„Arnar hefði átt að viðurkenna mistökin og óska Ingvari til hamingju með sigurinn“

Líflegar umræður hafa skap­ast inn á Facebook-síðu Félags Mara­þon­hlaupara um umdeildan loka­sprett Arnars Pét­urs­sonar, Íslands­meist­ara karla í mara­þoni, í Víða­vangs­hlaupi ÍR sem haldið var venju sam­kvæmt á sum­ar­dag­inn fyrsta, þann 23. apríl síð­ast­lið­inn. Arnar var krýndur Íslands­meist­ari karla í 5 kíló­metra götu­hlaupi við kom­una í enda­markið.

Á mynd­bandi sem birt­ist á RÚV má sjá hvernig Arnar sker síð­ustu beygju hlaupa­braut­ar­innar, fer inn fyrir staur og hleypur yfir veg­kant, og nær þar með for­skoti á keppi­naut sinn, hlauparann Ingvar Hjart­ar­son, en hlaupararnir voru nær sam­hliða fyrir atvikið. Sjá umrætt mynd­band hér að neðan.

https://vimeo.com/126132945

Hlaup­stjóri Víða­vangs­hlaups­ins hefur óskað eftir áliti Frjáls­í­þrótta­sam­bands Íslands, um hvort reglur um götu­hlaup hafi verið brotnar í umrætt sinn, eftir að ábend­ingar bár­ust frá fólki um atikið. Kjarninn greindi frá þessu í dag.

Heitar umræður innan hlaupasamfélagsins


Ofan­greint mynd­band var birt inn á Facebook-síðu Félags mara­þon­hlaupara, sem hefur tæp­lega 1.700 með­limi, og spun­ust þar líf­legar umræður í kjöl­farið, þar sem athæfi Íslands­meist­ara karla í mara­þoni er ýmist for­dæmt sem og fram­kvæmd hlaups­ins, eða sig­ur­veg­ar­anum komið til varnar.

Daníel Smári Guð­munds­son, þekktur lang­hlaup­ari og þjálf­ari, leggur orð í belg: „Í öllum götu­hlaupum eru staðir þar sem er hægt að skera af hlaupa­leið­inni, og ég held að flestir skyn­samir hlauparar hafi skorið af hlaupa­leið með því að hlaupa upp á gang­stéttar. Ég veit ekki til þess að það sé ólög­legt, nema merk­ingar banni slíkt. Óheppi­legt að það skildi vera hægt að skera þetta horn rétt við markið. Mistök hjá skipu­leggj­endum hlaups­ins að loka ekki horn­inu með grindum. Ég bið fólk í tján­ing­ar­þörf hér inni á síð­unni að slaka á og vera ekki að búa til eitt­hvað drama og nei­kvæða umræðu gagn­vart frá­bæru ÍR hlaupi og flottum sig­ur­veg­ara hlaups­ins.“

Gísli Ásgeirs­son, sem er stofn­fé­lagi og fyrrum stjórn­ar­maður í Félagi mara­þon­hlaupara til fjölda ára, skrifar: „Í hita leiks­ins getur ýmis­legt gerst. Í þessu til­viki hefðu braut­ar­verðir átt að til­kynna mark­dóm­ara um stytt­ingu á leið á enda­spretti og hann metur hvort við­kom­andi hafi grætt á því eða brotið reglur. Þjálfari getur einnig lagt fram kvörtun sem verður að taka efn­is­lega fyrir. Kepp­endur, sem þekkj­ast flestir vel, eiga ekki að þurfa að standa í svona.

Höfum í huga að reglur um götu­hlaup eru ekki 100% skýrar en þar sem brautin er kvörðuð og mæld sam­kvæmt ströngum reglum, er gert ráð fyrir að hlaupið sé á göt­unni og mæl­ingin mið­ast við brún gang­stéttar

AP (Arnar Pét­urs­son) hefði getað gert sér grein fyrir mis­tökum sínum og við­ur­kennt þau, afþakkað sek­únd­una sem hann græddi á þessu, tekið í hönd Ingvars og óskað honum til ham­ingju með sig­ur­inn.“

Önnur vafasöm uppákoma


Þá for­dæmir lang­hlaupar­inn Jón Jóhann­es­son athæfið: „Þetta má ekki, hann á að fylgja göt­unni. Ég var þarna á horn­inu í góðra vina hóp og fylgd­ist með og jú menn göptu og höfðu orð á því þarna hefði hann gróf­lega stytt sér leið. Og það sem meira er hann not­aði beygj­una til að ná for­skoti á keppi­naut sinn. Leið­in­legt fyrir þennan ann­ars ágæta hlaupara að lenda aftur í svona vafa­samri upp­á­komu.“

Fyrri upp­á­koman sem Jón vísar til er kæra sem lögð var fram á hendur Arnars Pét­urs­sonar, eftir að hann var krýndur Íslands­meist­ari karla í mara­þoni eftir sigur í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu, þar sem hann var sak­aður um að hafa brotið reglur með því að njóta lið­sinnis tveggja hjól­reiða­manna í hlaup­inu.

Yfir­dóm­nefnd mara­þons­ins við­ur­kenndi í úrskurði sínum að reglur hlaups­ins hafi verið brotnar í umrætt sinn, en taldi ósannað að Arnar hafi notið aðstoðar hjól­reiða­mann­anna og vís­aði kærunni frá. Dómstóll Íþrótta- og ólymp­íu­sam­bands Íslands (ÍSÍ) stað­festi síðar úrskurð yfir­dóm­nefndar og áfrýj­un­ar­dóm­stóll sam­bands­ins vís­aði mál­inu frá vegna ann­marka á kæru­ferli máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár