Julian Assange reiðubúinn að gangast undir DNA-próf

Stofn­andi Wikileaks upp­ljóstr­un­ar­síð­unnar, Julian Assange, seg­ist reiðu­bú­inn að gang­ast undir DNA-próf vegna rann­sóknar á meintum kyn­ferð­is­brotum hans í Svíþjóð. Þetta kemur fram á vef­síðu sænska Sak­sókn­ara­emb­ætt­is­ins.

Prófið verður tekið í tengslum við yfir­heyrslu sem mun að öllum lík­indum fara fram í sendi­ráði Ekvador í London þar sem Assange hefur dvalið sem póli­tískur flótta­maður í tvö ár. Allan þann tíma hafa sænsk yfir­völd farið fram á að Assange yrði yfir­heyrður í Svíþjóð, en vegna gagn­rýni heima fyrir og þeirrar stað­reyndar að tím­inn er að renna út hafa þau nú breytt afstöðu sinni. Ekki er ljóst hvenær yfir­heyrslan fer fram.

Haustið 2010 kærðu tvær konur Assange til lög­reglu vegna meinta kyn­ferð­is­brota en hann hefur stað­fast haldið fram sak­leysi sínu. Í sept­em­ber sama ár fór hann frá Svíþjóð og í kjöl­farið var gefin út hand­töku­skipun og beiðni um að bresk yfir­völd myndu aðstoða við að flytja hann til yfir­heyrslu í Svíþjóð. Sumarið 2012 leit­aði Assange hælis í sendi­ráði Ekvador í Lundúnum þar sem hann hefur dvalið síðan í eig­in­legu stofu­fang­elsi. Stans­laus lög­reglu­vakt hefur verið fyrir utan sendi­ráðið því ef Assange yfir­gefur húsið er bresku lög­regl­unni skylt að hand­taka hann.

Ágreiningur um hvar yfirheyrslan skuli fara fram


Lög­fræð­ingar Assange hafa gagn­rýnt óbil­girni sænskra yfir­valda varð­andi það hvar yfir­heyrslan skuli fara fram. Þeir ótt­ast að Assange verði fram­seldur til Banda­ríkj­anna eftir hand­töku við kom­una til Sví­þjóðar. Í mars sam­þykkti sænski sak­sókn­ar­inn Marianne Ny hins vegar að yfir­heyrslan gæti farið fram í London. Þetta kom í kjöl­far mik­illar gagn­rýni frá bæði hátt­settum lög­mönnum í Svíþjóð og dóm­stóla sem sögðu að hörð afstaða sak­sókn­ara hindr­aði í raun fram­göngu máls­ins. Í gær birt­ust svo fréttir af því í sænskum miðlum að Assange hefði fyrir sitt leyti sam­þykkt að verða yfir­heyrður í London og í dag barst til­kynn­ing frá sænskum yfir­völdum vegna DNA-rann­sókn­ar­innar. Þar kemur fram að Assange hafi lagt fram vissar kröfur en um leið og gengið hafi verið úr skugga um að þær hindri ekki rann­sókn­ina verði óskað eftir leyfi til að yfir­heyrslan geti farið fram í London. Ekki er vitað hvenær þetta geti orðið.

Lögmaður Assange sagði í við­tali við sænska Expressen í dag að DNA-prófið væri tekið með munnsköfu og í raun afar ein­falt. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um sam­skipti sín við Assange og sagði þau falla undir trúnað milli lög­manns og skjól­stæð­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár