„Ekki keppenda að kæra þegar línustökkvari fer yfir línu“

Ingvar Hjart­ar­son, sem kom annar í mark á eftir Arnari Pét­urs­syni í Víða­vangs­hlaupi ÍR sem fram fór á fimmtu­dag­inn, hefur sent hlaup­stjórn form­lega fyr­ir­spurn vegna fram­kvæmdar hlaups­ins þar sem hann krefst skýr­inga á brota­lömum við dóm­gæslu. Þá vill hann að kæru­frestur hlaups­ins verði end­ur­skoð­aður í ljósi þess að gögn hafi ekki legið fyrir áður en frest­ur­inn rann út. Kjarninn hefur erindi Ingvars til ÍR undir höndum.

Loka­sprettur Arnars, sem er ríkj­andi Íslands­meist­ari karla í mara­þoni, í Víða­vangs­hlaup­inu hefur vakið athygli og heitar umræður í hlaupa­sam­fé­lag­inu, eftir að mynd­band birt­ist á RÚV þar sem sést hvernig Arnar styttir sér leið í síð­ustu beygju hlaupa­braut­ar­innar og nær þar með for­skoti á keppi­naut sinn. Vegna ábend­inga eftir að hlaupi lauk hefur hlaup­stjórn Víða­vangs­hlaups­ins leitað álits hjá Frjáls­í­þrótta­sam­bandi Íslands (FRÍ) um hvort reglur um götu­hlaup hafi verið brotnar í umrætt sinn.

https://vimeo.com/126132945

Í frétt Kjarnans, sem birt­ist í morgun, segir Ingvar að hann hafi ekki tekið eftir því þegar Arnar stytti sér leið í hlaup­inu. „Maður er svo mikið í sínum eigin heimi, þannig að ég missti af þessu. En eftir að ég kom í mark komu fjöl­margir að máli við mig og sögðu mér hvað hefði gerst. Ég sá svo ekki atvikið með mínum eigin augum fyrr en ég sá mynd­bandið á RÚV, en þá var orðið of seint að kæra úrslitin, sem ég hefði gert hefði ég vitað af kæru­frest­inum,“ sagði Ingvar í sam­tali við Kjarnann.

Krefur ÍR skýringa á brotalömum við framkvæmd hlaupsins


Í áður­nefndri fyr­ir­spurn sem Ingvar sendi Sigurði Þór­ar­ins­syni hlaup­stjóra Víða­vangs­hlaups­ins í morgun, krefst hann þess að fá að vita til hvaða ein­stak­linga eða nefndar innan FRÍ hafi verið leitað og hvort það sé ekki hlut­verk braut­ar­varða að til­kynna ef hlaup­ari brýtur reglur hlaups­ins. Þá veltir hann fyrir sér hvort fram­komið mynd­band af atvik­inu, breyti ekki ein­hverju um afstöðu hlaupa­nefnd­ar­innar.

„Ég sé ekki almenn­in­lega hvað gerð­ist fyrr en í gær þegar að ég sé mynd­bandið á net­inu. Mér þykir afskap­lega slakt ef að kepp­andi þurfi að kæra þegar að braut­ar­verðir og stjórn­ar­með­limur FRÍ sjá þetta og geta horft fram­hjá þessu þegar þeir sjá þetta miklu betur en ég. Auk þess vissi ég ekki um þennan kæru­frest því ég heyrði eftir hlaupið að það væri 2-3 daga kæru­frestur. Það er t.d. ekki hlut­verk kepp­enda að kæra þegar lang­stökkvari stígur yfir línu í stökki heldur eru starfs­menn sem dæma þá um stökkið,“ skrifar Ingvar Hjart­ar­son í erindi til hlaup­stjóra Víða­vangs­hlaups­ins.

Samkvæmt frétt á Vísi er von á yfir­lýs­ingu frá ÍR vegna máls­ins síðar í dag, en ekki standi til að breyta úrslitum Víða­vangs­hlaups­ins. Þá muni álit FRÍ á atvik­inu sömu­leiðis fylgja yfir­lýs­ingu ÍR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár