Sigmundur Davíð stal þrumunni af Bjarna Benediktssyni

Ræða Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­sæt­is­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, á flokks­þingi Fram­sókn­ar­manna í dag, gæti dregið dilk á eftir sér hvað varðar stjórn­ar­sam­starf flokks­ins við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, en þar til­kynnti for­sæt­is­ráð­herra, öllum að óvörum að fram­kvæmd um losun fjár­magns­hafta verði hrint í fram­kvæmd á yfir­stand­andi vor­þingi og að sér­stakur stöð­ug­leika­skattur muni skila rík­is­sjóði hund­ruðum millj­arða króna.

Með ræðu sinni í dag tókst Sigmundi Davíð enn á ný að gera sig og Fram­sókn­ar­flokk­inn gild­andi í helstu málum rík­is­stjórn­ar­innar og skyggja þar með á sam­starfs­flokk­inn og for­mann hans Bjarna Bene­dikts­son. Enda kannski ekki van­þörf á í ljósi stöðu flokks­ins í skoð­ana­könn­unum, sem bendir til að „Leið­rétt­ingin“ hafi ekki skilað flokknum því fylgi sem von­ast var eftir. Að minnsta kosti má ljóst vera að Bjarni sé ekki par hrif­inn af útspili for­sæt­is­ráð­herra í dag.

Talaði eins og fjármálaráðherra sé ekki treystandi


Mikil leynd hefur hvílt yfir afnáms­ferl­inu sem er á for­ræði Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra, en erfitt er að túlka orð Sig­mundar Davíðs öðru­vísi en að hann sé að reyna með ein­hverjum hætti að taka málið yfir af fjár­mála­ráð­herra.

Leiða má líkur að því að ýmis­legt í ræðu Sig­mundar Davíðs sé óhjá­kvæmi­lega til þess fallið að hleypa illu blóði í sam­starfs­flokk­inn. Í ræðu sinni tal­aði for­sæt­is­ráð­herra eins og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn væri eini útvörður íslenskra þjóð­ar­hags­muna sem hægt sé að treysta á, og þar með að mann­inum sem ber ábyrgð á mála­flokknum, það er Bjarna Bene­dikts­syni, sé ekki treystandi fyrir honum.

Ný grýla komin á stjá?


Í ræðu sinni kom for­sæt­is­ráð­herra inn á að full­trúum slita­búa föllnu bank­anna og helstu kröfu­hafa þeirra, það er erlendum vog­un­ar­sjóðum, hafi verið til­kynnt að ekki yrði hægt að bíða lengur eftir því að þeir legðu fram raun­hæfar lausnir á stöð­unni sem uppi er eftir að tekið var fyrir aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu. Velta má fyrir sér hvort for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi með þeim orðum verið að búa til grýlu úr slita­bú­unum og vog­un­ar­sjóð­unum álíka þeirri sem Icesave-deilan varð að og reynd­ist flokknum vel til að afla honum fylgis á meðal kjós­enda. Enda hefur fylgi flokks­ins verið í frjálsu falli að und­an­förnu.

Ræðu for­sæt­is­ráð­herra, þar sem hann stillir slita­bú­unum og vog­un­ar­sjóð­unum upp ásamt Evr­ópu­sam­band­inu, sem ein­hverjum mestu ógnum sem nú steðja að íslenskum þjóð­ar­hags­munum, má auð­veld­lega túlka sem við­leitni hans til að sam­eina þá sem aðhyll­ast svokölluð „sjón­ar­mið sjö­tugra“ þar sem hægri og vinsti menn geta sam­ein­ast gegn utan­að­kom­andi vá líkt og gerð­ist á tímum kalda stríðs­ins.

Í ræðu sinni sagði Sig­mundur Davíð enda: „Framan af mið­aði stefna kröfuhafa að því að bíða þess að Ísland gengi í Evrópusam­bandið. Með því hefðum við farið sömu leið og þær ólánsömu Evrópuþjóðir sem fjármögnuð­uðu tap banka sinna, og afleið­ingar evru­krísunnar, með lánum frá Evrópska seðla­bank­anum.

Mark­miðið var upp­taka evru með fyr­ir­greiðslu frá Evrópska seðla­bank­anum til að borga kröfuhafa út. Slíkt hefði verið efna­hags­legt glapræði enda gefur evrópski seðla­bank­inn ekki aðild­arlöndunum ókeypis pen­inga. Hingað hefðu sjálfsagt borist allar þær evrur sem þörf hefði verið á til að borga út alla kröfuhafa og alla snjóhengj­una ekki aðeins á fullu verði heldur á því yfir­verði sem felst í því að pappírshagn­aður kröfuhafa væri fjármagn­aður af íslensum almenn­ingi með lántöku.“

Gerði lítið úr samstarfsflokknum


Með því að stilla Fram­sókn­ar­flokknum enn á ný gegn kröfu­höfum föllnu bank­anna, sem Íslands einu von, gerir for­sæt­is­ráð­herra óneit­an­lega lítið úr sam­starfs­flokknum og Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur ræða Sig­mundar Davíðs farið í taug­arnar á Sjálf­stæð­is­flokknum, í ljósi stöðu Fram­sókn­ar­flokks­ins sem nú mælist með um ell­efu pró­senta fylgi í skoð­ana­könn­unum. Ekki síst í ljósi þess fara stór­karla­legar yfir­lýs­ingar for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir brjóstið á Sjálf­stæð­is­mönnum.

Þá má velta fyrir sér hvort ræða for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins sé ekki enn lík­legri til að hækka hita­stigið hjá sam­starfs­flokknum, í ljósi atburða í vik­unni. Á þriðju­dag­inn sendi Eygló Harð­ar­dóttir, félags­mála­ráð­herra, starfs­fólki fjár­mála­ráðu­neytis Bjarna Bene­dikts­sonar orkust­angir til að ýta á vinnu ráðu­neyt­is­ins við að meta áhrif tveggja hús­næð­is­frum­varpa hennar á rík­is­sjóð á þjóð­ar­bú­skap­inn og birti á Fés­bók­ar­síðu sinni. Þá lét Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, í það skína á mið­viku­dag­inn að seina­gangi í þing­inu væri meðal ann­ars um að kenna að ekki hafi tek­ist að flytja Fiski­stofu til Akur­eyrar. Í því felst auð­vitað ákveðin gagn­rýni á sam­starfs­flokk­inn.

Hvort ræða Sig­mundar Davíðs á flokks­þingi Fram­sókn­ar­manna muni reyn­ast kornið sem fyllti mæl­inn og draga dilk á eftir sér, er alveg ljóst að hún hefur valdið tölu­verðum titr­ingi á stjórn­ar­heim­il­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár