjarninn greindi frá á þriðju­dag­inn hefur enda­sprettur Arnars Pét­urs­sonar í Víða­vangs­hlaupi ÍR, sem fram fór sum­ar­dag­inn fyrsta, vakið mikla umræðu innan hlaupa­sam­fé­lags­ins. Arnar sigr­aði hlaupið naum­lega en á mynd­bandi sem RÚV birti, má sjá hvernig hann styttir sér leið á enda­sprett­inum með því að hlaupa yfir veg­kant, og nær þar með for­skoti á keppi­naut sinn. Það meinta brot var sömu­leiðis látið óátalið vegna ágalla við fram­kvæmd Víða­vangs­hlaups­ins, en ÍR hefur lofað að gera braga­bót í þeim efnum í fram­tíð­inni.

https://vimeo.com/126132945

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár