Ingemar Stenmark kann alls ekki að dansa

Fyrir þá sem ekki fylgj­ast með sænsku raun­veru­leika­sjón­varpi, sem lík­lega eru flestir les­endur Kjarnans, er best að taka fram strax að Ingemar Stenmark sigr­aði í sænsku útgáf­unni af sjón­varps­danskeppn­inni „Lets Dance.“ Í þætt­inum keppir frægt fólk í sam­kvæm­is­dönsum og það er óhætt að segja að það sé mis­dug­legt.

Ingemar Stenmark er til dæmis ekki góður dans­ari – reyndar er hann eig­in­lega mjög vondur dans­ari. En frá því að keppnin hófst fyrir um þremur mán­uðum hefur legið í loft­inu að hann myndi vinna. Keppnin og umtalið í kringum hana segir okkur nefni­lega afskap­lega margt um sænsku þjóð­arsál­ina og svo auð­vitað Stenmark sjálfan.

Hetjan sem allir elska


Þegar Stenmark var upp á sitt besta stöðv­að­ist Svíþjóð þegar hann keppti. Hlé var gert á störfum þings­ins, sjón­vörpum var rúllað inn í skóla­stofur og á götum úti safn­að­ist fólk saman fyrir utan raf­tækja­versl­anir og horfðu á útsend­ing­una í gegnum búð­ar­glugg­ann. Hann varð heims­meist­ari í svigi og stór­svigi árið 1978 og Ólymp­íu­meist­ari í sömu greinum 1980. Hann fékk hins vegar ekki að keppa á Ólymp­íu­leik­unum 1984 þar sem hann tald­ist vera atvinnu­maður, en þeir fengu ekki að keppa það árið. Hann er ennþá sig­ur­sæl­asti skíða­maður sög­unnar með 86 gull­verð­laun í svigi og stór­svigi en það voru einu grein­arnar sem hann keppti í.

Aðdáun Svía hefur skilað sér í fjöl­mörgum verð­launum og við­ur­kenn­ingum handa honum sem einn af fremstu íþrótta­mönnum lands­ins. Stenmark þótti hins vegar vera feim­inn og til eru mörg dæmi um við­töl þar sem hann svarar spurn­ingum einna helst með eins atkvæðis orðum.

Eitt sinn var Stenmark spurður hvernig hann hefði farið að því að sigra í ein­hverri keppn­inni. Svarið er fyrir löngu orðið klass­ískt í Svíþjóð: „De e bar å åk,“ það er bara að skíða. Í annað skipti þar sem ekki hafði gengið nógu vel vildi frétta­mað­ur­inn meina að Stenmark hefði getað gert betur. „Ef þú heldur að þetta sé svona létt skaltu bara skíða sjálfur,“ svar­aði Stenmark alvar­legur á svip.

Eins og margir aðrir var Stenmark ósáttur við skatta­stefnu sænskra stjórn­valda og þess vegna flutti hann lög­heim­ili sitt til Mónakó á níunda ára­tugnum. Þar bjó hann til 2006 þegar hann flutti aftur til Sví­þjóðar þar sem hann býr enn í dag. Síðustu ár hefur hann komið fram í mörgum sjón­varps­þáttum, meðal ann­ars í Meistari meist­ar­anna þar sem gamlir íþrótta­menn keppa hver við annan í ýmsum greinum á milli þess sem fer­ill þeirra er rifj­aður upp. Einhvern veg­inn lá það í loft­inu að hinn 55 ára gamli Stenmark stæði upp sem sig­ur­veg­ari enda kom það á dag­inn. Fáir bjugg­ust hins vegar við því að nokkrum árum síðar myndi hann sam­þykkja að taka þátt í danskeppni í sjón­varpi.

[caption id="attachment_26978" align="alignnone" width="760"] Skíða­kapp­inn sýnir hér blaða­ljós­mynd­urum gull­verð­launin sem hann hlaut á Vetr­ar­ólymp­íu­leik­unum í Lake Placid í Band­ríkj­unum árið 1980. Mynd: EPA[/caption]

Brosandi Stenmark fær skammir frá dómurunum


Segja má að fjöl­miðlar hafi gengið af göfl­unum þegar þetta frétt­ist. Frá fyrsta degi hafa slúð­ur­blöðin verið full af fréttum og bæði Afton­bla­det og Expressen kepp­ast við að búa til krassandi fyr­ir­sagnir. Yfir­leitt snú­ast þær um leyni­vopn skíða­manns­ins, átök hans við dóm­ar­ana eða við­brögð þeirra sem í hverri viku féllu úr keppni þrátt fyrir að vera miklu betri dans­arar.

Hörðustu gagn­rýnendur Sten­marks voru dóm­ar­arnir sem viku eftir viku minntu áhorf­endur heima í stofu á að þetta væri danskeppni, en ekki vin­sælda­keppni. Nú er engum blöðum um það að fletta að skíða­mað­ur­inn lagði mikið á sig enda kunni hann nán­ast ekk­ert að dansa áður en keppnin hófst. En það verður seint sagt að hann hafi takt­inn í mjöðmunum þótt honum hafi tek­ist að brosa í gegnum heilu þætt­ina. Í sænskum miðlum hefur einmitt verið sagt frá því að hingað til hafi bros frá Stenmark verið svona eins og hlaup­árs­dagur, kæmi einu sinni á fjög­urra ára fresti.

En allt kom fyrir ekki. Í úrslita­þætt­inum mætti hann hinni vin­sælu söng­konu Marie Ser­neholt sem allir voru sam­mála um að væri miklu betri dans­ari – meira að segja eig­in­kona Sten­marks sagði það eftir úrslitin. Pabbi Marie var ómyrkur í máli og sagði að sjón­varp­stöðin hefði mis­munað kepp­endum. Ljóst væri að TV4 hefði frá upp­hafi viljað að Stenmark stæði uppi sem sig­ur­veg­ari. Dómarinn Tony Irving var hund­fúll eftir úrslitin og sagði að það besta við að keppn­inni væri lokið væri að nú þyrfti hann ekki að heyra nafnið Stenmark enda­laust. Sjálfur var sig­ur­veg­ar­inn hissa og sagð­ist alls ekki hafa átt von á þessu.

Svíar eru æstir í raunveruleikasjónvarp


Áhugi Svía á raun­veru­leika­sjón­varpi og lífi ríka og fal­lega fólks­ins er miklu meiri en flestir átta sig á. Fyrir utan tíma­ritin og dag­blaðs­grein­arnar kepp­ast allar sjón­varps­stöðvar við að bjóða upp á þætti þar sem fræga fólkið spjallar við fræga fólkið, eldar með fræga fólk­inu, gerir upp hús með fræga fólk­inu eða keppir hvert við annað.

[quote font="0" align="right"]Eft­ir­sóknin í 15 mín­útna frægð er mikil, í Svíþjóð jafnt sem ann­ars staðar.[/quote]

Hér er hægt að sjá stefnu­móta­þætti þar sem bændur leita sér að maka og þætti þar sem fólk sem er skuldugt upp fyrir haus fær aðstoð með fjár­málin. Hér má fylgj­ast með örygg­is­vörðum í neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerfi Stokk­hólms að störfum og svo er auð­vitað boðið upp á sænskar útgáfur af Big Brother og ást­ar­dramanu Paradise Hotel þar sem ungt fólk með maga­vöðva, húð­flúr og gervi­brjóst reynir að láta líta út fyrir að það sé jafn­vel enn vit­laus­ara en það er í raun og veru. Síðast þegar aug­lýst var eftir kepp­endum í Paradise Hotel sóttu ríf­lega 2000 um fyrsta sól­ar­hring­inn en umsóknir voru fleiri en tíu þús­und þegar uppi var staðið. Eft­ir­sóknin í 15 mín­útna frægð er mikil, í Svíþjóð jafnt sem ann­ars staðar.

Það átti þess vegna ekki að koma neinum á óvart að Ingemar Stenmark skyldi sigra í Lets Dance. Fyrir utan að vera einn dáð­asti sonur þjóð­ar­innar var þátt­taka hans upp­skrift að raun­veru­leika­drama af bestu gerð með átökum, umdeildum ákvörð­unum og klúrnum brönd­urum þátta­stjórn­and­ans.

Sjálfur seg­ist Stenmark ætla að taka sér hlé frá fjöl­miðlum næstu mán­uði og njóta lífs­ins með fjöl­skyld­unni. Hann vill ekki meina að sig­ur­inn hafi verið ósann­gjarn, regl­urnar séu ein­fald­lega þannig að fólkið heima í stofu kjósi og það hafi kosið hann. Enn ein gull­verð­launin í safnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár