Bændur þurrka upp vatnslindir í Kaliforníu

Þurrð­inni sem hefur plagað Kali­forníu und­an­farin fjögur ár virð­ist ekki ætla að ljúka í nán­ustu fram­tíð. Vatns­skort­inn má rekja til minni úrkomu, hærra hita­stigs og styttra regn­tíma­bils. Í nýlegri skoð­ana­könnun sem gerð var í Kali­forn­íu­ríki svör­uðu 94 pró­sent við­mæl­enda að þeir töldu ástandið alvara­legt og þriðj­ungur studdi vatns­skömmtun.

Þrátt fyrir að íbúar sam­mælist um alvara­leika máls­ins er með­al­neysla vatns á mann í borgum Kali­forníu 674 lítrar á dag, sem er 40 pró­sent meira en á hvern íbúa í New York og rúm­lega tvisvar sinnum meira en í Sydney. Þrátt fyrir mikla eft­ir­spurn og dvín­andi fram­boð kosta þessir 674 lítrar ein­ungis um 80 sent eða rúm­lega 100 íslenskar krónur miðað við núver­andi gengi. Gamlar reglur og lög sem voru sett til að tryggja vatsnd­reif­ingu um ríkið ýta verð­inu niður og kynda undir ofneyslu.

Hag­fræð­ingar hafa bent á mis­ræmið í því að halda vatsnverði svo lágu þrátt fyrir vatns­skort­inn en lít­ill póli­tískur vilji virð­ist vera til staðar til að hækka verðið. Þess í stað er leitað ann­arra leiða til að bregð­ast við þurrð­inni. Veit­inga­staðir er hvattir til að afgreiða ekki vatn og borg­ar­búar hvattir til að vökva ekki garð­ana sína.

Jerry Brown, rík­is­stjóri í Kali­forníu, setti lög í byrjun apríl sem neyðir vatns­veitur að minnka dreif­ingu á vatni um 25 pró­sent og sagði að „fólk verði að átta sig á því að við lifum á nýrri öld“. Gagn­rýn­is­raddir benda á að nýju regl­urnar gilda ekki um land­búnað sem notar 80 pró­sent af vatn­inu en skilar aðeins tveimur pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu í Kali­forníu.

Sér­fræð­ingar hafa bent á að með því að minnka vatns­freka ræktun (eins og möndlur, bómul, og refa­smára) og notkun óhag­kvæmra vökv­un­ar­að­ferða væri hægt að minnka vatns­neyslu svo hún verði ásætt­an­leg. Margir bændur virð­ast ekki taka það í mál og halda áfram að reyna að rækta þessar vatns­freku plöntur á nýjum ekrum á meðan þær gömlu þorna upp.

Margir stjórn­mála- og emb­ætt­is­menn hafa lýst yfir þeirri skoðun að nýsköpun muni reyn­ast lausnin að þessu vanda­máli. Kali­fornía er þekkt fyrir öfl­ugt frum­kvöðla­sam­fé­lag og nýsköpun. Helsta vanda­mál fylk­is­ins virð­ist hins­vegar vera stjórn­mála­legt og efna­hags­legt frekar en tækni­legt. Þó það sé óvíst hvort lofts­lags­breyt­ingar séu aðal­or­sök þurrð­ar­innar er sam­hljómur meðal lofts­lags­vís­inda­manna að jarð­hlýnun muni auka áhrif hennar. Þetta er því ekki tíma­bundið vanda­mál heldur mun Kali­fornía þurfa að aðlag­ast breyttum aðstæðum og þurr­ara lofts­lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár