Finnar sjá fram á mögur ár með niðurskurði og skattahækkunum

Ný stjórn undir for­ystu Mið­flokks­ins mun að öllum lík­indum taka við völdum eftir þing­kosn­ing­arnar í Finn­landi á sunnu­dag. Ágrein­ingur innan raða stjórn­ar­innar og dap­urt efna­hags­á­stand hefur fælt kjós­endur frá stjórn­ar­flokk­unum og þá hafa dig­ur­bark­ar­legar yfir­lýs­ingar for­stæ­is­ráð­herr­ans ekki hjálpað. Kosn­inga­bar­áttan hefur að miklu leyti snú­ist um efna­hags­mál en deilur við Rússa hafa einnig sett svip á hana, sér­stak­lega í kjöl­far greinar sem varn­ar­mála­ráð­herrar Norð­ur­landa auk Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra skrif­uðu í norska dag­blaðið Aften­posten.

Síðasta kjör­tíma­bil hefur verið nokkuð róst­ur­samt í finnskum stjórn­málum. Eftir kosn­ing­arnar 2011 var Sam­bands­flokk­ur­inn stærsti flokkur lands­ins og for­maður hans Jyrki Katainen mynd­aði sex flokka stjórn sem teygði sig frá Vinstra banda­lag­inu til Kristi­legra demókrata. Vinstra banda­lagið hætti í stjórn­inni eftir deilur um aðhalds­að­gerðir og nið­ur­skurð í vel­ferð­ar­málum og Katainen sagði svo af sér sum­arið 2014 þegar hann tók við emb­ætti vara­for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Nýr for­maður Sam­bands­flokks­ins, Alex­ander Stubb, tók við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra skömmu síðar og mynd­aði fimm flokka stjórn. Í sept­em­ber yfir­gáfu Græn­ingjar stjórn­ina þegar ákveðið var að ráð­ast í bygg­ingu nýs kjarn­orku­vers í norð­ur­hluta lands­ins.

Sakaði samherja um kjarkleysi


Alex­ander Stubb er 47 ára gam­all og er harður stuðn­ings­maður Evr­ópu­sam­bands­ins og þess að Finnar gangi form­lega í NATO. Hann þykir frjáls­lyndur í við­horfum sem meðal ann­ars hefur leitt til deilna við Kristi­lega Demókrata vegna stuðn­ings hans við hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra. Fyrir um mán­uði vöktu ummæli hans um stjórn­mála­menn­ing­una í Finn­landi hörð við­brögð, en þar sak­aði hann bæði póli­tíska and­stæð­inga og sam­herja um kjark­leysi. Ráðast þyrfti í erf­iðar aðgerðir til að ná tökum á efna­hags­á­stand­inu en þegar á reyndi þyrðu stjórn­mála­menn ekki að taka ákvarð­anir. Hug­myndum um breyt­ingar væri hafnað, ekki endi­lega vegna þess að fólk væri ósam­mála þeim, heldur vegna ótta við við­brögð kjós­enda. Þessi ummæli vöktu skilj­an­lega litla kátínu hjá sam­starfs­flokk­unum og þau sögð geta ýtt undir fylgi flokka sem ala á tor­tryggni og jafn­vel hatri í garð stjórn­mála og stjórn­mála­manna.

Ljóst er að Finnar glíma við vanda­mál sem ekki verða leyst nema með víð­tækum aðgerðum. Skulda­staða hefur versnað til muna og í nýlegri úttekt sér­fræð­inga fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að fjár­lagagatið nemi um sex millj­örðum evra. Það verði aðeins brúað með blöndu af nið­ur­skurði og skatta­hækk­unum. Finnar hafa treyst á hag­vöxt til að ná sér út úr erf­ið­leik­unum en ný spá gerir ráð fyrir að hann verði aðeins hálft pró­sent í ár sem er langt undir vænt­ingum. Þegar við bæt­ist við­skipta­halli sem einkum má rekja til minnk­andi útflutn­ings er ljóst að útlitið til skemmri tíma er dökkt. Fall fjar­skipt­ar­is­ans Nokia og hrun í papp­írs­iðn­aði hefur reynst Finnum dýr­keypt og í dag standa 26 fyr­ir­tæki fyrir um 60 pró­sent af öllu útflutn­ingi lands­ins.

Ald­urs­sam­setn­ing þjóð­ar­innar hjálpar ekki til en finnska þjóðin eld­ist hraðar en nokkur önnur þjóð í Evrópu með til­heyr­andi álagi á vel­ferðar- og heil­brigð­is­kerfið. Eina lausnin fellst í inn­fluttu vinnu­afli sem er eitur í beinum Flokks Finna (áður Sannra Finna) sem berj­ast með kjafti og klóm gegn fjölgun inn­flytj­enda og Evr­ópu­sam­band­inu.

[caption id="attachment_25945" align="alignnone" width="865"] Alex­ander Stubb, for­sæt­is­ráð­herra Finlands. Mynd: EPA[/caption]

Rússagrýlan hræðir


Í grein varn­ar­mála­ráð­herra Norð­ur­land­anna og utan­rík­is­ráð­herra Íslands segir að fram­ferði Rússa sé mesta áskorun sem steðji að örygg­is­málum Evrópu og að við því verði brugð­ist með auknu sam­starfi í varn­ar­málum. Viðbrögð Rússa voru fyr­ir­sjá­an­leg en þeir vör­uðu við því að Svíar og Finnar færðu sig nær NATO og bættu við að svo virt­ist sem varn­ar­sam­starfi Norð­ur­land­anna væri nú beitt gegn Rússum. Birting grein­ar­innar hefur verið harð­lega gagn­rýnd í Finn­landi. Nálægðin við Rússland gerir ógn­ina áþreif­an­legri enda hafa Finnar fetað slóð hlut­leysis þótt vissu­lega hafi þeir hallað sér í átt til Norð­ur­landa og Evr­ópu­sam­bands­ins á síð­ustu árum. Varn­ar­mála­ráð­herr­ann var sak­aður um að fara út fyrir vald­svið sitt því að sam­kvæmt finnsku stjórn­ar­skránni ættu stefnu­mót­andi yfir­lýs­ingar sem þessar að vera á hendi for­seta lands­ins og for­sæt­is­ráð­herra. Einnig var bent á að birt­ing grein­ar­innar skömmu fyrir kosn­ingar væri óheppi­leg því með henni væri reynt að binda hendur næstu stjórnar. Ólíklegt er að stjórn undir for­ystu Mið­flokks­ins noti jafn harka­legt orða­lag í sam­skiptum sínum við Rússa og þá á eftir að koma í ljós hvort hún vilji ganga jafn langt í varn­ar­sam­starfi við Norð­ur­löndin.

Flokkur Finna gætu farið í stjórn í fyrsta sinn


Kosn­ing­arnar 2011 voru sögu­legar því árangur Flokks Finna var ævin­týra­legur. Hann komst fyrst inn á þing árið 2003 en í kosn­ing­unum 2011 fimm­fald­aði hann nán­ast fylgið og varð þriðji stærsti flokkur lands­ins með 19 pró­sent atkvæða. Þjóð­ern­is­á­herslur virt­ust falla vel í kramið auk and­stöðu við inn­flytj­endur og Evr­ópu­sam­bandið. Reyndar hefur flokk­ur­inn gengið enn lengra því hann berst gegn því að sænska sé skyldu­fag fyrir alla Finna þrátt fyrir að tungu­málið sé annað opin­bera tungu­mál lands­ins. Áherslan er á finnska tungu og menn­ingu sem er þröngt skil­greind í stefnu­skrá flokks­ins, til dæmis á ríkið aðeins að styðja við klass­íska list en ekki nútíma­list. Flokkur Finna er í raun hefð­bund­inn popúlísur flokkur þótt for­mað­ur­inn lýsi honum sem verka­manna­flokki án sós­í­al­isma. Líklegt er að flokk­ur­inn tapi ein­hverju fylgi frá kosn­ing­unum 2011 en hann er þó tal­inn lík­legur til að taka þátt í næstu rík­is­stjórn. Þá reynir á hvort flokks­menn láti sér lynda að ganga í takt og styðja stefnu stjórnar sem að öllum lík­indum verði í veiga­miklum atriðum í and­stöðu við stefnu flokks­ins.

Stefnir í spennandi kosningar


Nýjustu kann­anir sýna að Mið­flokk­ur­inn verður stærsti flokkur lands­ins og er búist við að hann fái um 50 af 200 sætum á þing­inu. Þar fyrir aftan koma þrír flokkar í hnapp með um 30 þing­menn hver, Sam­bands­flokk­ur­inn, Flokkur Finna og Jafn­að­ar­menn. Samkvæmt venju fær stærsti flokk­ur­inn stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð og búist er við að fyrst verði rætt við næst­stærsta flokk­inn. Formaður Mið­flokks­ins hefur þó sagt að stærð flokka ætti ekki endi­lega að ráða úrslitum um það hverjir myndi stjórn, en talið er að hann horfi frekar til Jafn­að­ar­manna um sam­starf en Sam­bands­flokks­ins. Ef Flokkur Finna bæt­ist í hóp­inn má gera ráð fyrir að einn til tveir smá­flokkar komi inn í stjórn­ina til að styrkja meiri­hlut­ann, sér­stak­lega þar sem mikil óvissa ríkir um það hvort Flokkur Finna sé yfir höfuð stjórn­tækur.

Eins og áður sagði verður kosið á sunnu­dag og gæti kosn­inga­þátt­taka ráðið miklu um það hvernig flokk­arnir raða sér niður fyrir aftan Mið­flokk­inn. Það er því enn mögu­leiki á að spá sér­fræð­inga gangi ekki eftir. Þó er nokkuð ljóst að Alex­ander Stubb lætur af emb­ætti en hann spáir því hins vegar að arf­taki hans muni ekki eiga auð­velda sigl­ingu fyrir höndum. Stað­reyndin sé sú að þegar póli­tískur raun­veru­leiki taki við af háfleygum yfir­lýs­ingum kosn­inga­bar­átt­unnar komi í ljós hversu djúp­stæð vanda­mál steðji að Finn­landi og hversu rót­tækar ákvarð­anir þurfi að taka til að rétta þjóð­ar­skút­una af.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár