Hróarskelduhátíðin: „Við viljum ekki þvinga konur upp á sviðið“

Aðeins 18 pró­sent þeirra hljóm­sveita sem troða upp á Hró­arskeldu­há­tíð­inni í sumar, eru skip­aðar konum. Danski frétta­mið­ill­inn Information greinir frá þessarri athygl­is­verðu stað­reynd.

Jafn­rétt­is­mið­stöð Dan­merkur, KVINFO, blés til óform­legs fundar vegna þessa á dög­unum, þar sem staðan var skegg­rædd. Þar full­yrti for­stöðu­kona mið­stöðv­ar­innar, Nina Groes, að það geti ekki stað­ist að karlar séu fimm sinnum betri en konur að búa til tón­list.

Samkvæmt áður­nefndri umfjöllun Information virð­ist lítil þróun eiga sér stað í tón­list­ar­sen­unni þegar kemur að jafn­rétti. Eins og fyrr greinir eru konur í miklum minni­hluta á meðal flytj­enda sem stíga munu á stokk á Hró­arskeldu­há­tíð­inni þetta árið. Þær eru þó örlítið fleiri en í fyrra, þegar um 15 pró­sent flytj­enda voru kven­kyns.

Endurspeglar stöðuna í tónlistarbransanum


Haft er eftir tón­list­ar­stjóra Hró­arskeldu­há­tíð­ar­innar, Anders Wahrén, að kynja­hlut­fallið end­ur­spegli stöðu mála í tón­list­ar­brans­anum. Konur verði ekki þving­aðar til að spila á hátíð­inni, þar ráði ein­ungis gæði tón­list­ar­innar um hverjum sé boðið að stíga á stokk. Þar skipti kyn, kyn­þáttur eða trú engu máli. Sjálfur seg­ist hann fylgj­andi öllum mögu­legum aðgerðum sem lúti að því að rétta hlut kvenna í tón­list­ar­brans­anum. „Í fyrra fengum við tvo með­limi hljóm­sveit­ar­innar Pussy Riot til að halda fyr­ir­lestur á hátíð­inni sem lukk­að­ist afar vel. Það kemur vel til greina að gera eitt­hvað svipað aftur núna, en ekk­ert hefur þó verið ákveðið í þeim efnum,“ hefur Information eftir tón­list­ar­stjóra Hró­arskeldu­há­tíð­ar­innar.

[caption id="attachment_25673" align="alignnone" width="752"] Anders Wahrén, tón­list­ar­stjóri Hró­arskeldu­há­tíð­ar­innar. Mynd: Julie Hjort[/caption]

Henrik Marstals, tón­list­ar­maður og rit­höf­undur, sem hefur hvað mest látið sig varða ójafnt kynja­hlut­fall í tón­list­ar­brans­anum, segir í umfjöllun Information: „Það eru bara nokkur rót­tæk dag­blöð sem eru á þeirri skoðun að við séum á rangri braut í þessum efnum, og þetta sé eitt­hvað sem beri að taka alvar­lega. Hró­arskeldu­há­tíðin er á mörgum sviðum frum­kvöð­ull og fyr­ir­mynd ann­arra tón­list­ar­há­tíða og gæti vakið vit­und ann­arra hátíða með því að setja þetta mál­efni á odd­inn.“

Hró­arskeldu­há­tíðin hefur í gegnum tíð­ina stært sig af sam­fé­lags­legri ábyrgð sinni, hvort sem kemur að kyni, kyn­þáttum eða mann­rétt­indum.

[caption id="attachment_25677" align="alignnone" width="700"] Hér má sjá plakat hátíð­ar­innar þar sem er búið að taka út karl­kyns flyt­endur. Í umfjöllun Information er plakatið gagn­virkt.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár