Hillary Clinton býður sig fram til forseta Bandaríkjanna

Hillary Clinton hefur ákveðið að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Banda­ríkj­anna, og mun form­lega sækj­ast eftir því að verða for­seta­fram­bjóð­andi Demókrata í for­seta­kosn­ing­unum á næsta ári.

Þar með er eitt verst varð­veitta leynd­ar­málið í Washington orðið opin­bert, en yfir­vof­andi fram­boð Clinton hefur verið á hvers manns vit­orði vestan hafs und­an­farin tvö ár.

Í umfjöllun The New York Times er greint frá því að til­kynn­ing frá Clinton hafi fyrst borist vel­gjörð­ar­mönnum hennar í tölvu­pósti í dag. Kosn­inga­stjóri hennar, John Podesta, skrif­aði tölvu­póst­inn, en í honum stóð: „Ég vildi tryggja að þið mynduð heyra þetta fyrst frá mér - það er opin­bert, Hillary ætlar að bjóða sig fram til for­seta.“

Eins og kunn­ugt er tap­aði Clinton fyrir Barack Obama, sitj­andi Banda­ríkja­for­seta, í bar­átt­unni um útnefn­ingu Demókrata-flokks­ins árið 2008. Hljóti hún útnefn­ingu flokks­ins nú, verður hún fyrsta konan sem hlýtur slíka útnefn­ingu frá öðrum af stóru stjórn­mála­flokk­unum í Banda­ríkj­unum. Flestir eru þó á því að hún eigi útnefn­ing­una vísa, enda nýtur Clinton mik­illa vin­sælda vestan hafs, og þá sér­stak­lega á meðal kvenna, svo mik­illa í raun að Obama sá sig til­neyddan til að gera hana að utan­rík­is­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn sinni.

Hillary Clinton, sem er 67 ára gömul, er að sjálf­sögðu öllum hnútum kunn í Hvíta hús­inu eftir að hafa búið þar í átta ár, eða á meðan eig­in­maður hennar Bill Clinton gegndi emb­ætti Banda­ríkja­for­seta á árunum 1993 til 2001.

Sjá spá­nýtt kosn­inga­mynd­band Hillary Clinton, sem birt var á Youtube í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár