Tengja norrænt hugvit við bandaríska peninga

Alþjóð­leg ráð­stefna um leikja­iðnað og sýnd­ar­veru­leika á að leiða saman nor­ræn sprota­fyr­ir­tæki á sviði tölvu­leikja og sýnd­ar­veru­leika og fjár­festa frá Banda­ríkj­unum og Evrópu. Fjár­festar fá tæki­færi til að bóka einka­fundi með sprota­fyr­ir­tækj­unum fyrir við­burð­inn og átta fyr­ir­tæki fá tæki­færi til að kynna starf­semi sína í svo­kall­aðri Pitch-keppni. Meðal gesta verða áhrifa­miklir fjár­festar, frum­kvöðlar og útgef­endur á borð við David Gardner (London Venture Partners), Susana Meza Graham (Paradox Interactive), Dean Hall (RocketWerkz og DayZ) og fleiri.

Ráð­stefnan, sem heitir Slush Play, fer fram í Gamla Bíó 28. til 29. apríl næst­kom­andi og er skipu­lögð af Klak Innovit í sam­starfi við lyk­il­að­ila í íslenskum leikja­iðn­aði og þá sem standa að Slush-ráð­stefn­unni í Finn­landi. Ráð­stefnan þar er ein stærsta tækni- og sprota­ráð­stefna Evrópu og laðar að sér fólk úr ýmsum greinum hvaðanæva að úr heim­inum, en hana sóttu um 14.000 manns síð­asta haust.

Aðspurð um aðdrag­anda ráð­stefn­unnar segir Salóme Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Klak Innovit og Slush PLAY, að hug­myndin að ráð­stefn­unni hér­lendis hafi kviknað í lok síð­asta árs þegar lyk­il­ger­endur í íslensku leikja­sen­unni höfðu fengið vil­yrði fyrir styrk frá Nordic Game Institute til að halda ráð­stefnu um mál­efni grein­ar­innar á Íslandi. Hluti þeirra sótti Slush-ráð­stefn­una í Helsinki ásamt full­trúum Klak Innovit. Ráð­stefnan þótti fram­úr­skar­andi og Íslend­ing­arnir fengu hug­mynd um að halda ráð­stefnu í sam­starfi við Slush þar sem hug­myndin féll í ljúfan jarð­veg.

[quote font="0" align="right"]Það er gríð­ar­leg þekk­ing sem hefur orðið til vítt og breitt um Norð­ur­löndin á þessu sviði á und­an­förnum árum.[/quote]

„Leikja­fyr­ir­tæki sem stofnuð hafa verið á Norð­ur­lönd­unum eru á meðal þeirra stærstu í heim­inum. Þar á meðal eru DICE, Supercell, Rovio, King, Paradox, Remedy, CCP og Plain Vanilla. Það er gríð­ar­leg þekk­ing sem hefur orðið til vítt og breitt um Norð­ur­löndin á þessu sviði á und­an­förnum árum,“ segir Salóme. „Svo eru auð­vitað margir áhuga­verðir hlutir að ger­ast í sprota­sam­fé­lag­inu á Íslandi um þessar mundir; Það hefur lík­lega aldrei verið jafn líf­legt og nú. Við erum meðal ann­ars að sjá fleiri og fleiri öflug fyr­ir­tæki á sviði leikja­iðnar og sýnd­ar­veru­leika spretta upp og nokkur þeirra fá tæki­færi til að kynna starf­semi sína fyrir gestum Slush PLAY nú í lok mán­aðar“.

Fram­tíð­ar­straumar og -stefnur leikja­iðn­að­ar­ins og tengsl hans við sýnd­ar­veru­leika verða meg­in­þema ráð­stefn­unnar en þó sýnd­ar­veru­leiki sé oft­ast settur í sam­hengi við tölvu­leiki eru fleiri mögu­leikar fólgnir í fram­þróun tækn­innar.

„Sýnd­ar­veru­leiki kemur svo sann­ar­lega til með að verða nýttur á fleiri sviðum heldur en í leikja­iðn­aði. Leikja­iðn­að­ur­inn er hins vegar góð leið til að kynna tæki­færi sýnd­ar­veru­leika. Þar reynir til dæmis á tækja­bún­að­inn og tæknin nær til þeirra sem eru fyrstir að til­einka sér nýj­ungar,“ segir Salóme.

Fjöldi gesta ráð­stefn­unnar stefnir í um 250 manns en ef vel gengur spá skipu­leggj­endur að sú tala geti marg­fald­ast innan fárra ára. Enn er hægt að tryggja sér miða á ráð­stefn­una en nán­ari upp­lýs­ingar má finna á vefnum og á Facebook-við­burði ráð­stefn­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár