Sparisjóðurinn í Vestmannaeyjum fékk heilbrigðisvottorð frá Grant Thornton í ágúst

Spari­sjóð­ur­inn í Vest­manna­eyjum, sem tek­inn var yfir af Lands­banka Íslands á dög­unum, fékk síð­ast heil­brigð­is­vott­orð frá end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Grant Thornton í lok ágúst. Málefni spari­sjóðs­ins voru til umræðu á fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis á mið­viku­dag­inn, þar sem stjórn sjóðs­ins sat fyrir svörum nefnd­ar­manna, sem vildu meðal ann­ars fá svör við því af hverju bág­borin staða sjóðs­ins hafi ekki legið fyrr fyrir.

Grafal­var­leg staða Spari­sjóðs­ins í Vest­manna­eyjum kom ekki í ljós fyrr en eftir sér­staka útlána­grein­ingu Grant Thornton, sem stjórnin ákvað að fela end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu að ráð­ast í í októ­ber. Eftir grein­ing­una kom í ljós að útlána­safn sjóðs­ins var gróf­lega ofmetið, og færa þyrfti niður safnið um allt að millj­arð króna. Nið­ur­staða útlána­grein­ing­ar­innar og nið­ur­færsla útlána­safns­ins í kjöl­farið varð til þess að Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) ákvað á fundi sunnu­dags­kvöldið 22. mars síð­ast­lið­inn að veita sjóðnum fimm sól­ar­hringa frest til að bæta eigið fé sjóðs­ins, en þá lá til að mynda árs­reikn­ingur sjóðs­ins ekki fyrir. Þá til­kynnti FME stjórn Spari­sjóðs­ins í Vest­manna­eyjum að sjóð­ur­inn yrði settur í slita­með­ferð ef ekki yrði staðið við veittan frest. Þegar fréttir af aðkomu FME láku svo út gerðu inni­stæðu­eig­endur áhlaup á spari­sjóð­inn, sem hafði svo mjög skað­leg áhrif á lausa­fjár­stöðu hans.

FME fékk falska mynd af stöðu sjóðsins á sex mánaða fresti


Grant Thornton hafði tveimur mán­uðum fyrir útlána­grein­ing­una gefið út heil­brigð­is­vott­orð handa spari­sjóðnum við reglu­bundið sex mán­aða upp­gjör hans, sem skilað var til FME eins og lög um fjár­mála­fyr­ir­tæki gera ráð fyrir. Hvorki Grant Thornton né FME gerðu athuga­semdir við sex mán­aða upp­gjör spari­sjóðs­ins, enda eig­in­fjár­hlut­fall hans sam­kvæmt því vel yfir 8 pró­senta lág­marki FME, eða um 14 pró­sent.

Í sam­tali við Kjarnann furðar Hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn Þorbjörg Inga Jóns­dóttir, frá­far­andi stjórn­ar­for­maður spari­sjóðs­ins, sig á því að end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki, sem hafi end­ur­skoðað reikn­inga sjóðs­ins und­an­farin ár, hafi skrifað upp á reikn­inga hans athuga­semda­laust. Grant Thornton skrif­aði upp á árs­reikn­ing spari­sjóðs­ins fyrir árið 2013, og end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið Deloitte árið á undan.

Þá segir Þorbjörg Inga það furðu sæta að slæm staða sjóðs­ins hafi ekki dúkkað upp á yfir­borðið við fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu hans í lok árs 2010, þegar stofnfé hans var meðal ann­ars aukið um 904 millj­ónir króna að nafn­virði, eða við útlána­grein­ingu sem Deloitte réðst í haustið 2011, sam­bæri­lega við þá sem Grant Thornton réðst í nýverið og leiddi í ljós grafal­var­lega stöðu spari­sjóðs­ins. Kröf­urnar, sem sjóð­ur­inn hafi neyðst til að færa niður nú, hafi að minnsta kosti að hluta til verið lengi í eigu sjóðs­ins.

„Mér finnst óeðli­legt að þetta hafi getað gerst miðað við það eft­ir­lits­kerfi sem búið er fjár­mála­fyr­ir­tækjum, bæði með lög­bund­inni innri og ytri end­ur­skoðun sem ætti að hafa það í för með sér að þessir aðilar skoði það sjálf­stætt hvort reikn­ingar fjár­mála­fyr­ir­tækja gefi rétta mynd af eignum þeirra og skuldum, til dæmis með því að stað­reyna skrán­ingu ein­stakra krafna og verð­gildi þeirra svo sem með slembi­úr­tökum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár