Laun hækka en kaupmáttur minnkar

Launa­vísi­tala hækk­aði um 0,3 pró­sent milli mán­aða, frá febr­úar til mars, sam­kvæmt mæl­ingum Hagstofu Íslands. Vísi­talan stóð í 502,1 stigi í mars síð­ast­liðnum og hefur aldrei verið hærri. Und­an­farið ár hefur launa­vísi­talan hækkað um 5,6 pró­sent.

Kaup­máttur launa lækk­aði hins vegar milli mán­aða um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa­fólks á Íslandi er nú að jafn­aði fjórum pró­sentum meiri í dag en hann var fyrir ári síðan. Kaup­mátt­ur­inn jókst hratt síð­ustu mán­uði en nú dregur úr. Vísitala kaup­máttar fór hæst í 121,9 stig í jan­úar síð­ast­liðnum en fór niður í 120,8 í mars.

Kaup­máttur launa sýnir hversu mikið af vöru og þjón­ustu hægt er að kaupa fyrir launin. Óbreyttur kaup­máttur frá fyrra ári þýðir að hægt er að kaupa sam­bæri­lega vöru­körfu og þá. Þegar litið er til kaup­máttar er þannig tekið til­lit til verð­bólg­unnar, þ.e. almennra verð­lags­breyt­inga, ólíkt því þegar ein­göngu er litið til þró­unar launa. Launa­maður ætti í dag að geta keypt fjórum pró­sentum meira af vörum og þjón­ustu fyrir laun sín en fyrir tólf mán­uðum síðan.

Ekki skrýtið að sumir skynji launaþróun öðruvísi

Í við­tali við Kjarnann í lok febr­úar sagði Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í hag­fræði og dós­ent við Háskóla Íslands, að það væri ekki skrýtið að ein­hverjir skynj­uðu launa­þróun í land­inu öðru­vísi en vísi­tala Hag­stof­unnar yfir kaup­mátt launa gefur til kynna.

„Það er út af fyrir sig ekk­ert skrýtið þótt ein­hverjir, og jafn­vel margir, skynji launa­þróun öðru­vísi en vísi­tölu kaup­máttar launa. Hluti skýr­ing­ar­innar liggur í því að launa­taxtar og ráð­stöf­un­ar­tekjur eru ekki það sama. Það munar raunar tals­verðu vegna þess að fjár­magnstekjur voru mun hærri í bólunni, en dreifð­ust raunar mjög mis­jafnt. Jafn­framt dróst yfir­vinna tals­vert saman í krís­unni,“ sagði Gylfi þá í svari við skrif­legri fyr­ir­purn Kjarnans og Stofn­unar um fjár­mála­læsi.

Gylfi segir það sama gilda um laun og fjár­magnstekjur, þau séu mis­jöfn milli hópa og þótt meðal-launa­taxtar hækki örar en verð­lag þá eigi það ekki við um alla hópa. Sama gildi um útgjalda­hlið­ina. „Þeir sem eru á leigu­mark­aði, og eru ef til vill að reyna að skrapa saman fyrir fyrsta hús­næði, eiga mun erf­ið­ara upp­dráttar en þeir sem búa í eigin hús­næði, þótt skuld­setn­ingin skipti auð­vitað máli fyrir þann hóp. Vísitala neyslu­verðs [sem mælir verð­bólgu] sýnir ekki endi­lega mjög vel útgjalda­þróun hjá öllum, hún er líka með­al­tal eins og launa­vísi­talan,“ segir Gylfi en vísi­tala kaup­máttar launa ræðst af launa­þróun (þ.e. launa­vísi­töl­unni) ann­ars vegar og verð­bólgu­þróun hins vegar. „Frávik frá með­al­tali skipta ekki minna máli en með­al­tölin sjálf,“ sagði Gylfi.

Neyslan var fjármögnuð með lánum


Vísitala kaup­máttar launa var í met­hæðum frá jan­úar 2007 til mars 2008, þegar hún stóð í kringum 120 stig. Eftir mikla lækkun sam­hliða efna­hag­skrís­unni, þá tók vísi­talan að hækka á ný um mitt ár 2010 og fór aftur í 120 stig í nóv­em­ber síð­ast­liðnum.


„Rétt er að hafa í huga að í bólunni jókst mjög skuld­setn­ing heim­ila, það er þau voru að fjár­magna neyslu að ein­hverju marki með lánum [en ekki launum]. Nú eru heim­ilin þvert á móti að með­al­tali að greiða niður lán, sem þýðir vita­skuld að svig­rúm til neyslu er minna en ella, og fólk skynjar það vænt­an­lega í ein­hverjum mæli sem lægri tekjur, þótt þetta sé auk­inn sparn­aður frekar en lægri tekjur,“ sagði Gylfi þá og bætir við að lokum að allt þetta breyti því ekki að staða heim­ila fari almennt batn­andi og hafi gert frá árinu 2010. „En á meðan það eru vænt­ingar um meiri eða örari bata þá verða ein­hverjir, jafn­vel margir, óánægðir,“ sagði hann.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár