Lokasprettur Arnars Péturssonar til skoðunar hjá hlaupstjóra ÍR og FRÍ

Arnar Pét­urs­son, Íslands­meist­ari karla í mara­þoni, kom fyrstur í mark í Víða­vangs­hlaupi ÍR, sem fram fór venju sam­kvæmt á sum­ar­dag­inn fyrsta, þann 23. apríl síð­ast­lið­inn, og var krýndur Íslands­meist­ari karla í 5 kíló­metra götu­hlaupi við kom­una í enda­markið.

Hlaup­stjóri Víða­vangs­hlaups­ins, Sigurður Þór­ar­ins­son, segir að leitað hafi verið álits Frjáls­í­þrótta­sam­bands Íslands (FRÍ) á fram­kvæmd hlaups­ins, vegna ábend­ingar um að loka­sprettur Arnars í hlaup­inu hafi ekki verið í sam­ræmi við reglur Alþjóða frjáls­í­þrótta­sam­bands­ins um götu­hlaup, sem fram­kvæmd Víði­vangs­hlaups ÍR heyrir undir.

RÚV sýndi mynd­band af loka­sprett þeirra Arnars Pét­urs­sonar og Ingvars Hjarta­sonar í úrslitum karla, en þar má sjá hvernig Arnar sker síð­ustu beygju hlaupa­braut­ar­innar og nær þar með for­skoti á keppi­naut sinn. Mynd­bandið má sjá hér að neðan.

https://vimeo.com/126132945

„Við fyrstu sýn er þetta ekki brot á neinum reglum, ekki alþjóða­reglum frjáls­í­þrótta­sam­band­anna og þá ekki íslenskum heldur, en mögu­lega hefði braut­ar­varslan mátt vera betri þarna,“ segir Sigurður Þór­ar­ins­son hlaup­stjóri í sam­tali við Kjarnann. „Mælingin sem er gerð á braut­inni skil­greinir þetta ekki nákvæm­lega heldur, þannig að það eru margir vinklar á þessu sem þarf að skoða.“

Atvikið vakið umræðu innan hlaupasamfélagsins


Í reglum Alþjóða frjáls­í­þrótta­sam­bands­ins um götu­hlaup segir um fram­kvæmd keppna: „Í götu­hlaupum má kepp­andi hverfa út af vegi eða braut með leyfi og undir eft­ir­liti dóm­ara, svo fremi að tryggt sé að með því að hverfa út af braut stytti hann ekki keppn­is­vega­lengd sína.“ Þá segir sömu­leiðis í regl­unum að yfir­dóm­ara beri að vísa kepp­anda úr keppni ef hann er sann­færður, eftir skýrslu dóm­ara eða braut­ar­dóm­ara, um að umræddur kepp­andi hafi farið út fyrir merkta braut og þar með stytt sér þá leið sem átti að fara.

„Fólk út í bæ hafði sam­band við okkur dag­inn eftir hlaupið til að spyrj­ast út í þetta, þannig að við leit­uðum álits hjá FRÍ um hvort reglur hafi verið brotnar og þá hvaða reglur. Í öllum götu­hlaupum eru staðir þar sem er hægt að skera af hlaupa­leið­inni, til dæmis þegar menn hlaupa upp á gang­stéttar sem er alvana­legt og fleiri hund­ruð manns gerðu í þessu hlaupi, og mer sýn­ist að þetta atvik sé ekk­ert öðru­vísi en það. Reglur Alþjóða frjáls­í­þrótta­sam­bands­ins um götu­hlaup eru ekki skýrar hvað þetta varðar, og þetta tíðkast all­staðar í götu­hlaupum.“

Umrætt atvik í Víða­vangs­hlaup­inu hefur vakið tölu­verða umræðu í hlaupa­sam­fé­lag­inu. Þar eru menn almennt sam­mála um að ekki sé hægt að bera saman horn í miðju götu­hlaupi, sem hund­ruð hlaupara skera og græða þar af leið­andi lítið á, við beygju í enda­sprett í Íslands­móti.

Úrslitin standa óhögguð


Þar sem að úrslit hlaups­ins voru ekki kærð innan 30 mín­útna frá því að úrslit þess voru birt, standa þau óhögguð sam­kvæmt reglum Víða­vangs­hlaups­ins.

„Við þurftum í sjálfu sér ekki að gera neitt í þessu máli, vegna þess að úrslitin voru ekki kærð, og það er ekk­ert víst að FRÍ gefi neitt frá sér varð­andi þetta af sömu ástæðu. Hvað sem ger­ist þá standa úrslitin óhögguð, þó regl­urnar séu ef til vill óskýrar á nokkrum stöðum, þá eru þær alveg skýrar hvað þetta varðar.“

Sigurður segir að ákveðið hafi verið að skoða atvikið og leita álits FRÍ til að læra af mál­inu. „Ef eitt­hvað í fram­kvæmd hlaups­ins hefði mátt betur fara, þá er rétt að skoða það.“

[caption id="attachment_27120" align="alignnone" width="810"] Aníta Hin­riks­dóttir, sem varð hlut­skörpust kvenna í Víða­vangs­hlaupi ÍR, og Arnar Pét­urs­son taka við sig­ur­verð­laun­unum í Hörpu. Mynd: Fés­bók­ar­síða Víða­vangs­hlaups ÍR[/caption]

Gagnrýnir ekki Arnar, heldur framkvæmd hlaupsins


Hlaupar­inn Ingvar Hjart­ar­son, sem kom í enda­mark Víða­vangs­hlaups­ins á eftir Arnari, segir að hann hafi ekki tekið eftir því þegar Arnar skar síð­ustu beygju hlaups­ins. „Maður er svo mikið í sínum eigin heimi, þannig að ég missti af þessu. En eftir að ég kom í mark komu fjöl­margir að máli við mig og sögðu mér hvað hefði gerst. Ég sá svo ekki atvikið með mínum eigin augum fyrr en ég sá mynd­bandið á RÚV, en þá var orðið of seint að kæra úrslitin, sem ég hefði gert hefði ég vitað af kæru­frest­inum,“ segir Ingvar í sam­tali við Kjarnann.

Hann gagn­rýnir ekki keppi­naut sinn og hlaupa­fé­laga fyrir atvikið, en gagn­rýnir hins vegar fram­kvæmd hlaups­ins. „Þetta ger­ist í hita leiks­ins, hins vegar vant­aði klár­lega braut­ar­vörð þarna á hornið, sem ég svo sá að tók sér stöðu þarna eftir að við vorum komnir í mark. Ég hefði kært úrslitin út af ann­mörkum á fram­kvæmd hlaups­ins á þessum krítíska tíma­punkti í hlaup­inu, á sjálfum lokakafl­anum.“

Sýknaður af ásökunum um svindl í Reykjavíkurmaraþoninu


Eins og Kjarninn greindi frá 11. sept­em­ber var Arnar Pét­urs­son sak­aður um svindl í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu, sem fram fór 23. ágúst síð­ast­lið­inn. Arnar sigr­aði hlaupið með yfir­burðum, en hlaupar­inn Pétur Sturla Bjarna­son, sem kom annar í mark á eftir Arnari, kærði úrslit hlaups­ins og sagði að Arnar hefði notið lið­sinnis hjól­reiða­manna í hlaup­inu.

Yfir­dóm­nefnd mara­þons­ins við­ur­kenndi í úrskurði sínum að reglur hlaups­ins hafi verið brotnar í umrætt sinn, en taldi ósannað að Arnar hafi notið aðstoðar hjól­reiða­mann­anna og vís­aði kærunni frá. Dómstóll Íþrótta- og ólymp­íu­sam­bands Íslands (ÍSÍ) stað­festi síðar úrskurð yfir­dóm­nefndar og áfrýj­un­ar­dóm­stóll sam­bands­ins vís­aði mál­inu frá vegna ann­marka á kæru­ferli máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár