Hanna Birna snýr aftur á þing eftir viku

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, tekur sæti á Alþingi að nýju þann 27. apríl næst­kom­andi, eða eftir slétta viku. RÚV greinir frá mál­inu, og að Hanna Birna hafi stað­fest end­ur­komu­dag­setn­ing­una við frétta­stofu.

Kjarninn greindi frá því á dög­unum að Hanna Birna stefndi enn ótrauð á að snúa aftur á þing, og von væri á henni til þing­starfa í næstu viku. Nú hefur end­an­leg dag­setn­ing end­ur­komu hennar feng­ist stað­fest.

Hanna Birna sagði af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra 21. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn vegna Leka­máls­ins og óskaði eftir ótíma­bundnu leyfi frá þing­störfum í kjöl­farið. Hún þáði ekki þing­fara­kaup á meðan.

Í áður­nefndri frétt Kjarnans stað­festi Sigríður Á. Andersen, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem tók sæti á Alþingi fyrir Hönnu Birnu, að hún hefði átt í nýlegum sam­skiptum við inn­an­rík­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi þar sem hún hafi til­kynnt henni að engin breyt­ing hafi orðið á áformum hennar um að setj­ast aftur á þing.

Í bréfi sem Hanna Birna sendi Ögmundi Jónassyni, for­manni stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, 16. mars síð­ast­lið­inn, þar sem hún afþakk­aði boð nefnd­ar­innar um að ræða Leka­málið, kom fram að hún myndi snúa aftur til þings eftir miðjan apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár