LEX kannaði grundvöll meiðyrðamála fyrir innanríkisráðuneytið vegna lekamálsins

Lög­fræði­stofan LEX veitti inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, í tíð Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, aðkeypta lög­fræði­þjón­ustu vegna leka­máls­ins þar sem meðal ann­ars var kannað hvort umfjöllun fjöl­miðla gæfi til­efni til höfð­unar meið­yrða­máls. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í skrif­legu svari inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Jóns Þórs Ólafs­sonar, þing­manns Pírata, um fjöl­miðla-og lög­fræði­ráð­gjöf vegna leka­máls­ins.

Ráðu­neytið greiddi fyrir umrædda lög­fræði­ráð­gjöf, sem svo leiddi til þess að Þórey Vil­hjálms­dóttir, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður ráð­herra, stefndi DV og tveimur blaða­mönnum blaðs­ins, þeim Jóni Bjarka Magn­ús­syni og Jóhanni Páli Jóhanns­syni, fyrir meið­yrði. Þórey stefndi umræddum vegna fréttar þar sem full­yrt var að hún væri svo­kall­aður starfs­maður B og hefði rétt­ar­stöðu grun­aðs.

Í áður­nefndri fyr­ir­spurn þing­manns Pírata er spurt hvað hafi falist í þeirri aðkeyptu lög­fræði­ráð­gjöf sem LEX veitti inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Í svari ráðu­neyt­is­ins við þeirri spurn­ingu segir: „Ráðgjöf LEX var veitt ráðu­neyt­inu vegna kæru á hendur ráðu­neyt­inu og ráð­herra um með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga. Ráð­gjöfin var bæði munn­leg og skrif­leg. Ráð­gjöfin sneri ann­ars vegar að frum­grein­ingu LEX á því hvort umfjöllun fjöl­miðla gæfi til­efni til höfð­unar meið­yrða­máls. Í kjöl­farið tók aðstoð­ar­maður ráð­herra ákvörðun um höfðun meið­yrða­máls og bar sjálfur kostnað af því máli. Hins vegar sneri ráð­gjöfin að rétt­ar­stöðu sak­born­inga og vitna á rann­sókn­ar­stigi máls sam­kvæmt lögum um með­ferð saka­mála, m.a. um skyldu til að mæta til skýrslu­töku, rétt til að hafa lög­mann við­staddan, aðgang að gögnum og skyldu til að svara spurn­ingum.“

Kostn­aður ráðu­neyt­is­ins vegna lög­fræði­ráð­gjafar í tengslum við leka­málið hljóð­aði upp á tæpar 860 þús­und krónur, eins og Kjarninn greindi fyrstur fjöl­miðla frá í mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár