Þingvallanefnd vill að „ónæðisflug“ verði takmarkað og „dróna-flug“ bannað

Þing­valla­nefnd hefur falið þjóð­garðs­verði að leita eftir sam­vinnu við Flug­mála­stjórn til að reyna að tak­marka svo­kallað „ónæð­is­flug“ í þjóð­garð­inum á Þing­völlum. Þá vill nefndin að „dróna-flug“ verði bannað í þjóð­garð­inum. Þetta kemur fram í skrif­legu svari Sigrúnar Magn­ús­dóttur, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, sem jafn­framt er for­maður Þing­valla­nefndar, við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Þyrluflug veldur titringi


Vilborg Hall­dórs­dóttir, leik­kona og leið­sögu­maður, gagn­rýndi harð­lega óheft þyrlu­flug með ferða­menn við helstu ferða­manna­staði lands­ins í stöðu­upp­færslu á Facebook á dög­unum og Kjarninn sagði frá.

Í áður­nefndri stöðu­upp­færslu skrif­aði Vilborg: „Í dag var ég uppi á Gull­fossi í feg­ursta vetr­ar­veðri sem hægt er að upp­lifa, skaf­heiður him­inn og skyggnið algert…. þar mátti ég sætta mig við það, að þyrla sveim­aði yfir mér í óra­tíma með til­heyr­andi hávaða­mengun. Kannski með 2-3 far­þega inn­an­borðs. Ætli þeim 250 manns sem voru að njóta fossa og nátt­úru hafi verið skemmt!? Ætli þeir séu komnir útí hina íslensku nátt­úru til að sitja undir slíku!?“

Þá velti Vilborg fyrir sér hversu lengi Ísland verði spenn­andi áfanga­staður fyrir áhuga­sama ferða­menn með þessu fram­haldi. „Þessi hávaða­mengun er eins og sígar­ettu­mengun…. fjöldi líður fyrir fáa. Eiga hund­ruðir að líða fyrir leti og ríki­dæmi fárra og sjálf­valdra? Hvenær ætlum við að fara að setja reglur um t.d. þyrlu­flug yfir þjóð­görðum?“

Engar flugtakmarkanir í gildi í þjóðgörðunum


Engar sér­stakar tak­mark­anir eru í gildi er varða flug loft­fara í þjóð­görðum á Íslandi, en útsýn­is­flug með ferða­menn hefur auk­ist gríð­ar­lega hér­lendis á síð­ustu miss­erum sam­hliða spreng­ingu í komum erlendra ferða­manna hingað til lands.

Samkvæmt reglu­gerð um flug­reglur er óheim­ilt að fljúga yfir þétt­býlum hlutum borga, bæja, þorpa eða úti­sam­komum í minni hæð en 1000 fetum, eða 300 metrum. Þá vaknar óneit­an­lega upp sú spurn­ing hvort ekki skuli skil­greina jafn þétt­set­inn ferða­manna­stað og til að mynda Gullfoss sem úti­sam­komu.

Annars staðar, það er utan þétt­býlis eða manna­móta, er bannað að fljúga loft­fari í minni hæð en 500 fetum, eða 150 metrum. Athygli skal vakin á því að í ofan­greindum til­fellum er um að ræða flug­hæð yfir landi, en ekki sjáv­ar­máli. Samkvæmt eft­ir­grennslan Kjarnans er venjan sú að hæð­ar­mælar séu stilltir á hæð yfir sjáv­ar­máli, sem við­kom­andi flug­maður þarf þá ýmist að bæta 1000 eða 500 fetum við til að fara að reglum.

Fleiri kvarta undan „ónæðisflugi“


Þing­valla­nefnd hefur fjallað um þyrlu­flug og rætt hvort ástæða sé til að setja skýrar reglur um útsýn­is­flug í þjóð­garð­inum. Ólafur Örn Har­alds­son, þjóð­garðs­vörður á þing­völlum, segir í sam­tali við Kjarnann að færst hafi í vöxt að gestir þjóð­garðs­ins kvarti undan ónæði vegna þyrlna og flug­véla. Hann segir að víða erlendis séu í gildi tak­mark­anir um útsýn­is­flug í þjóð­görðum, á frið­lýstum svæðum eða á vin­sælum ferða­manna­stöðum, eða það háð sér­stöku leyfi.

Í áður­nefndu svari Sigrúnar Magn­ús­dóttur, for­manns Þing­valla­nefndar, við fyr­ir­spurn Kjarnans, segir að stjórn þjóð­garðs­ins geti ekki bannað flug á Þing­völlum upp á sitt eins­dæmi, en nú sé leitað leiða til að tak­marka þar „ónæð­is­flug.“ Þá vilji nefndin að flug dróna verði bannað í þjóð­garð­inum. „Þyrlu­flug er vax­andi starf­semi hér á landi og því mjög eðli­legt að sest sé niður og þau mál rædd eins og allt annað í hinum ört vax­andi atvinnu­vegi ferða­mennsk­unni. Það eru oft­ast kostir og gallar á flestum málum. Málið er að tak­marka gall­ana og leyfa kost­unum að njóta sín. Við á Þing­völlum viljum vinna með fólki, líka þyrlu­flug­mönnum. Þetta er þjóð­garður fyrir alla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár